Veðrið var ekki alveg að gera sig þegar maður mætti niður í Hörpu ca. 11.30 á gamlársdag. Kalt ca. -1°C og mikill vindur. Var ekki vel upplagður í upphitun og ekki mikil trú á hlaupaforminu.
![]() |
| Að koma í mark. Mynd frá Hlaup.is |
Ég og Birkir héldum áfram og Róbert Gunnars bættist í hópinn rétt áður en við beygðum af Sæbrautinni niður í Vatnagarða. Við skiptumst á að brjóta vindinn og gekk það fínt. Mikill vindur á köflum en var kaflaskiptur. Flugum upp aðal brekkuna í brautinni (upp Klettagarðana upp á Sæbraut). Eftir það kom smá kafli með hliðarvind og svo var mótvindur seinustu 2 km.
Náði að halda orkunni sæmilegri en réð einfaldlega ekki við meiri hraða. Enda lítið um markvissar æfingar frá því í apríl.
3 mín lakari tími frá því í fyrra en brautin var eitthvað styttri þá og einnig betra veður + betri form.
Sáttur við þetta hlaup og alltaf gaman að hlaupa í þessu stemnings hlaupi. Endaði í 13. sæti á 38:48.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli