10.1.13

Skráning í Laugaveginn 2013

Þá er maður búinn að skrá sig í Laugavegshlaupið sem fer fram 14. júlí næsta sumar. Fyrir þá sem ekki vita er Laugavegurinn 55km gönguleið frá Landmannalaugum að Þórsmörk (Húsadal).

Það hefur ekki verið mikið um skipulagðar hlaupaæfingar hjá mér eftir að ég kom heim frá Boston í apríl, kom mér aðeins af stað fyrir Reykjarvíkurmaraþonið þar sem ég fór í hálf maraþon en eftir það rétt verið að dúlla mér 0-3x sinnum í viku. Hef þó verið duglegur að mæta í Crossfit í vinnunni 2x í viku og ætti að vera búinn að styrkja mig eitthvað.

Nú þarf maður að fara setjast niður og koma sér upp einhverju æfingaprógrammi til að notast við fram að sumri. Ekki búinn að ákveða hvort ég reyni að fara í vormaraþon sem hluti af undirbúning en það á eftir að koma í ljós.

Ætla að reyna að blogga aðeins um æfingar og þannig lagað á þessum vettvangi á næstunni.

Engin ummæli: