23.5.13

13,6km í Heiðmörk


Létt rúll í Heiðmörkinni. Frekar þreyttur eftir Esju gærdagsins en fór samt út. Var alveg orkulaus frá byrjun og minnkaði hringinn sem ég ætlaði að fara niður í 12km. Fór meðfram vatninu og svo inn í Heiðmörk, tók svo hringinn í kringum Vatnsendahlíð og endaði í 13,6km á 1:07 klst.

22.5.13

Esja #4 2013



Lagði af stað frá Esjumelum eftir kvöldmat í sól og nánast logni. Ennþá smá þreyta eftir Hvítasunnuhlaupið á mánudaginn en allur að koma til.
Reyndi að hlaupa sem mest en án þess að pína mig neitt of mikið. Endaði á að fara upp að steini á 29:38. Hélt svo strax áfram upp að skífu og svo þegar ég var kominn þangað hélt ég áfram alveg útaf brún hinum megin á fjallinu, horfði þar niður í Blikdal. Það var mikil drulla og snjór og erfitt um hlaup uppá topp en skemmtilegt engu að síður.
Svo var það niður leiðin sem gekk fínt en þreyttur í lærum þegar ég var kominn niður. Var í heildina 1:31 og fór 12,3km en það er lóðrétt hækkun sem telur líka, ekki bara km.