30.9.01

Haustferð U&B

Það var farið í Hausferð U&B á föstudaginn. Í þetta skiptið var farið á vesturland. Fórum fyrst upp í Borganes að hlusta á það sem þeir hjá Vegagerðinni höfðu að segja. Eftir það var lagt í hann til Stykkishólms. Skoðaðar voru vegaframkvæmdir á leiðinni. Þá var borðað og farið í sund í Stykkishólmi. Stoppað var hjá Loftorku í Borganesi á leiðinni heim.
Eftir þetta allt saman var farið í bæinn, menn voru ekki að endast lengi þar en ég held að ég hafi verið með þeim seinustu sem fórum heim.

22.9.01

VARÚÐ VARÚÐ VARÚÐ

Ekki fara á Artificial Intelligenge. Þvílíka bull og vitleysu hef ég sjaldan séð.

20.9.01

Hannibal

Var að horfa á Hannibal í gær. Var svolítið hæg af stað en hélt samt alltaf athyglinni. Það var ca. ljótasti maður sem ég hef séð í myndinni en hvað með það, Anthony Hopkins var mjög góður og átti setningu aldarinnar í myndinni mjög fyndin.

Annars var líka Dortmund vs. Liverpool í Meistaradeildinni í gær. Mjög bragðdaufur leikur. 0 - 0 jafntelfi.

19.9.01

Liverpool vs. Dortmund

Liverpool á að spila í Meistardeildinni í kvöld við Dortmund, það verður King Carragher sem tekur Koller í bakaríið.

TAPAÐ

Jakkinn minn var tekin í misgripum í Verkfræði og Hjúkrunarfræði partýi á föstudaginn 14. sept. Þeir sem vita eitthvað um þetta endilega sendið mér póst.

6.9.01

Liverpool með 7 mörk

Nú hafa Liverpool menn skorað öll mörk Englands í seinustu leikjum eða 7 talsins, hvað segir Árni Magnússon núna? Vont að hafa Liverpool menn sem kunna ekki að sækja!

Annars var það nú alveg öruggt að Íslendingar mundu tapa á móti Norður Írum. Ég var búinn að spá þessu.