Það var farið í Hausferð U&B á föstudaginn. Í þetta skiptið var farið á vesturland. Fórum fyrst upp í Borganes að hlusta á það sem þeir hjá Vegagerðinni höfðu að segja. Eftir það var lagt í hann til Stykkishólms. Skoðaðar voru vegaframkvæmdir á leiðinni. Þá var borðað og farið í sund í Stykkishólmi. Stoppað var hjá Loftorku í Borganesi á leiðinni heim.
Eftir þetta allt saman var farið í bæinn, menn voru ekki að endast lengi þar en ég held að ég hafi verið með þeim seinustu sem fórum heim.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli