24.12.06

Jólakveðja

Ég vil óska öllum dyggu lesendum þessarar síðu gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.


Jólakortið má fá í betri upplausn hérna.

18.12.06

Kári Örvarsson

Kári var skírður á laugardaginn í Hjallakirkju og gekk athöfnin og veislan mjög vel. Hann fékk fullt fullt af fínum gjöfum og viljum við Anna bara þakka kærlega fyrir drenginn okkar.

Hérna er svo myndband sem ég sýndi í skírninni. Þetta eru myndir af fyrstu fjórum mánuðum Kára.

14.12.06

Ísland

Kominn til Íslands.
Ótrúlega gaman að koma heim og hitta alla. Allt á fullu að undirbúa skírn þannig að maður er ekki mikið að fara í heimsóknir núna, það verður að bíða fram yfir helgi.

Annars gekk ferðalagið fínt, hef í sjálfu sér ekki meira að segja í bili.

Jú það var eitt, er með gamla símanúmerið mitt: 6942979...

Kveðja
Örvar á Íslandi

12.12.06

Jólafrí og heimför

Jæja þá er ég búinn í prófum og fer heim á morgun. Gekk ágætlega í því sem ég gerði í prófinu en það var mjög langt og gat ég því ekki klárað það, eins og reyndar allir aðrir sem tóku þetta próf.

Nóg um það, búinn að vera á fullu síðan ég kláraði prófið.
Fyrst fór ég niður í bæ að versla jólagjafir. Eftir það var farið heim og þrifið og þegar það var loks búið þá var farið í að pakka.

Nú er ég loksins búinn að öllu og klukkan er 23:28, sannkallaður próflokafagnaður hjá mér :) Er reyndar að fá mér ísköku sem til var inní frysti (ekki má hún skemmast) og ætla svo að setja fæturnar upp í loft og horfa aðeins á sjónvarp. Aldrei að vita nema maður fái nú sér einn bjór, er það ekki skilda eftir próf?

Það verður mjög gaman að koma heim og hitta Kára, Önnu og alla hina sem ég hef ekki séð í langan tíma.

Nóg í bili, sjáumst á Íslandi...

11.12.06

Stál og ál

Eftir ca. 14 klst verð ég búinn í prófum...

Þá fer ég að:
-versla jólagjafir
-pakka
-þrífa íbúðina

og svo á ég bókað flug frá Þrándheimi kl. 10:20 á miðvikudaginn.

10.12.06

Atyglisbrestur

Ég held ég sé kominn með atyglisbrest, gengur ekkert að einbeita mér af lærdóminum. Held að þetta sé líka í fyrsta skipti á ævi minni sem ég hitti ekki eina manneskju yfir daginn. Búinn að vera lokaður hérna inni í íbúð í allan dag og reyna læra, hefði betur skroppið á Íslendinga messuna hérna í Þrándheimi, sem haldin var í dag.
Spurning hvort að það hafi svona áhrif á mann að vera burtu frá fjölskyldunni manns?

Jæja þýðir ekki að röfla yfir þessu. Farinn að horfa á tv og svo að sofa, vonandi verður athyglin komin í lag á morgun.

Kveðja
þessi hressi

9.12.06

Próflestur

Já manni leiðist stundum alveg óheyrilega í próflestri.

Hérna er það nýjasta sem ég tók uppá, jebb svona er maður nú klár í photoshop :). Annars eru fleiri myndir hérna.

Eins og sést á þessari mynd er ekki ennþá kominn vetur í Þrándheimi þó svo að það hafi nú komið snjór í lok október þá er hann löngu farinn og búið að vera hiti núna í nokkrar vikur. Ekki að veðrið skipti mig miklu máli núna þar sem maður er 95% sólarhringsins inni þessa dagana.

En þetta er sem sagt líf mitt þessa dagana.

8.12.06

Afmælis"barn" dagsins

Já maður má ekki gleyma henni Grímu. Gríma er eins árs í dag og eins og sést á myndinni er hún hundur. Hérna er hægt að sjá blogg um gotið.
Til hamingju með afmælið litla systir.

Ég hlakka mikið til að sjá hvernig skæruliðinn hefur það, örugglega búin að stækka heilmikið síðan maður sá hana seinast.

Acapella

Ég hef tekið þá stóru ákvörðun um að stofna hljómsveit. Þetta verður acapella hljómsveit þar sem röddin er í fyrirrúmi. Ég verð auðvitað aðalsöngvarinn en ég tek við umsóknum hérna í comment kerfið um hinar stöðurnar í hljómsveitinni.
Hugmyndin er að vera fjórir, já fjórir sagði ég því þettta verður sko karlmanns hljómsveit.

Þetta lag hér verður það fyrsta sem verður æft.


Ted er einfaldlega bestur og atriðið þegar 0:54 mín eru liðnar af myndbandinu er algjört gull. Þó svo að Scrubs hafi dalað eins er þetta einnþá gott stöff eins og þeir segja.

7.12.06

Einn í kotinu

Þá er maður orðinn einn í kotinu. Keyrði Önnu og Kára út á flugvöll í morgun, sjá mynd, og eru þau sem stendur í Pizza Hut í Osló. Þau lenda svo á Íslandi eitthvað um fjögur á íslenskum tíma, það verður tekið á móti þeim í Smáralindinni og mun Á móti sól syngja við þetta tækifæri.

Annars er frekar skrítið að vera svona einn eftir hérna í Þrándheimi og það er komin veruleg tilhlökkun í að koma heim.
Ég er búinn að breyta eldhúsinu í læriaðstöðu. Ágætt að komast út úr kompunni inní herbergi í aðeins stærra rými með glugga.

Svona er lífið þessa dagana í Þrándheimi.

5.12.06

Próf og HM

Var í prófi í gær í Finite Element eða Elementmetoden eins og það heitir á norsku. Gekk ekkert alltof vel enda hafði ég bara 3 daga til að læra sem var einfaldlega ekki nóg. Komst ekki nógu vel yfir allt efnið og þá sérstaklega heimadæminn sem ég skilaði ekki, þ.e. heimadæminn sem komu eftir að maður var búinn að ná próftökurétti. Það var einfaldlega of mikið að gera í öðrum fögum þegar var komið svona seint á önnina. En nóg með það.

Þá var fyrsta skipti í um 2-3 vikur smá pása til að slappa af. Ég ásamt öðrum meðlimum í fjölskyldunni skelltum okkur því í smá búðarleiðangur. Við fórum í HM og að dressa mig upp fyrir jólin. 3 skyrtur, 2 buxur og 1 húfa var árangur dagsins, sjá mynd.
Þannig að þegar ég kem heim um jólin verð ég eins og klipptur út úr HM tískublaði enda keypti ég mér aðrar buxur og peysu einnig í HM fyrr í vetur.

Þannig að núna í dag er vika í næsta próf (Stál og ál) og maður er á fullu að skipuleggja sig og klára að prenta allt út.

Anna og Kári eru svo að fara á fimmtudaginn heim til Íslands og það á eftir að vera erfitt að kveðja þau og vera einn í kotinu, en sem betur fer er svo einnig stutt í að ég komi heim. Ég á pantað flug heim 13. des og verð til 9. jan, þannig að nóg af tíma til að kíkja í heimsóknir.
Fyrir þá sem ekki vita, verðum við fjölskyldan hjá tengdó upp í Kambaseli í Breiðholtinu og því er ekki hægt að koma í heimsókn til okkar í Hlíðarhjallann.

Jæja nóg í bili.

30.11.06

Vonn dávn end tú tú gó

Gekk alveg ágætlega í steypu prófinu í dag. Hefði alveg viljað ganga betur en svona er þetta bara stundum þegar búið er að vera mikið að gera hjá manni allan veturinn, þá verður eitthvað að sitja á hakanum. Var því frumlesa nokkuð fyrir prófið og það er nú aldrei gott. Annars áhugavert fag en erfitt að ná mjög djúpum skilningi með því að lesa allt á norsku. Þetta kemur smán saman samt.

Það var bara nokkuð gaman að taka próf í öðru landi. Þetta er greinilega eitthvað alþjóðlegt að láta gamalmenni sitja yfir í prófum því þarna var alveg heill hellingur af þeim. Mun meira eftirlit með öllu hérna í Þrándheimi og fékk maður fylgdarlið á klósettið ásamt því að vera með prófið í þríriti.
Prófið var í Trondheimspektrum sem er niðri í bæ. Þetta er svona samansafn íþróttahúsum þar og var ég í prófi með svona 500 manns gróflega áætlað.

Jæja nóg um það í bili. Strax byrjaður að læra undir Elementmetoden, enginn tími til að slaka á því næsta próf er á mánudaginn.

29.11.06

Fæðingarblettir

Hvaða snillingur fann upp nafnið á fæðingarblettum? Kári er allavega ekki með neinn fæðingarblett og hann er nú nýfæddur...og ég er ekki nýfæddur og alltaf eru að fæðast fæðingarblettir á mér!

Bara svona pæling.

Algjör steypa

Þetta orðatiltæki er oft notað um eitthvað sem maður skilur ekki í eða á erfitt með að átta sig á. En í dag á þetta vel við því á morgun fer ég í steypupróf (Betongteknoloki) og er því á fullu að læra um steypu. Þó ég skilju nú alveg eitthvað í þessu er þetta nú oft algjör steypa, hehehe.

Þegar tengdó var í heimsókn spurði hún mig hvaða próf ég væri að læra undir. Ég sagðist vera að læra undir steypu og var svipurinn á þeim mæðgum eins og ég hefði sagst vera læra undir 5 bekkjar stærðfræði. “Er ekki öll steypa eins?” var spurt. En nei, það er ekki alveg eins einfalt og það hljómar. Þetta er nú ekki bara sement, sandur og vatn eins og margir halda. Heil mappa af lesefni á norsku og eitthvað um 420 síður af hreinu fjöri.

Þó svo mér finnist steypan áhugaverð þá er bara svo drep leiðinlegt að sitja heima hjá sér og læra allan daginn, og hvað þá að lesa, alltaf skemmtilegra að reikna.