Það endaði svo þannig að ég, Örvar Steingrímsson, vann tipp leikinn í vinnunni með 44 leiki rétta af 64 leikjum. Það gerir um 69% nýting sem verður að teljast mjög gott.
Ég fæ 24.750 kr fyrir að lenda í fyrsta sætinu og þá lenti ég í öðru sæti í keppninn hjá vinahópnum og þar koma 6.000 kr í hús.
Þannig að heildar verðlaun eru 30.750 en þar sem ég eyddi 3.000 kr í að taka þátt þá eru nettó verðlaun 27.750.
Þannig að nú eru komnar 30.750 kr upp í barnavagn og ekki veitir af því enda barnavagnar ekkert það ódýrasta sem fæst út í búð.
Aðeins aftur að HM sjálfri. Ég hélt með Ítalíu í úrslitaleiknum og var því mjög ánægður með sigur þeirra. Hefði vilja sjá Cannavaro vera valinn mann mótsins en þar sem kosið var í hálfleik þá vissu menn ekki að Zidane myndi skíta upp á bak.Ég veit alveg að Materazzi er skíthæll en hvað með það, menn eiga bara ekki að skalla menn, sama hvað sagt er við þá. Leiðinlegt að snillingur eins og Zidane skulu enda ferilinn á svona hátt.
Það var mikið um að vera í gær. Í fyrsta lagi útskrifaðist Anna úr Háskóla Íslands sem Hjúkrunarfræðingur og fékk alveg mjög flotta meðal einkunn og er ég að sjálfsögðu voðalega stoltur af henni, enda búinn að bíða eftir þessu í 4 ár :)