Hljóp heim úr vinnunni. Vel þreyttur í lærunum eftir Esju gærdagsins og einnig einhver vottur af hálsbólgu. Brekkan frá Grafarvoginum upp í Norðlingaholt tók vel í lærin. Annars gekk vel að rúlla þetta og ágætis veður en smá rok.
12km á 58:23
29.5.13
28.5.13
Esja #5
Fór Esjuferð nr. 5 í gær. Veðurspáin var fín og því kjörið að drífa sig af stað eftir kvöldmat. Lagði af stað frá Esjumelum og hljóp í átt að Esjurótum. Fór hægra megin upp í fyrstu ferð, gekk sæmilega og náði að hlaupa svipað og vanalega, mjög mikið af fólki bæði á leiðinni upp og niður. Var 29:14 á leiðinni upp sem er nálægt PR. Gaf svo vel í á leiðinni niður (vinstramegin) og var ekki nema 12:49 niður sem er nýtt PR. Var samt orðinn frekar sárfættur undir hæl eftir niðurferðina. Tók svo Esjuhlaups lúppuna og létt spjall við Bigga, Friðgeir og Helga sem voru einnig að hlaupa Esjuna. Fór svo í ferð nr. 2 og ekki hlaupið mikið, hljóp bara sléttustu kaflana en fór núna vinstra megin upp. Var 32:22 upp og gekk það nokkuð vel en mýrin var mjög blaut og náði ég að stíga í drullu sem náði mér upp undir kálfa. Fór svo mjög rólega niður, sérstaklega útaf hversu sárfættur ég var orðinn undir öðrum hælnum, var hræddur um að fara fá blöðru. Endaði á ca 20 mín niður og fór í þetta skiptið hægra megin niður.
Allt í allt var þetta 15,67km og var ég 2 klst að þessu. Fínn kvöldtúr.
Allt í allt var þetta 15,67km og var ég 2 klst að þessu. Fínn kvöldtúr.
Merki:
Hlaup
27.5.13
2,5km-4x400-2,5km interval
Fór frá Salalaug niður að Vífilsstaðavatni og tók þar nokkra spretti. Æfing dagsins hljóðaði uppá 2,5km-4x400m-2,5km. Tók ca. 10K hraða á 2,5km kaflann og 3-5K hraða á 400m.
Var búið að vera kalt fyrr um daginn og fór ég því alltof vel klæddur af stað. Fór úr jakkanum við vatnið og tók sprettina þar. Krían ekkert alltof mikið að trufla þó svo maður hafi alveg haft auga á henni. 2,5km sprettir á 3:46 og 3:44, 400m sprettir á: 3:27-3:21-3:23-3:27. Þessi æfing tók vel á en gott að ná smá hraða í lappirnar.
Létt jokk tilbaka. Endaði 13km á 58mín.

25.5.13
Langur laugadagur
Fór út um kl. 14:30 í langa túr vikunnar. Búið að vera rok og rigning fyrr um daginn. Hélt um morguninn að ég væri að fá hálsbólgu og var því búinn að fresta þessum hlaupatúr fram á sunnudag en svo var ég nokkuð góður og ákvað að skella mér út.
Hljóp niður að vatni og fór 2x ríkishringinn í Heiðmörkinni, lengdi svo aðeins í lokin í kringum Vatnsendahlíðina og endaði í 32km á ca. 2:34mín.
Var nokkuð ferskur framan af en fór svo að stífna í hælnum í seinni hring og hafði það smá áhrif. Var bara með 600ml af vatni að drekka og nokkrar döðlur og ferskjur. Orkan dugði alveg en vantaði aðeins uppá vatnið.

23.5.13
13,6km í Heiðmörk
Létt rúll í Heiðmörkinni. Frekar þreyttur eftir Esju gærdagsins en fór samt út. Var alveg orkulaus frá byrjun og minnkaði hringinn sem ég ætlaði að fara niður í 12km. Fór meðfram vatninu og svo inn í Heiðmörk, tók svo hringinn í kringum Vatnsendahlíð og endaði í 13,6km á 1:07 klst.
Merki:
Hlaup
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)