Þessi mynd var tekin af mínum manni í lok október á síðasta ári, mjög smekklegur ungur maður. Við morgunverðaborðið í morgun var hins vegar annað uppá teningnum. Kári var að borða hafragraut og sullaði eitthvað niður á sig og vildi að ég myndi þurrka honum, svo kom smá hafragrautur á puttana og auðvitað þurfti að þurrka það einnig.Þannig að fljót skipast veður í lofti og nú er Kári orðin pempía, hver hefði trúað því.
pempía
Engin ummæli:
Skrifa ummæli