Margrét og Jón Haukur eignuðust í gær aðra stelpu og er mikil hamingja í fjölskyldunni með það. Þannig að núna er Guðrún orðin stóra systir, Kári stóri frændi og mamma og pabbi komin með þrjú barnabörn.En til hamingju með stelpuna ykkar og okkur hlakkar til að koma í heimsókn.
Anna er búinn að vera í fríi og er því alltaf með Kára í fullri skemmtidagskrá. Guðrún frænka er búin að vera dugleg að koma í heimsókn og ná þau frændsystkinin alveg frábærlega vel saman. Alltaf mikið fjör þegar þau hittast og ekki var það minna í gær þegar Guðrún var í pössun á meðan foreldrarnir og litla systir voru uppá fæðingardeild. Enda Kári mikil félagsvera og skemmtir sér best í leik með öðrum börnum.
En leikskólastrákurinn Kári kemst ekki inná leikskóla fyrr en í byrjun september þannig að það verður gríðarlegur hressleiki að brúa bilið milli þess og þegar Anna fer að vinna (sem er 5. ágúst). Þannig að ef einhver vill fá drenginn lánaðann í ágúst ætti að vera lítið mál að redda því ;)
Annars er bara búið að vera mjög mikið að gera síðan við komum heim. Mikið út úr bænum og svo einnig að koma sér fyrir í Hlíðarhjallanum. Komin alveg með nóg af því að skrúfa IKEA húsgögn saman en þetta er samt allt að koma.
Læt þetta duga í bili og sjáum svo til hvað maður nennir að vera duglegur á þessum vettvangi.