Er ekki kominn tími á að láta fólk vita að 15. ágúst er dagurinn, það þýðir 24v3d eða er ekki hægt að segja -15v4d gamall/gömul.Hvort þetta verður þetta lítill Örvar eða lítil Anna, við vitum það ekki. En mér sýnist krílið verða nokkuð líkt mér.
Er ekki kominn tími á að láta fólk vita að 15. ágúst er dagurinn, það þýðir 24v3d eða er ekki hægt að segja -15v4d gamall/gömul.
Já var að búa til nýja ljósmyndasíðu á flickr þar sem ég ætla að vera með svona "flottar" myndir.
Þá er ég loksins búinn að setja myndirnar frá Siglufirði inn. Við strákarnir förum í skíða og menningarferð til Siglufjarðar helgina 24-26. mars og var það mjög vel heppnuð ferð en myndirnar nokkuð seint á ferð.
Ég vil bara taka það fram að þó svo ég sé nú alveg sammála henni Ásthildi um að ég sé lang myndalegastur á Línuhönnun þá verð ég bara að koma því á framfæri að það var EKKI ég sem sendi inn þessa spurning. Hérna er þetta á visir.is
Embla 01.02.1996 - 07.04.2006