17.2.08

Þorrablót Kjartans

Þorrablót Kjartans var í gærkvöldi og heppnaðist með afbrigðum vel, þótt ég segi sjálfur frá. Það var fín mæting, góð stemmning og "frábær" matur.
Skipulagningin gekk vel og náðum við að dreifa vinnunni við undurbúning nokkuð vel. Jói var frábær sem veislustjóri, minni karla og kvenna var fyndið hjá Heiðu og Krumma, kórinn og var góður og frábær stemmning í hópsöngnum. Jói og Kittý fengu svo stór happadrættisvinningin sem var flug frá Osló heim til Íslands fyrir tvo. Anna stóð sig ekki nógu vel og fengum við ekki einn vinning.

Jói tók svo við formennsku Kjartans og erum við því bara tveir eftir í stjórn. Bjarki búinn að standa sig vel sem formaður Kjartans í þessi þrjú ár en nú þarf Jói að redda félaginu á næsta ári. Á myndinni er Jói að taka við formennsku frá Bjarka.

Ég og Anna leituðum aftur til hennar Torhild-ar (sem er ein af leikskólakennarunum hans Kára) með að redda pössun. Hún samþykkti það og gátum því ég og Anna bæði farið á blótið þetta árið. Ég fór reyndar fyrr heim (maður verður víst að skipta þessu jafnt á milli sín) til "leysa" Torhild af.

En góð helgi að baki og nú er það bara skólinn på mandag...

Engin ummæli: