Þessi mynd tengist póstinum ekki neitt, bara að sýna hvað við feðgar erum fallegir...
Það er komið smá stress í mann þegar hugsað er til þess sem þarf að gerast áður en maður kemur heim um jólin. Þetta er svona stressblandaður spenningur eða spenningsblandað stress, eftir því hvernig fólk vill hafa það. Á eftir að skila tveimur verkefnum í einu fagi sem er próflaus áfangi og í öðru þeirra er maður varla byrja vegna tafa á gögnum frá Íslandinu. Eitthvað skriffinnsku leyfis vesen með að fá gögnin, en svona er þetta, fæ vonandi eitthvað fyrir helgi. Þannig að helgin framundan verður spennandi verkefna vinna.
Þannig að það er innan við mánuður í að maður komi heim í jólafrí og það bíða manns tvö verkefni, þrjú próf ásamt öllu öðru sem þarf að gera... stuð að vera í skóla.
Annars kemur tónlist alltaf vel af notum þegar maður er í skóla. Það hefur bjargað mér í gegnum margan próflærdóminn að vera með eitthvað gott í eyrunum og það á eflaust eftir að reynast vel núna. Fólk getur séð hvað maður er mest að hlusta á í ipodinum hér til hliðar. Er alltaf að taka iTunes meira og meira í sátt þó þetta sé ennþá svona love/hate samband.
Hlakka samt frekar mikið í að komast heim og hitta alla.
Jæja farinn að fá mér einn øl og horfa á Prison Break.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli