Mætti í janúar útgáfu af Poweradehlaupinu í gær. Sannarlegt haustveður í lofti; auðir stígar, næstum því logn og smá úði, sem sagt kjör aðstæður.
Fór af stað á eftir fyrsta hópnum og var ekkert að reyna að elta menn þar enda formið ekki þannig þessa dagana. Rúllaði áfram á ca. 3:45ish pace-held ég, allavega sléttu kaflana og gekk það fínt. Mjóbakið var eitthvað aðeins að stríða mér en mun betri en fyrir mánuði síðan þegar ég stífnaði allur upp og ekkert gekk. Missti tvo framúr mér á 3-4km og svo voru tveir aðrir rétt á undan mér, hafði þessa fjóra alltaf í augnsýn en náði ekki alveg að loka bilinu.
Yfir stokkinn eftir ca. 7,5km og þá hélt ég að þeir væri farnir en svo í Rafstöðvarbrekkunni eða eiginlega eftir rafstöðvarbrekkuna þá fór ég að ná að loka bilinu og eftir undirgöng náði ég að stinga mér framúr tveimur af þessum fjórum og enda nokkrum sek á eftir Guðna vinnufélaga. Endaði á ca. 38:20 og nokkuð sáttur við það.
Skemmtilegt hlaup og mikið um ný andlit og allt í einu er maður orðinn hálf gamall í þessum hlaupabransa.
Hérna er smá myndband frá hlaupinu í gær:
Engin ummæli:
Skrifa ummæli