30.10.07
Tranquilize
The Killers - Tranquilize [mp3]
Tími og sími
Aðeins að símnúmera málum, Kiddi Sverris og Jón Haukur eiga það sameiginlegt að vera einu sem hringt hafa í heimasímann og ekki er listinn eitthvað mikið lengri hjá þeim sem hafa hringt í gsm-símanan. En við auglýsum sem sagt eftir fólki til að hringja í okkur :)
Fyrir áhugasama er símanúmerið hjá:
mér: +47 97471935
Önnu: +47 95011854
og svo er það heimsíminn: +47 73888412
Þeir sem eru með skype geta leitað af mér undir orvarstein.
Nú er svo bara að taka sig til og hringja í okkur, við erum vöknuð snemma
29.10.07
Það sem ég mæli með er...
Hot Fuzz (2007)
Góð grín spennumynd, Bretarnir klikka seint þegar kemur að húmor.
Einkunn: Hot Fuzz fær 8
Blades of Glory (2007)
Það eru fáir gamanleikarar sem komst með tærnar þar sem Will Ferrell hefur hælana. Algjör snillingur og fer á kostum í þessari grínmynd. Ég grét af hlátri í einu af skauta atriðinu, það er eitthvað svo fyndið að sjá tvo kallmenn skauta listdans. Má samt ekki taka hana of alvarlega.
Einkunn: Blades of Glory fær 8
Blind Dating (2006)
Við afrekuðum það eitt kvöldið að horfa á tvær myndir á einu kvöldi. Eitthvað sem við höfum ekki gert síðan Kári kom í heiminn. En sem betur fer var hin myndin Blades of Glory, því þessi er mjög svo slæm. Illa leikin og bara léleg mynd, maður hefði átt að vita betur en eins og oft áður þá blekkist maður á því hvað er vinsælt á vídeóleigunum. Getur alveg sleppt henni, þó svo að frúnni langi að sjá rómantíska gamanmynd, því Önnu fannst hún alveg jafn leiðinleg.
Einkunn: Blind Dating fær 4
Breaking and Entering (2006)
Þessi mynd er titluð sem drama/romance/thriller en ég sé mjög svo lítinn romance og thriller yfir svona lélegri mynd. Jude Law að halda framhjá þessari með einhverri sem á fátt sameiginlegt með fegurð. Hrein leiðindi sem ber að forðast.
Einkunn: Breaking and Entering fær 2
Fracture (2007)
Mjög skemmtileg crime/drama/thriller með skemmtilegu plotti. Ryan Gosling (Notebook) er eitthvað fyrir stelpurnar.
Einkunn: Fracture fær 7
Reign Over Me (2007)
Ein besta drama mynd ársins, mjög flott mynd.
Einkunn: Reign Over Me fær 8
United 93 (2006)
Öðruvísi heimildarmynd um 9/11, góð mynd.
Einkunn: United 93 fær 8
Deja Vu (2006)
Denzel Washington í einhverri vísindaskáldskaps vitleysu. Söguþráðurinn er frekar asnalegur en jú, ágætis spennumynd, ágætt í neyð.
Einkunn: Deja Vu fær 5
Perfect Stranger (2007)
Ágætis glæpómynd með Bruce Willis og Halle Berry.
Einkunn: Perfect Stranger fær 6
Disturbia (2007)
Þessi kom manni nokkuð á óvart, skemmtilega spennandi.
Einkunn: Disturbia fær 7
Flyboys (2006)
Ágæt flugmynd/stríðsmynd en ekki mikið meira en það.
Einkunn: Flyboys fær 6
The Lookout (2007)
Voðalega þunglynd mynd eitthvað, hélt ég væri að fara horfa á meiri spennu en allir voða óhamingju samir eitthvað, nær rétt í 5, mæli samt ekki með henni.
Einkunn: The Lookout fær 5
Knocked Up (2007)
Ein besta grínmynd ársins, eða á ég að segja rómantíska grínmynd? Allavega mjög skemmtileg mynd.
Einkunn: Knocked Up fær 8
Mr. Brooks (2007)
Kevin Costner góður í þessari skemmtilegu crime/drama/thriller.
Einkunn: Mr. Brooks fær 8
Apocalypto (2006)
Spennadi og skemmtileg mynd eftir Mel Gibson, frekar subbuleg en það gerir þetta bara skemmtilegra.
Einkunn: Apocalypto fær 8
The Number 23 (2007)
Leiðinleg hrollvekja, drama, mystery...
Einkunn: The Number 23 fær 4
Jæja þetta er orðið alltaf langt...næst ætla ég að láta líða styttra á milli svona pósta, ætla að reyna að halda áfram að gefa öllum myndum sem ég sé á árinu einkunn. Vonandi nennir einhver að lesa þetta og gefa sitt álit.
28.10.07
Delux
Það var sko delux kvöld í gærkvöldi, borðaður góður matur og horft á góða bíómynd.Kvöldmaturinn byrjaði á forrétt, á boðstólnum var Mozzarella ostur með tómötum og sallati (vantaði basilíku til að gera þetta 100% en mjög gott engu að síður). Myndin var reyndar tekin seinustu helgi en álíka flott í gær.
Í aðalrétt var norskt lamb með rauðvínssósu, kartöflum og sallati, og ekki má gleyma að rauðvín var drukkið með. Gat ekki verið eldað betur af meistarakokkinum henni Önnu.
Svo í eftirrétt var hjólað út í búð og keyptur karmellu/hnetu ís, einnig mjög góður þó svo að ekki hafi verið lagt mikil vinna í þennan rétt.
Eftir þetta og þegar Kári var kominn í háttinn var svo horft á Mýrina eftir Baltasar/Arnald. Mjög flott mynd og góð þó svo að spennan sé nú ekkert að drepa mann. Góð saga sem sögð er mjög sannfærandi í þessari mynd. Er alveg að fíla stílinn hjá Baltasari, myndirnar hans eru alltaf gerðar svo kaldar og einhvernveginn einmannalegar, þetta passar mjög vel við íslenska landslagið.Ágúst Eva var mjög góð sem dóttir Erlends en enn og aftur verð ég að lýsa yfir vonbrigðum með að Ingvar E. Sigurðsson sé settur í öll almennileg hlutverk sem bjóðast á þessu landi. Ekkert út á hann að setja varðandi þessa mynd, hann leikur þetta mjög vel og í sjálfu sér alveg sannfærandi sem Erlendur. En samt er hann ekki þessi Erlendur sem maður var búinn að ímynda sér. Við skulum ekki einu sinni fara útí það hvernig leikaravalið á Ingvari eyðilagði fyrir mér myndina Kaldaljós, sem var uppáhalds bókin sem ég las í menntaskóla. Svíarnir gera þetta vel með vali á Kurt Wallander og manni fannst Erlendur vera svona svipuð týpa og hann. Einnig fannst mér ekki passa að Erlendur keyrði um á glænýjum Range Rover, löggur eiga að vera á druslum.
En þrátt fyrir að mér fannst Ingvar ekki passa nógu vel í hlutverk Erlends er myndin engu að síður mjög góð. Það var ekki laust við að allar landslags senurnar í myndinni létu mann sakna gamla klakans.
Einkunn: Mýrin fær 8
27.10.07
Smjattpattarnir
Djöfull væri ég til í að eiga þessar bækur ennþá. Búið að vera pirra mig að ég mundi ekki hvernig Smjattpattarnir litu út en eftir smá leit þá fann ég þetta loksins. Þeir heita nefnilega The Munch Bunch á ensku. Spurning hvort maður fari á ebay og kaupa sér þessar gömlu bækur fyrir Kára (lesist: mig). Þá væri náttúrulega best að endurútgefa þessar bækur eins og hefur verið gert með Barbapabba.Man samt ekki eftir hvort að þetta voru teiknimyndir eða ekki, en þeir voru í uppáhaldi.
26.10.07
Boltaspark
Þeir eru þrátt fyrir það ennþá í 6 sæti sem er ekki nógu gott fyrir stórveldið frá Þrándheimi þannig að Tørum var sagt upp fyrir leikinn.
Aðeins að enska boltanum. Þessi spá mín er ekki alveg að ganga upp. Ég spáði Arsenal í 5 sæti og Tottenham í fjórða. Nú er málum þannig háttað að Martin Jol var að segja upp því Tottenham getur ekki neitt og Arsenal er í 1 sæti með einhverja 12-13 sigurleiki í röð. Liverpool mætir svo Arsenal á Anfield á sunnudaginn og menn eru skjálfandi á beininu á að mæta Arsenal í þessu formi sem þeir eru í núna. Það er bara vonandi að mínir menn rífi sig upp af rassgatinu og fari að sína að þeir kunni að spila fótbolta.
Annars er trú mín á Rafa alltaf að minnka, þannig er það nú bara.
En á meðan að Liverpool tapar í Tyrklandi er sigur Rosenborg ennþá meira gleði efni, og þá reynir maður að hugsa meira um það :)
25.10.07
Duved
Skelltum okkur til Sverige, nánar tiltekið Duved með þrem öðrum íslenskum fjölskyldum. Leigðum 4 hyttur/stuer/bústaði. Við fjölskyldan lögðum af stað á föstudaginn þegar Anna var búin í vinnunni, leifðum Kára reyndar að vera bara á leikskólanum meðan það var klárað að pakka og svo var brunað af stað um 3 leitið. Þegar við vorum komin yfir landamærin beið okkar snjór í Svíþjóð. Kom okkur frekar á óvart, vissum reyndar að það væri hvítt, en áttum ekki von á svona miklum snjó. Hann stoppaði reyndar ekki lengi og á laugardeginum var hann næstum allur farinn.
Krabbi eldaður á sænskan máta var á boðstólnum á föstudagskvöldinu og sænskar kjötbollur fyrir þau yngstu. Rosa góður matur og skemmtilegt að borða hann. Börnin voru svo sykruð upp til að þau gætu nú vakað í partýinu :) Kári skemmti sér alveg konunglega með öllum stelpunum og fór að sofa langt fram yfir hátta tíma 1.árs barna :)
Laugardagurinn var nýttur í að skoða aðeins Åre og versla ódýra hluti sem verða ekki nefndir á barnalandi... Liðið var nú eitthvað orkulaust á eftir skemmtilegt föstudagskvöld þannig að innkaupin voru nú ekkert glæsileg hjá liðinu.... hehe. Sænskt svín var svo á boðstólnum á laugardagskvöldinu og ekki má gleyma Subway sem var etinn í hádegismat :) Aðeins rólegra partý á laugardagskvöldinu og því þurftu börnin ekki eins mikinn sykur til að vaka, enda fengu þau að fara að sofa fyrr en kvöldið áður ;) Kári var reyndar svo þreyttur að hann sofnaði fanginu á mömmu sinni meðan spilað var Mr. and Mrs. (sem by the way við unnum....)
Sunnudagurinn fór svo í tiltekt í hyttunum og svo var verslaður matur í Ica Åre. Alltaf gott að fara til Sverige og spara smá peninge.
Jenny
Flight of the Conchords - Jenny [mp3]
18.10.07
Hress
Utanlandsferð?
Gerist fólk eitthvað mikið svalara ný vaknað, ég bara spyr!Það eru komnar nýjar myndir inná Picasa ljósmyndasíðuna, ég er aldrei þessu vant á undan Önnu að setja myndir á netið. Hægt að finna myndirnar hér:
http://picasaweb.google.com/orvars/OktBer2007/
Það verður svo skellt sér til útlanda um helgina, reyndar enga rosalega vegalengd því ferðinni er heitið til Åre í Sverge. Við tökum 0kkur saman nokkrar fjölskyldur og leigðum hyttur (aka sumarbústaði eða íbúðir).
Hef þetta ekki lengra í bili, þannig að ég óska bara fólki góðrar helgar.
17.10.07
Editors
Hérna er svo mp3 skrá með laginu:
Editors - Smokers Outside The Hospital Doors
Maður verður aðeins að rokka þetta upp eftir James Blunt.
Pósturinn Páll
eða svona næstum því, þetta er bara hjemmesykepleier hún Anna. Eigum við eitthvað að ræða þessi föt?Anna er byrjuð að vinna og þá breytist heimilslífið aðeins.
Í gærkvöldi var Anna á kvöldvakt og ég og Kári einir heima allan eftirmiðdaginn og því einnig einir heima í kvöldmat. Það er ekki það auðveldasta í heimi að elda með Kára viðstaddan því hann vill taka mikinn þátt í þessu öllu saman og það helst ofan í pottunum. Nema hvað að Anna tók sig til og eldaði fyrir okkur feðgana í hádeginu. Þannig að þegar ég og Kári komum þreyttir heim eftir erfiðan skóladag þá beið okkur kvöldmatur inní ísskáp, já það er gott að eiga góða konu/mömmu :)
15.10.07
Öbbi Fel og harðsperrur
Ég fór ásamt þeim Stebba og Jóa í Skvass á föstudaginn, alveg frábært að komast í einhverja aðra hreyfingu en að hlaupa úti. Jói er semi pro í þessu sporti og rúllaði okkur Stebba upp en við tveir erum á þessi venjulega amature level-i, þetta mun samt allt koma hjá okkur, Jói is going down. Helvíti gaman allt saman og stefnt á að gera þetta vikulega.
En djöfulsins harðsperrur var maður með um helgina og allt á einhverjum stöðum þar sem maður vissi ekki að maður var með vöðva (segi svona). Alveg að drepast aftan í lærinu, rasskinnunum og neðra bakinu, þetta var það slæmt að það var vont að setja niður á sandkassann þegar fjölskyldan var í sínum vikulegu sandkassaleikjum.
Annars tók ég mig til á sunnudaginn og sýndi hæfileika mína í eldhúsinu. Ég hef nú alltaf staðið mig nokkuð vel í eldamennskunni en aftur á móti ekki í bakstrinum. Það var svo á sunnudaginn sem ég bjó til þessar ljúfengu muffins og ekki nóg með það heldur var svo boðið uppá Royal búðing í eftirrétt (með kvöldmatinum).
Usss, svona er maður klár. Það tekur mikla hæfileika að hella smá vökva í skál og svo dufti útí og hræra, volla = bakari
14.10.07
Fleiri myndir
Hægt að finna þær hér:
http://picasaweb.google.com/orvars/September2007/
Það eru einnig komnar nokkrar myndir frá Október mánuði en það er enn sem komið er bara myndir frá leik Rosenborg og Schalke í meistaradeildinni.
http://picasaweb.google.com/orvars/OktBer2007/
Þá bjó ég til linka hægra megin á síðunni á þessi myndaalbúm. Bæði Picasa og flickr.
Góðar stundir.
13.10.07
Myndir á netið
Búinn að setja myndir frá heimsókn mömmu og pabba hennar Önnu á Picasa. Svo koma fleiri myndir frá sept. bráðum á netið.Myndirnar er hægt að finna hér:
http://picasaweb.google.com/orvars/KambHeimsKn/
Mæli með að fólk skoði þetta í "slideshow".
Fer svo að setja link á Picasa síðuna hérna hægra megin.
12.10.07
Músíka
Er maður alveg glataður ef manni finnst þetta lag skemmtilegt? Og það sem verra er að diskurinn er bara nokkuð góður.
Djöfull er maður að verða mjúkur.
11.10.07
Haust eða vetur?
Þannig að fyrsti "snjórinn" í ár kom 11. okt, þó svo að þessi snjór hafi nú bráðlega breyst í rigningu. En það var hressandi að hjóla í skólanum á móti snjó/slyddunni, maður er allavega vakandi þegar maður mætir í tíma.
Það er bara að vona að úrkomu magnið verði álíka mikið þegar er komið inní veturinn.
8.10.07
Helgin
Í gær var það svo sundferð út í Pirbadet. Kára fannst ekkert smá gaman að komast í sund og var farið í rennibrautina, öldulaugina og einnig í straumlaugina/hringinn. Maður myndi kannski fara oftar ef það kostaði ekki fjölskylduna ca. 3500 kr að fara.
Þannig að nú er það bara skólinn hjá mér á meðan Anna fer með gengið í búðir.
Lofa svo myndum bráðlega.
5.10.07
Meistaradeildin
En fúlt að horfa á tapleik og sjá ekki einu sinni mark hjá Rosenborg en gaman engu að síður, og við vorum rosalega góðir í seeeen-inu í Roooooo...seeeeeen...boooooorg.
Ekki hjálpaði til að vita til þess að Liverpool tapaði fyrir Marseille 0-1, um leið og þeir geta eitthvað smá í deildinni þá hverfur öll geta í meistaradeildinni.
En nóg um fótbolta
4.10.07
Afmælisbarn dagsins
Þá er fyrsta heimsóknin staðreynd þessa önnina. Tengdó komu í gærkvöldi/nótt og munu vera hérna í viku. Nóg að skoða og gera með þeim og alltaf gaman að fá heimsókn.
Ekki skemmir allur fíni maturinn sem þau komu með, ég er samt ánægðastur með íslensku hamborgarana því þeir norsku eru mjög svo vondir.
Svo var ég að græða 15 ár :)
Sjá hér
3.10.07
Champions League
Er að fara á Champions League í kvöld. Rosenborg spilar við Schalke í kvöld á Lerkendal Stadion og ég verð þar. Kannski ekki mest áhugaverðasti leikur í heimi en stemmningin mun samt verða góð á Lerkendal.Áfram Rosenborg, Roooo Seeeen Borg.......
2.10.07
Fjernsyn
Nú er haustið komið með öllum tilheyrandi sjónvarpsþáttum en þó svo að lítið sem ekkert af þáttum hafi verið á dagskrá í sumar var lagerinn fullur af góðu efni. Það er nefnilega þannig að tíminn sem fer í þessa yðju fer alltaf minnkandi, barn og skólaganga eiga þar stóran hlut. Þannig að við áttum gott safn af uppsöfnuðu efni til að horfa á frá maí til lok sept. Já vhs spólurnar taka mikið pláss,; hóst, hóst :)Tveir helstu þættir sem við höfum horft á í sumar/haust eru Heroes og Studio 60. Var búinn að heyra góða hluti um þessa þætti en geymdi þá þar sem við áttum nóg með að horfa á alla hina þættina sem á dagskrá voru seinasta vetur.
Vorum að klára Heroes í vikunni og var ég mjög ángæður með fyrstu seríuna af þessum þáttum. Þetta eru svona ofurhetju þættir, kannski svipuð pæling og X-men án þess að það sé komið útí þær öfgar. Það góða við þetta er að nú þurfum við ekkert að bíða eftir næstu seríu, því hún byrjaði í seinustu viku í USA.
Við erum svo ennþá að horfa á fyrstu seríu af Studio 60 eru grín/dramaþættir með Matthew Perry í einu af aðalhlutverkunum. Góðir þættir sem fjalla um lífið í tv bransanum. Það er reyndar búið að "cancel-a" þeim og við það urð þeir aðeins óáhugaverðari hjá manni. En skemmtilegir þættir engu að síður.
Þá hafa fleiri þættir verið á dagskrá hjá okkur. Kláruðum meðal annars 3 seríu af Lost í gærkvöldi og eru þeir þættir eitthvað að skána aftur, allavega betri sería en nr. 2. Verst er að þeir byrja ekki aftur fyrr en í febrúar á næsta ári.
En þetta er gott í bili af hvað er á dagskrá hjá okkur í Moholti.
1.10.07
Digranesvegur
Ingó fjallar svo einnig skemmtilega um þetta mál.
Sandkassaleikir
Ég held að mér finnist skemmtilegra en Kára að fara út á róló og moka í sandkassanum. Síðustu þrjár helgar hefur ég verið að "leika" mér af því að gera sandkastala með misgóðum árangri. Þannig er nefnilega málum háttað að maður á barn sem heldur að ég sé þarna (í sandkassanum) til að leika við sig en það er nefnilega stór misskilningur. Þannig að Kári kemur alltaf og hjálpar mér með kastalana og þar sem hans hjálp er misgóð þá enda kastalarnir yfirleitt sem útkraminn sandhaugur, sem er ágætis bygginar form en ekki það sem ég er að leita eftir.Þannig að næstu helgi ætla ég að spyrja Jóa hvort hann vilji vera "memm" og við förum einir að leika okkur í sandkassanum.
Já það er gaman að eiga börn og hafa afsökun í að leika sér, get ekki beðið eftir því að fara renna mér á snjóþotu í vetur :)
