30.4.13

Fyrsta Esja ársins

Fyrsta Esja ársins. Fór eftir kvöldmat upp að Esjumelum og lagði þar. Hljóp svo í mótvindi í-4°C í átt að Esjustofu. Mótvindur alla leið upp en skjól á köflum, prófaði að fara vinstra megin upp og því lítið hægt að hlaupa þar. Hljóp aðeins í byrjun en lítið eftir það, snjór þegar maður fór að nálgast steininn og nokkuð hálft, var ekki á broddum og rann nokkuð. Var 32:39 upp að steini og nokkuð sáttur við það.

Hljóp svo niður hægri leiðina, þar var frekar hálft í efri hlutanum en slapp til, var næstum því runninn á rassinn 1x en það slapp. Lærin fengu svo að finna fyrir því á leiðinni niður og tók það 20 mín. Skokkaði svo aftur upp að Esjumelum og endaði æfingin í 9,65km á 1:09. Fínasta æfing og frábært útsýni þó svo að það hafi mátt vera aðeins hlýrra og minni vindur. Nú verður reynt að fara 1x í viku á Esjuna.

29.4.13

Rólegt mánudagshlaup

Rólegt á meðan strákurinn var í fimleikum. Tók frí í gær sökum þess að ég gat varla gengið vegna harðsperra í kálfum.
Var aðeins að skána í kálfunum eftir því sem leið á daginn. Hálf aumur í kálfum fyrstu 4km og þá fór þetta aðeins að skána. Finn ekkert fyrir þreytu í lærum sem kemur mér smá á óvart, bara kálfarnir.
Hljóp frá Versölum yfir í Breiðholtið og þaðan niður í Mjódd, Elliðaárdalur, Víkin, Smiðjuhverfið og þaðan aftur upp í Salahverfið. Hringsólaði aðeins á Versala vellinum upp í 12km - 53:30 mín. Fínt veður en nokkuð kalt. Annars nokkuð góður bara.

28.4.13

Vika 17 - 22.04-28.04

Fín keppnis vika að baki og því voru kílómetrarnir ekkert mjög margir. Vikan samanstóð af tveimur æfingum og tveimur keppnum. Fór 12,5 á mánudag sæmilegt interval hlaup sem gekk hálf illa, var svo að drepast í maganum á þriðjudag, tók létt 4x400m á miðvikudeginum og svo keppt í 5km á fimmtudeginum og 21,1km á laugardeginum. Bæði keppnishlaupin heppnuðust mjög vel og ánægjulegt að maður er að komast í form hægt og rólega.
Nú verður bara haldið áfram og reynt að fara á slóða og uppá fjöll í bland við venjuleg hlaup.
Vikan endaði í 54km á 3:50 klst, heldur lítið en gott að ná þessum góðu stöðu tékkum.

27.4.13

Vormaraþon FM


Ákvað að taka annað keppnishlaupið á þremur dögum og skráði mig á föstudaginn í hálft maraþon í Vormaraþoni félags maraþonhlaupara. Veðurspáin var ekki góð fyrir hlaupið, íslenskt haustveður, rok og rigning en ég vildi taka gott stöðu tékk á forminu og því var ekkert annað en að mæta og taka á því sama hvernig veðrið yrði.

Var mættur niður í Fossvog ca. hálf tíma fyrir hlaup, hálf kalt svona um morguninn, rigning og rok, varla að maður vildi fara út úr bílnum. Maður komast þó af stað og tók 3km upphitun og það hjálpaði aðeins í að losna við mesta stífleikann í kálfunum. Var kominn með frekar miklar harðsperrur í kálfana eftir 5km hlaupið á fimmtudaginn.

Ég var eitthvað hálf utan við mig í startinu og áður en ég vissi af var búið að skjóta og allir fóru af stað, ég ekki búinn að kveikja á úrinu og það tók smá tíma að detta inn. Fórum frekar hratt af stað (~3:40 hraði) og vorum fljótt fjórir í hóp; ég, Siggi Tomm, Róbert og Guðni Páll. Vissum að það yrði gott að halda vel í hópinn í þessum mótvindi (ca. 10m/s) sem yrði alveg út á nes. Héldum áfram að keyra þetta frekar hratt en vorum komnir á ~3:50 hraða á km 3 og 4. Siggi var að keyra þetta full hratt og leyfðum við honum aðeins að sigla á undan eftir HR í Öskjuhlíðinni. Hjá vatnsstöðinni við HR slappaði svo Guðni Páll aðeins á gjöfinni. Ég og Róbert vorum þá tveir og Siggi aðeins á undan, þegar við beygjum svo aftur vestur eftir strax eftir Nauthólsvík þá gaf Siggi aðeins eftir til að leyfa okkur að ná sér. Ég og Siggi skiptumst svo á að leiða til að halda uppi hraðanum í mótvindinum. Gekk vel og var ég alveg gáttaður hvað við náðum að halda góðum hraða í þessum aðstæðum. Við snúnings punktinn fékk maður svo auka orku bæði við að fá vindinn í bakið og svo einnig að mæta öllum hlaupurunum. Fór þennan kafla aðeins of hratt enda að hlaupa á ca. 3:40-3:44 hraða. Eftir 12km gaf ég því aðeins eftir og Siggi tók forustuna í hópnum, þarna var Róbert kominn ca. 100m fyrir aftan okkur. Tók smá á að fá aftur mótvindi þegar maður beygði til norðurs við Nauthólsvík en maður hélt þá svipuðum hraða áfram ca. 3:50. Bilið á milli okkar Sigga jókst svo á þessum kafla í ca. 100m og hélst það svo nokkuð stöðugt þangað til í lokin. Orkan farinn að minnka aðeins og farinn að finna fyrir þreytu þegar maður var kominn aftur niður í Fossvog, því erfitt að hlaupa í gegnum markið og vita að það voru 4km eftir og tveir síðust talsvert uppímóti og einnig með mótvind. Gott að komast á stokkinn og sjá hvar maður var staddur í hlaupinu. Kári Steinn var að leiða hlaupið og Ingvar á eftir og svo Arnar Péturs, Siggi svo ca. 100m á undan mér og Róbert ca. svipað á eftir mér. Svo staulaðist maður bara áfram í lokin dauðþreyttur í mótvindi og uppímóti og fannst ég vera farinn að hægja á mér þó svo að úrið segi ekki þá sögu. Seinustu 400m voru erfiðir en alveg frábært að klára og aðeins 20 sek frá mínum besta tíma á 1:20:38. Vissi ekki alveg á hvaða tíma ég var að hlaupa á allt hlaupið útaf þessu rugli í byrjun og tók þetta meira eftir tilfinningunni.
Fréttum svo þegar við vorum komnir í mark að Siggi hafði lent í 3. sæti og ég því í 4 sæti, því Kári Steinn hafði verið að pace-a Ingvar og Arnar.
Mjög ánægður með tímann og formið á þessum tímapunkti miðað við að hæfingar í vetur hafa ekki gengið nægilega vel. Hefur þó allt verið á uppleið undanfarið og var þetta gott stöðutékk á forminu.

Vil þakka félagi maraþonhlaupara fyrir að halda þessa frábæru keppni. Alltaf gaman að keppa og hitta aðra hlaupara á Íslandi og góð tímasetning á þessum hlaupum til að auka við flóruna í heilu og hálfu maraþoni.

25.4.13

Víðavangshlaup ÍR

Langaði að taka stöðutékk á forminu og skráði mig því í Víðavangshlaup ÍR sem fór fram á sumardaginn fyrsta. Veðrið ekki það besta en það var talsverð rok úr norðri sem hafði áhrif á Sóleyjargötu og Fríkirkjuvegi.
Var mættur niður í Ráðhús ca. 20 mín fyrir hlaup, tók létta upphitun í kringum tjörnina og kom mér svo fyrir í startinu.
Fór slatti af fólki frekar hratt af stað og maður var í grúbbu 2 á eftir fremsti mönnum (og stelpu). Hélt mig í þeim hóp fyrstu 2km og reyndi að finna skjól á móti vindi niður Sóleyjargötu og Fríkirkjuveg. Eftir beygjuna inná Suðurgötu reyndi ég aðeins að gefa í til að fækka aðeins í hópnum og það tókst, eftir það vorum við 4, ég, Geir, Þórólfur og Róbert. Á Skothúsveginum tók Geir forustuna og hélt henni alveg þangað til við vorum aftur komnir á Skothúsveginn, þá vorum við þrír jafnir, ég, Geir og Þórólfur. Eftir beygjuna inn Tjarnargötuna náði Þórólfur forustu og ég stakk mér á undan Geir. Svo var bara allt gefið í botn og allt klárað af tankinum og ég náði rétt svo að stinga mér á undan Geir í mark.
Varð í 7. sæti á 17:41 sem ég var bara mjög ánægður með. Ekki langt frá mínum best 5km tíma.

24.4.13

4x400

Var slæmur í maganum og eitthvað þreyttur á þriðjudaginn þannig að ég tók frí þá. Var búinn að ákveða að skella mér í Víðavangshlaup ÍR (5km) á fimmtudeginum.
Hljóp létt niður í Víðidal og tók þar 4x400m á einhverju sem gæti heitið 5K hraði. Skokkaði svo rólega tilbaka. Flott veður, sól og lítill vindur.

22.4.13

2,5-1,6-1 interval

Fór að heiman og hljóp niður í Víðidal. Tók þar 2,5km-1,6km-1km með 3mín og 2mín skokkhvíldum á milli spretta, átti að vera ca. 10km hraði í sprettum. Svo skokkað heim, 12,5km samtals.
Hélt ég væri sæmilega upplagður en gekk erfiðlega að ná að halda réttum hraða, einhver mótvindur en finnst ég hafi átt að geta gert betur. Svipað í 1,6km sprettinum nema þá var aðeins uppímóti en náði svo réttum hraða í seinasta sprettinum með smá meðvindi.
Var svo virkilega þreyttur að skokka heim og frekar illt í maganum. Ekki minn dagur.

21.4.13

Langur sunnudagur


Hljóp að heiman upp í Heiðmörk. Ætlaði að enda að sækja bílinn í vinnuna en gleymdi lyklinum. Hljóp því fyrst fræðsluhringinn með smá auka krók og svo hljóp ég niður í vinnu.
Endaði í 27,3km og hafði eiginlega ekki tíma í meira, hefði verið ágætt að fara upp í 2:30 klst en komast ekki nægilega snemma út til að það gekk upp.

Vikan endaði því í  81km, 6:07 klst og 5 hlaupadögum. Ein interval æfing, ein tempó æfing og ein löng æfing, hefði vilja ná allavega einu degi í viðbót og vera nær 100km en þetta verður að duga. Löppin er að skána en fann aðeins til eftir sunnudags æfinguna, er samt alltaf að verða betri og betri.

19.4.13

6km tempó hlaup

Ákvað að prufa aðeins á hvaða hraða maður gæti mögulega hlaupið í hálfu í vormaraþoninu. Tók 4km upphitun og svo 6km á semi sléttri braut. Byrjaði tempóið við austurenda Elliðavatns og hljóp meðfram Bugðu í kringum Norðlingaholtið, inn að Víðidal og upp brekkuna í Fella hverfið.
Hljóp á 3:55 - 3:53 - 3:58 - 3:52 - 3:48 - 4:09.
Hraðinn sveiflaðist nokkuð mikið eftir því hvar ég var staddur og átti líka erfitt með að finna "réttan" hraða. Sprakk svo alveg á því í Powerade brekkunni upp í Fell í Breiðholti. Var samt fljótur að jafna mig og rúllaði heim og kláraði 14km. Held að formið gæti leyft eitthvað undir 4:00 pace í hálfu, ekki mikið meira en það.
Sól og smá vindur.

18.4.13

Eat and Run eftir Scott Jurek

Scott Jurek er Ultra maraþon hlaupari sem flestir þekka úr bókinni Born to Run. Hann er þekktastur fyrir að vera búinn að vinna Western States 7x, Hardrock 100 1x og Badwater 2x ásamt mörgum öðrum fræknum sigrum.
Hann rekur ævi sína frá því að vera sveitadurgur í Missesota og í það að verða ultra maraþon legend ásamt því að fara út í það hvernig hann gerist vegan (ekki til íslenskt orð yfir það).
Fátt nýtt í sjálfu sér í þessari bók sem ég vissi ekki fyrir en samt ágætlega skrifuð. Gaman að fræðast um æfingar og keppnissögur hjá svona reyndum hlaupara. Það helsta við þessa bók eins og margar aðrar hlaupa bækur eru að þær virka virkilega hvetjandi á mann og manni langar alltaf að fara og hlaupa hundruði km þegar maður er búinn að lesa/hlusta.

17.4.13

Morgunskokk 8km

Rólegt morgunskokk. Fyrsti kílómetrinn var ansi þreytulegur en skánaði aðeins. Aðeins aumur í hæl/hásin og þreyta í löppunum eftir æfingu í gærkvöldi (ca. 8 tímar í hvíld). Hljóp morgunhringinn yfir í Breiðholtið. Logn úti og hiti í kringum frostmark, blautt og smá vottur af hálku.
7,7km á 37:16 ~4:50 pace.

16.4.13

17km rúll

Fór út fljótlega eftir kvöldmat og fór stór hringinn í Heiðmök. Fyrst meðfram vatninu og svo upp í Heiðmörk. Var að reyna að beita mér rétt og rúlla vel áfram.
Gekk fínt og náði að halda góðum meðalhraða mest allt hlaupið. Skyggnið var samt farið að vera ansi lítið á reiðstíginum á leiðinni tilbaka. Pásaði úrið á einum tímapunkti og gleymdi að kveikja aftur. 17 km kláraðir á ca. 1:19 ~4:40 meðalpace.
Gott veður, nánast logn og svo kom hressandi rigning um miðbik, smá vor.

15.4.13

5x1,6K

 Hljóp frá Salalaug á meðan strákurinn var í fimleikum. Flott veður og gott að komast út á meðan sólin er á lofti.
Hljóp niður að Vífilstaðavatni og tók þar 5x1,6K með 2 mín skokk hvíldum. Tók stutta upphitun því ég vildi ná æfingunni á þessum 60 mín sem ég hafði til taks.
Mismunandi hvernig vindurinn hitti á sprettina en gekk fínt að halda svona 3:40-3:43 hraða, fór yfirleitt aðeins of hratt af stað. Vel þreyttur í sprett 4 og 5. Lullaði svo aftur upp að Salalaug og kláraði 15km á 1:02:40.

14.4.13

Vika 15 - 8.04-14.04

Ánægður með æfingar vikunnar. Tók 5 æfingar, hljóp 84,1 km og var 6:20 klst. Eina interval/spretta æfingu, eina semi tempó og eina langa, fyrsta sinn sem ég fer 30km síðan held ég fyrir ári síðan.
Löppin alltaf að vera betri, búinn að fara 2x til sjúkraþjálfara.