Byrjum á erlendu diskum sem gefnir voru út á árinu 2005.
1. Bloc Party - Silent Alarm
Þessi diskar kom út snemma á árinu og var hann mjög mikið í spilaranum fyrstu mánuðina. Hef reyndar ekki hlustað á hann mikið undanfarið en þessi diskur var bara það hátt skrifaður á fyrri hluta árs að hann fær heiður að vera besti diskur ársins 2005 í mínum bókum.Þetta er svona dans-indí rokk ef maður á að fara út í einhverjar skilgreiningar.
Þá kom einnig remix útgáfa af þessum disk sem var einnig mjög góð.
2. Wolf Parade - Apologies To The Queen Mary
Snilld frá Kanada, held að þeir voru að hita upp fyrir The Arcade Fire og eru alls ekki verri hljómsveit.
3. Antony and the Johnsons - I Am a Bird Now
Byrjaði að hlusta á hann áður en hann varð "inn" á íslandi. Fór á tónleikana sem gerði það að verkum að maður nær meiri tengsl við diskinn.
4. Jack Johnson - In Between Dreams
Brimbretta kappinn frá Hawaii. Mig langar alltaf að liggja í hengirúmmi á Hawaii þegar ég hlusta á þennan disk.
5. Bright Eyes - I'm Wide Awake, It's Morning
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Conner Oberst átt nokkra góða diska og gaf tvo góða út á árinu. Þessi var betri og kemst á topp 5.
6. Architecture In Helsinki - In Case We Die
Missti af þeim á Airwaves og var mjög svekktur, aldrei að vita að þeir hefðu lent ofar ef maður hefði séð þá læv.
7. Kanye West - Late Registration
Snillingurinn hann Kanye West mjög lang besta Rapp diskinn á árinu.
8. The Magic Numbers - The Magic Numbers
Bresku fitubollurnar í Magic Numbers með frábæran disk sem vantar smá uppá.
9. Kaiser Chiefs - Employment
Góður stuð diskur frá Kaiser Chiefs sem sumir segja að hafa komið Britpoppinu aftur á kortið.
10. Sufjan Stevens - Illinois
Þessi diskar á örugglega eftir að vaxa í áliti hjá mér. Hann hljómar ótrúlega vel og gaman að hlusta á hann allan. Tók samt smá tíma að gúddera hann.
11. System Of A Down - Mesmerize
12. Gorillaz - Demon Days
13. Clap Your Hands Say Yeah - Clap Your Hands Say Yeah
14. Coldplay - X&Y
15. Brendan Benson - The Alternative To Love
Ef The Funeral með The Arcade Fire hefðu ekki komið út 2004 hefði hann verið á toppnum.
Þetta hefur svona ágætis mynd af því hvað maður hefur verið að hlusta á.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli