8.11.05

Brotið krosstré?

Svo bregðast krosstré sem önnur tré...þetta á við um meistara Steven Seagal og myndina Into the Sun.

Ég og Jim Bob ætluðum að horfa saman á þessa mynd en þar sem hann flúði land var lítið annað en að tékka á meistara Seagal einn og yfirgefinn.
Ég man þá daga þegar Seagal tók vonda kallinn og braut hann saman eins og pappakassa frá IKEA, það voru góðir dagar.
Þessi mynd var ekkert eins og Above the Law, Hard to Kill, Out for Justice og Under Siege, þetta var ein leiðinleg langloka að fremur döpru lokaatriði. Skamm skamm Seagal, svona áttu ekki að gera. Varla maður þori að horfa á Today You Die.
Into the Sun fær falleinkunn eða 3 Örlish!

Engin ummæli: