Fór að sjá Inception í gær. En Christopher Nolan leikstýrir og er með Leonardo DiCaprio, Joseph Gordon-Levitt og Ellen Page í aðalhlutverkum. Búinn að bíða spenntur eftir því að sjá þessa mynd enda hafa fyrri myndir Nolan verið mjög góðar. Inception er alveg frábær mynd í allastaði, vel leikin og flott leikstjórn. Flóknu efni komið vel til skila. Myndin fer hægt af stað en mögnuð spenna í lokin.
Inception fær 9 af 10 í einkunn.
Sýnir færslur með efnisorðinu Kvikmyndir. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Kvikmyndir. Sýna allar færslur
18.8.10
28.2.09
Eitthvað leiðinlegt leynist í þokunni
Ég varð þeirri ólukku aðnjótandi að horfa á The Mist í gærkvöldi. Þvílík ömurleg heit hef ég ekki augum litið í langan tíma. Samband sonarins og pabbans var mjög ansalega skrifað og mjög mótsagnakennt sem og öll myndin eiginlega. Spólaði í gegnum endann á myndinni því samkvæmt venju verð ég nú að klára myndirnar sem ég byrja að horfa á.
The Mist fær 2 stjörnur hjá mér.
En vildi nú bara vara fólk við þessari leiðinlegu mynd, ég asnaðist að horfa á hana vegna þess að mér fannst sýnishornið úr henni nokkuð áhugavert.
Þá horfði ég einnig á The Happening sem er nýjasta mynd M. Night Shyamalan (Sixth Sense). Ekki er hún góð en mun betri en þessi leiðindi sem The Mist var. M Night hefur ekki beint verið að heilla mig undan farin ár, það eru um 9 ár frá því að hann gerði síðast góða mynd en það var Unbreakable.
The Happening fær 5 stjörnur hjá mér.

Merki:
Kvikmyndir
23.2.09
Mínar myndir
Undanfarið hafa nokkrar aldeilis fínar myndir rennt í gegnum flakkarann. Ég hef núna í ca. eitt og hálft ár verið duglegur að skrá hvaða myndir ég hef horft á og gefið einkunn á imdb.com. Ég veit ekki afhverju en persónulega finnst mér mjög gaman að hafa svona lagað skráð einhverstaðar til að geta flett því upp eftirá, svona er innra nördið í mér eða bara nördið ég.
Núna er ég svo búinn að setja svona "forrit" inná Facebook síðuna mína sem sýnir hvaða myndir ég er búinn að horfa á, voða sniðugt allt saman.

Um helgina sá ég bæði The Curious Case of Benjamin Button og The Wrestler, báðar mjög góðar en mér fannst The Wrestler ívið betri og frábærlega leikin bæði af Mickey Rourke og Marisa Tomei. Algjör skandall að Rourke hafi ekki fengið Óskarinn fyrir bestan leik í aðalhlutverki. En hérna eru þær myndir sem ég hef séð nýlega.
The Curious Case of Benjamin Button (2008) 8
The Wrestler (2008) 9
Seven Pounds (2008) 8
Slumdog Millionaire (2008) 9
Zack and Miri Make a Porno (2008) 8
Deception (2008/I) 7
Kung Fu Panda (2008) 7
The Air I Breathe (2007) 7
Babylon A.D. (2008) 5
Taken (2008/I) 8
Madagascar: Escape 2 Africa (2008) 7

11.4.08
Tónlist í kvikmyndum
Mér finnst alltaf stór plús við kvikmyndir þegar þær eru með góða tónlist, annað hvort eitthvað ferskt og nýtt eða þá gamalt og gott. Væri reyndar hægt að bæta við öðrum flokki með lögum sem maður myndi aldei heyra ef það væri ekki fyrir tilstuðlan myndarinnar.
Hérna eru nokkur frábær lög að mínu mati, vær så god!
Kvikmynd: Things We Lost in the Fire (2007)
Lag: The Velvet Underground - Sweet Jane (1970)
Kvikmynd: The Darjeeling Limited (2007)
Lag: Peter Sarstedt - Where Do You Go To (My Lovely) (1969)
Kvikmynd: Into the Wild (2007)
Lag: Eddie Vedder - Guaranteed (2007)
Kvikmynd: Juno (2007)
Lag: The Moldy Peaches - Anyone Else But You (2001)

Kvikmyndir,
Tónlist
5.4.08
Áhorf nr. 1
Into the Wild (2007)Þessi bíómynd er gerð eftir bók sem fjallar um ævintýramanninn Christopher McCandless. Hún fjallar um ungann mann sem ákveður eftir að klára menntaskóla að fara og búa í náttúrunni. Gefur allar sínar eigur og húkkar sér far út í óbyggðirnar. Á leiðinni lendir hann í skemmtilegum ævintýrum og hittir skemmtilegar persónur.
Frábær mynd í alla staði. Góð leikstjórn, frábær leikur og sagan sögð á mjög skemmtilegan hátt þar sem sagan ferðast fram og aftur í tíma.
Hérna er bíóbrot úr myndinni.
Einkunn: Into the Wild fær 9.
Dan in Real Life (2007)Fjallar um ekkil sem á þrjár dætur og fer að hitta alla fjölskyldu sína í fjölskylduboð. Þar hittir hann mjög áhugaverða konu sem hann virðist fella fyrir bara til að komast að því að þetta er kærasta bróður hans. Góð skilgreining er Drama, rómantík og grín.
Veit ekki alveg hvað maður á að segja um þessa mynd. Hún daðrar við framhjáhald og það lætur manni alltaf líða hálf ansaleg í bíómyndum en aftur á móti eru á ferð greinilegir sálufélagar og það gerir þetta hálf vandræðalegt allt saman. Svo eru þetta fjölskylduboð (sem nær yfir nokkra daga) full mikið "happy happy joy joy" á tímum. En Steve Carell leikurinn ekkilinn mjög vel og lætur manni finna til með honum. Eftir að maður varð foreldri þá er einhvernveginn öðruvísi að horfa á svona myndir, maður finnur meira til með persónunum (kannski er maður bara að verða svona gamall).
Fín mynd sem gengur lítið út á grín, bara svo fólk haldi ekki að það sé að fara sjá Steve Carell í sínu vanalega hlutverki. Hérna er bíóbrot úr myndinni.
Einkunn: Dan in Real Life fær 7.
In the Valley of Elah (2007)Þetta mynd fjallar um föður sem leitar af týndum syni sínum sem er nýkomin heim úr stríðinu í Írak. Hann fær svo hjálp frá staðarlöggunni sem aftur á móti fær litlar þakkir fyrir frá bæði starfsfélögum og svo einnig herlöggunni. Þessi mynd er nokkurskonar stríðsádeila á stríðið í Írak.
Ágætis drama / ráðgátu bíómynd en ég bjóst við henni betri.
Einkunn: In the Valley of Elah fær 6.
Snakes on a Plane (2006)Skemmtilegri mynd en ég bjóst við, eins og nafnið gefur til kynna þá fjallar myndum um snáka í flugvél. Samuel L. Jackson er að flytja vitni í máli gegn einhverjum glæpon sem fyllir flugvélina af snákum.
Heilalaus spennumynd sem þjónar alveg sínu hlutverki.
Einkunn: Snakes on a Plane fær 6.
Michael Clayton (2007)Lögfræði tryllir/drama um Michael Clayton sem er svona "reddari" fyrir stórt lögfræði fyrirtæki, vinur hans missir svo alveg vitið í einhverju risastóru máli og er hann fenginn til að sjá um vin sinn og kemst að ýmsu sem best er að fara ekkert nánar útí.
Nokkuð langt síðan að ég sá hana en þetta er mjög góð mynd.
Einkunn: Michael Clayton fær 8.
En stóra spurning er hvað finnst þér? Hefur þú séð eða langar þig til að sjá eitthvað af þessum bíómyndum?
Merki:
Kvikmyndir
4.4.08
Áhorf nr. 2
The Darjeeling Limited (2007)Þessi mynd fjallar um þrjá bræður hafa ekki talað saman í heilt ár og hittast í Indlandi til að "finna sig aftur og ná að tengjast". Wes Anderson leikstýrir og skrifar þessa mynd þannig að maður veit nokkurn vegin við hverju er að búast. Hann hefur meðal annars gert myndir eins og Rushmore, The Royal Tenenbaums og The Life Aquatic with Steve Zissou, allt frekar sérstakar myndir sem sumir fíla og aðrir hata. Þessi mynd er ekkert ósvipuð í stíl og aðrar myndir frá Anderson og því má búast við að þeim sem líkar ekki fyrri verk hans eiga að halda sig frá þessari mynd. Hérna er bíóbrot úr myndinni.
Persónulega finnst mér nokkuð gaman af þessum myndum þó svo ég sé nú ekkert að missa mig yfir þessu. Það er sérstök stemmning yfir þessum myndum og eins sem heldur henni gangandi er skemmtilegur frásagnar stíll. Owen Wilson, Adrien Brody og Jason Schwartzman eru góðir í sínum hlutverkum.
Einkunn: The Darjeeling Limited fær 6.
Varg Veum - Bitre blomster (2007)Myndin fjallar um einkaspæjarann Varg Veum sem leitar af ungri stelpu sem týnist og inni söguna flækjast starfsmenn efnaverksmiðja. Þetta er myndaröð með nokkrum myndum sem gerð er eftir skáldsögum og svipar til Erlends á Íslandi og svo Kurt Wallander í Svíþjóð. Kvikmyndatakan og allir litir eru svipaðir og íslenskum bíómyndum.
En fín spennumynd en ekkert meira en það, hef alltaf lúmskt gaman af því að horfa á norskar bíómyndir.
Einkunn: Varg Veum - Bitre blomster fær 6.
American Gangster (2007)Frábært glæpamynd (löggu/bófa mynd) í alla staði. Góður leikur og skemmtilegt handrit. Fjallar um upprisi fíkniefnakóng (Denzel Washington) í New York og svo löggu (Russell Crowe) sem er að vinna í sérstakri sérsveit sem vinnur gegn fíkiefnum. Flott mynd ekkert flóknara en það. Hérna er bíóbrot úr myndinni.
Einkunn: American Gangster fær 8.
The Heartbreak Kid (2007)Er ekki kominn tími á að Ben Stiller fari að finna sér nýtt hlutverk? Ætlaði að horfa á eitthvað léttmeti eftir frábæran og langan páskadag en þá gerði maður þau mistök að velja þessa mynd.
Þessi mynd fjallar um mann sem ákveður eftir nokkur misheppnuð sambönd að demba sér útí djúpulaugin og giftast eftir stutt samband. Svo kemst hann náttúrulega að því að gellan er klikkuð og þau ná engan vegin saman. Hittir svo sína sönnu ást í brúðkaupsferðinni og þannig gengur þetta út myndina. Þessi mynd byrjar ágætlega en svo missir hún marks og maður verður hálf pirraður á að horfa á þessa vitleysu, og yfirleitt þykir mér þannig myndir leiðinlegar. Hérna er bíóbrot úr myndinni.
Einkunn: The Heartbreak Kid fær 4.
Aðrar myndir:
The Brothers Solomon (2007) fær 3.
Balls of Fury (2007) fær 5.
Big (1988) fær 5.
En stóra spurning er hvað finnst þér? Hefur þú séð eða langar þig til að sjá eitthvað af þessum bíómyndum?
Merki:
Kvikmyndir
13.3.08
Sjónvarpsgláp
Rendition (2007)Eins og imdb segir "A CIA analyst questions his assignment after witnessing an unorthodox interrogation at a secret detention facility outside the US". Mynd sem fjallar um njósnir og pyntingar Bandaríkjanna á erlendri grundu. Jake Gyllenhaal og Reese Witherspoon fara með tvö af þremur aðalhlutverkum og eru þau bæði mjög góð í þessari mynd. Yfirleitt er ég ekki mikið fyrir svona pólitík myndir en þessi var bara nokkuð góð. Flott hvernig tvær sögur eru sagðar og koma svo saman í lokin.
Einkunn: Rendition (2007) fær 7.
3:10 to Yuma (2007)
Vestri sem fjallar um bónda (Christian Bale) sem fellst á það að hjálpa yfirvaldinu að flytja alræmdann glæpamann (Russell Crowe) til Yuma þar sem fangalest á að sækja hann. Þetta er endurgerð á vestra frá því 1957. Ég er alltaf veikur fyrir góðum vestrum og var ég nokkuð ánægður með þessa. Flottir leikarar og fínn söguþráður og fín spenna.Einkunn: 3:10 to Yuma (2007) fær 8.
The Guardian (2006)Mynd fjallar um björgunarsundmenn í bandarísku strandgæslunni þar sem Kevin Costner og Ashton Kutcher fara með hlutverk eldri björgunarmanns og svo yngri nemanda. Svona hetju formúlu mynd, svona drama/spennumynd með ágætisleik.
Einkunn: The Guardian (2006) fær 6.
King of California (2007)Þetta er grínmynd sem fjallar um feðgin með æði sérstakt samband, sem leita af fjársjóði í Claifornia. Pabbinn sem leikinn er af Michael Douglas er ný sloppin af geðsjúkrahúsi og svo er það dótturinn sem hefur þurft að sjá fyrir sér sjálf síðan hún var 15 ára, leikin af Evan Rachel Wood.
Góð grínmynd í léttari kantinum, er í anda Little Miss Sunshine en ekki nærri því jafn góð. Vel leikin og skemmtilegir karakterar. Mæli með henni sem vilja horfa á eitthvað sniðugt en kannski ekki sprenghlægilegt.
Einkunn: King of California (2007) fær 7.
Merki:
Kvikmyndir
6.3.08
Karlmenni?
Í gærkvöldi horfði ég á kvikmyndina Suburban Girl í staðinn fyrir að sitja á pöbb, drekka bjór og horfa á Liverpool rústa lánlausu liði West Ham 4-0. Gerist þetta eitthvað karlmannlegra? En áhuginn á fótbolta er að kvikna hægt og rólega aftur.
Aftur að Suburban Girl. Held að ég ráðleggi fólki frá þessari mynd. Hún fjallar um unga konu sem nælir sér í eldri mann og hvernig samband þeirra þróast. Ég veit ekki hvað kom fyrir mig þegar ég bauð Önnu að horfa á þessa mynd en ég hélt að þetta væri þessi venjulega klisja (maður verður stundum að vera góður við konuna). Fjallar um voðalega lítið einhvern vegin, ekkert í sjálfu sér illa skrifuð en er bara um ekki neitt. En þess má geta að ótrúlegt en satt fór Sarah Michelle Gellar ekki mikið í taugarnar á mér.Einkunn: Suburban Girl fær 4.
Merki:
Fótbolti,
Kvikmyndir
3.3.08
Gone Baby Gone og Once
Um helgina runnu tvær myndir í gegnum DVD spilarann og verða þær teknar fyrir hér.
Gone Baby Gone (2007)
Ben Affleck leikstýrir og bróðir hans Casey fer með aðalhlutverk í mynd sem gerð er eftir bók sem höfundur bókarinnar Mystic River skrifaði og samnefnd kvikmynd var gerð eftir.
Fjallar um að einkaspæjari (Casey) er ráðin til að hjálpa lögreglunni að finna stelpu sem var rænt. Þetta er Crime/Drama/Mystery mynd sem lýsir myndinni ágætlega. Ben Afflect gerir gott mót með þessa mynd og Casey ásamt öllum hinum eru góðir/góð í sínum hlutverkum. Góð mynd sem ég mæli með.
Einkunn: Gone Baby Gone fær 8.
Once (2006)
Á sunnudaginn var svo horft á Once sem fékk Óskarinn fyrir besta frumsamda lagið, það vakti athygli mína og er ég búinn að hlusta á þetta snilldar lag með Glen Hansard and Marketa Irglova. Hérna er það fyrir áhugasama, það heitir Falling Slowly.
Ég var eitthvað að fikta í myndunum mínum á meðan þessi rann í gegn og var það í sjálfu sér ágætt, þeas að hafa eitthvað að gera. Ekki að hún er leiðinleg bara þetta er meira svona tónlistarmynd, fjallar um tvo tónlistarmenn sem hittast í Dublin, taka upp plötu og dragast að hvort öðru. Áhugaverð mynd með frábærri tónlist en fólk þarf að vita hvað það er að fara útí.
Einkunn: Once fær 6.
Aðrar myndir sem ég hef horft á eru á meðal annars:
Death Proof (2007) fær 8 í einkunn.
The Simpsons Movie (2007) fær 6 í einkunn.
Astrópía (2007) fær 7 í einkunn.
The Brave One (2007) fær 6 í einkunn.
Death Sentence (2007) fær 6 í einkunn.
No Reservations (2007) fær 3 í einkunn.
Vacancy (2007) fær 5 í einkunn.
Wedding Daze (2006) fær 4 í einkunn.
Gone Baby Gone (2007)Ben Affleck leikstýrir og bróðir hans Casey fer með aðalhlutverk í mynd sem gerð er eftir bók sem höfundur bókarinnar Mystic River skrifaði og samnefnd kvikmynd var gerð eftir.
Fjallar um að einkaspæjari (Casey) er ráðin til að hjálpa lögreglunni að finna stelpu sem var rænt. Þetta er Crime/Drama/Mystery mynd sem lýsir myndinni ágætlega. Ben Afflect gerir gott mót með þessa mynd og Casey ásamt öllum hinum eru góðir/góð í sínum hlutverkum. Góð mynd sem ég mæli með.
Einkunn: Gone Baby Gone fær 8.
Once (2006)Á sunnudaginn var svo horft á Once sem fékk Óskarinn fyrir besta frumsamda lagið, það vakti athygli mína og er ég búinn að hlusta á þetta snilldar lag með Glen Hansard and Marketa Irglova. Hérna er það fyrir áhugasama, það heitir Falling Slowly.
Ég var eitthvað að fikta í myndunum mínum á meðan þessi rann í gegn og var það í sjálfu sér ágætt, þeas að hafa eitthvað að gera. Ekki að hún er leiðinleg bara þetta er meira svona tónlistarmynd, fjallar um tvo tónlistarmenn sem hittast í Dublin, taka upp plötu og dragast að hvort öðru. Áhugaverð mynd með frábærri tónlist en fólk þarf að vita hvað það er að fara útí.
Einkunn: Once fær 6.
Aðrar myndir sem ég hef horft á eru á meðal annars:
Death Proof (2007) fær 8 í einkunn.
The Simpsons Movie (2007) fær 6 í einkunn.
Astrópía (2007) fær 7 í einkunn.
The Brave One (2007) fær 6 í einkunn.
Death Sentence (2007) fær 6 í einkunn.
No Reservations (2007) fær 3 í einkunn.
Vacancy (2007) fær 5 í einkunn.
Wedding Daze (2006) fær 4 í einkunn.
Merki:
Kvikmyndir
15.2.08
Ég og Iniana
Það verður gerð ferð á þessa mynd í sumar, ekki spurning. Verst að fyrri myndirnar eru heima á Íslandi, þarf samt varla að rifja þær upp því þær hafa fengið að fljóta í ófá skipti í gegnum video tækið gamla og einnig DVD spilarann.
Hérna er þetta í betri gæðum:
http://www.topp5.is/?sida=biobrot&id=728
Hérna er þetta í betri gæðum:
http://www.topp5.is/?sida=biobrot&id=728
Merki:
Kvikmyndir
25.1.08
Kvikmyndir á árinu 2007
Ætla að setja inn lista með myndum sem ég sá á árinu 2007 (og aðeins inní 2008). Finnst ekki rétt að taka bara myndir sem komu út á árinu heldur þær myndir sem ég sá á árinu, alveg sama hversu gamlar þær eru. Þar sem ég fer ca. aldrei í bíó þessa dagana þá horfði ég á flestar þessara mynda (allar nema ein) á dvd eða svipuðu formati.
Einkunna skalinn er frá 0 til 10 og dæmi ég myndirnar alltaf á "The Internet Movie Databese (IMDb)". Mér finnst oft erfitt að gefa myndum einkunir og því er þetta nú ekkert algilt, og einnig breyti ég einkunn sem mynd fær eftir vanlega íhugun um gæði myndarinnar. Mér finnst einnig mjög erfitt að gefa mynd 10 og 0. En það væri hægt að segja að skalinn væri nokkurn vegin svona hjá mér:
7-10: Góðar myndir sem ég mæli með.
6: Svona mitt á milli.
4-5: Allt í lagi ef þú hefur ekki mikið með tímann að gera.
0-3: Algjört drasl, slepptu þessu, forðastu þessar myndir eins og heitann eldinn.
Hérna er svo linkur á listann minn á imdb.
En listinn í öllu sínu veldi:
Bestu myndirnar voru svo:
Grínmynd: Superbad (2007)
Spennumynd: Live Free or Die Hard (2007)
Drama: Freedom Writers (2007)
Svo eru margar myndir sem ég hlakka mikið til að sjá eins og:
There Will Be Blood, No Country for Old Men, Juno, American Gangster, The Kite Runner og Michael Clayton. Vonandi á ég eftir að sjá fleiri góðar myndir og færri slæmar myndir 2008.

| Superbad (2007) | 9 |
| 300 (2006) | 9 |
| Casino Royale (2006) | 9 |
| The Departed (2006) | 9 |
| Freedom Writers (2007) | 9 |
| Little Miss Sunshine (2006) | 9 |
| Live Free or Die Hard (2007) | 9 |
| Apocalypto (2006) | 8 |
| Blades of Glory (2007) | 8 |
| Blood Diamond (2006) | 8 |
| The Bourne Ultimatum (2007) | 8 |
| Eastern Promises (2007) | 8 |
| Fracture (2007) | 8 |
| Hot Fuzz (2007) | 8 |
| The Illusionist (2006) | 8 |
| The Incredibles (2004) | 8 |
| Knocked Up (2007) | 8 |
| The Last King of Scotland (2006) | 8 |
| Mýrin (2006) | 8 |
| Mr. Brooks (2007) | 8 |
| The Pursuit of Happyness (2006) | 8 |
| Reign Over Me (2007) | 8 |
| Smokin' Aces (2006) | 8 |
| Sometimes in April (2005) (TV) | 8 |
| United 93 (2006) | 8 |
| Zodiac (2007/I) | 8 |
| Clerks II (2006) | 7 |
| Disturbia (2007) | 7 |
| Evan Almighty (2007) | 7 |
| Jarhead (2005) | 7 |
| The Kingdom (2007) | 7 |
| Laberinto del fauno, El (2006) | 7 |
| The Last Kiss (2006) | 7 |
| Mr. & Mrs. Smith (2005) | 7 |
| Music and Lyrics (2007) | 7 |
| The Prestige (2006) | 7 |
| Shark Tale (2004) | 7 |
| Shooter (2007) | 7 |
| Stranger Than Fiction (2006) | 7 |
| Underworld: Evolution (2006) | 7 |
| "Brandvägg" (2006) (mini) | 6 |
| Black Snake Moan (2006) | 6 |
| Cars (2006) | 6 |
| Children of Men (2006) | 6 |
| Flags of Our Fathers (2006) | 6 |
| Flyboys (2006) | 6 |
| Fritt vilt (2006) | 6 |
| Hannibal Rising (2007) | 6 |
| Hitch (2005/I) | 6 |
| The Holiday (2006) | 6 |
| I Now Pronounce You Chuck & Larry (2007) | 6 |
| Johnny Dangerously (1984) | 6 |
| King Arthur (2004) | 6 |
| Night at the Museum (2006) | 6 |
| Perfect Stranger (2007) | 6 |
| Pirates of the Caribbean: At World's End (2007) | 6 |
| Rocky Balboa (2006) | 6 |
| Surf's Up (2007) | 6 |
| Tarzan (1999) | 6 |
| Alpha Dog (2006) | 5 |
| Crank (2006) | 5 |
| Deja Vu (2006) | 5 |
| The Devil Wears Prada (2006) | 5 |
| Employee of the Month (2006) | 5 |
| The Good Shepherd (2006) | 5 |
| Hollywoodland (2006) | 5 |
| Lady in the Water (2006) | 5 |
| The Lookout (2007) | 5 |
| Next (2007) | 5 |
| Spider-Man 3 (2007) | 5 |
| Wild Hogs (2007) | 5 |
| 1408 (2007) | 4 |
| 88: 88 Minutes (2007) | 4 |
| American Pie Presents: Beta House (2007) (V) | 4 |
| The Brothers Grimm (2005) | 4 |
| Idiocracy (2006) | 4 |
| John Tucker Must Die (2006) | 4 |
| The Nanny Diaries (2007) | 4 |
| The Number 23 (2007) | 4 |
| Sunshine (2007) | 4 |
| Blind Dating (2006) | 3 |
| Catch and Release (2006/II) | 3 |
| Ghost Rider (2007) | 3 |
| Good Luck Chuck (2007) | 3 |
| I Know Who Killed Me (2007) | 3 |
| Babel (2006) | 2 |
| Breaking and Entering (2006) | 2 |
| Broken Flowers (2005) | 2 |
| Silent Hill (2006) | 1 |
Bestu myndirnar voru svo:
Grínmynd: Superbad (2007)
Spennumynd: Live Free or Die Hard (2007)
Drama: Freedom Writers (2007)
Svo eru margar myndir sem ég hlakka mikið til að sjá eins og:
There Will Be Blood, No Country for Old Men, Juno, American Gangster, The Kite Runner og Michael Clayton. Vonandi á ég eftir að sjá fleiri góðar myndir og færri slæmar myndir 2008.
Merki:
Kvikmyndir
19.11.07
Á dagskrá...
Ekki búinn að horfa á mikið af tilvonandi óskarsverðlauna myndum undanfarið, en svona er þetta stundum.
Pirates of the Caribbean: At World's End (2007)
Seinasti myndinni (að ég held) í þessum þríleik. Þessi mynd er svona svipuð og mynd númer 2 (Pirates of the Caribbean: Dead Man's Chest). Býður ekki uppá neitt nýtt og er bara verið að teygja lopann ennþá lengra. Þetta er samt góður lopi og alveg hægt að hafa gaman af þessari mynd. En í sjálfu sér er fyrsta myndin lang best.
Það gekk eitthvað erfiðlega að muna eftir hvernig mynd númer tvö endaði og því var hún nokkuð ruglingslega í byrjun. Það segir kannski allt sem segja þarf um mynd númer tvö.
Johnny Depp er alltaf góður og það sama má segja um Geoffrey Rush og svo er Keira Knightley er alltaf sæt.
Einkunn: Pirates of the Caribbean: At World's End fær 7
The Good Shepherd (2006)
Mynd sem Robert De Niro leikstýrir og fjallar um njósnir í stríðinu og hvernig CIA verður til. Þunglyndisleg, hæg og lítið spennandi mynd með Matt Damon í aðalhlutverki.
Einkunn: The Good Shepherd fær 5
Surf's Up (2007)
Ég og Kári horfðum á þessa mynd í nokkrum hlutum eftir að hann kom heim af leikskólanum. Alveg fínasta mynd um brimbretta mörgæsina Cody Maverick. Jeff Bridges leikur Big Z sem er svona svipuð týpa og The Dude (þú átt bara að vita hver það er) og er skemmtilegur í því hlutverki.
Annars man ég eftir því þegar ég var í straumfræði, back in the days, þá var kennarinn að tala um hversu erfitt væri að gera vatn (straum) eðlilegan í þessum teiknimyndum. Það hefði tekist fyrst í Shrek að mig minnir (man ekki alveg hvaða mynd það var). En allavega er vatnið og sjórinn í þessari mynd mjög vel gerður, bara fyrir þá sá eru mikið að spá í straumfræði.
Hérna er svo feminista dómur um þessa mynd sem nokkuð vit er í.
Einkunn: Surf's Up fær 6
Cars (2006)
Ég og Kári horfðum einnig á þessa mynd saman í einhverri leti. Alveg ágæt mynd þar sem Owen Wilson er mjög góður sem hin hrokafulli Lightning McQueen. Var reyndar búinn að lesa bókin fyrir Kára nokkuð oft og þekkti því söguþráðinn nokkuð en það skemmdi í sjálfu sér ekki mikið enda ekki mjög djúp mynd. Fín mynd fyrir börnin en er samt ekki eins góðar fullorðins myndir eins og The Incredibles og Shrek.
Einkunn: Cars fær 6
Sunshine (2007)
Vísindaskáldsögu bull. Þessi mynd fær 7,3 á imdb sem ég bara skil ekki, einhverjir Star Trek nörrar sem finnst þetta skemmtilegt. Ég er ekki þar á meðal.
Einkunn: Sunshine fær 4
Wild Hogs (2007)
Maður hefur nú stundum gaman að horfa á heimskulegar gamanmyndir og þessi fer undir þann flokk. Skil nú ekki alveg hvernig er hægt að fá svona fína (og ekki fína en fræga) leikara til að leika í svona mynd. En allt er hægt ef peningar eru fyrir hendi. Fólk veit hvað það er að fara út í þegar það horfir á þessa mynd og fær í sjálfu sér það.
Einkunn: Wild Hogs fær 5

29.10.07
Það sem ég mæli með er...
Nokkuð síðan ég kom seinast með uppfærslu á því sem ég er búinn að vera horfa á. Allavega ætti fólk að vera óhætt að horfa á myndir sem fá yfir 5 í einkunn en getur alveg eytt tímanum sínu í eitthvað annað en að horfa á myndir sem fá 4 og niður. Hérna kemur það nýjast sem horft hefur verið á í Moholti. Gaman væri nú að fá álit annarra kvikmyndaspekinga.
Hot Fuzz (2007)
Góð grín spennumynd, Bretarnir klikka seint þegar kemur að húmor.
Einkunn: Hot Fuzz fær 8
Blades of Glory (2007)
Það eru fáir gamanleikarar sem komst með tærnar þar sem Will Ferrell hefur hælana. Algjör snillingur og fer á kostum í þessari grínmynd. Ég grét af hlátri í einu af skauta atriðinu, það er eitthvað svo fyndið að sjá tvo kallmenn skauta listdans. Má samt ekki taka hana of alvarlega.
Einkunn: Blades of Glory fær 8
Blind Dating (2006)
Við afrekuðum það eitt kvöldið að horfa á tvær myndir á einu kvöldi. Eitthvað sem við höfum ekki gert síðan Kári kom í heiminn. En sem betur fer var hin myndin Blades of Glory, því þessi er mjög svo slæm. Illa leikin og bara léleg mynd, maður hefði átt að vita betur en eins og oft áður þá blekkist maður á því hvað er vinsælt á vídeóleigunum. Getur alveg sleppt henni, þó svo að frúnni langi að sjá rómantíska gamanmynd, því Önnu fannst hún alveg jafn leiðinleg.
Einkunn: Blind Dating fær 4
Breaking and Entering (2006)
Þessi mynd er titluð sem drama/romance/thriller en ég sé mjög svo lítinn romance og thriller yfir svona lélegri mynd. Jude Law að halda framhjá þessari með einhverri sem á fátt sameiginlegt með fegurð. Hrein leiðindi sem ber að forðast.
Einkunn: Breaking and Entering fær 2
Fracture (2007)
Mjög skemmtileg crime/drama/thriller með skemmtilegu plotti. Ryan Gosling (Notebook) er eitthvað fyrir stelpurnar.
Einkunn: Fracture fær 7
Reign Over Me (2007)
Ein besta drama mynd ársins, mjög flott mynd.
Einkunn: Reign Over Me fær 8
United 93 (2006)
Öðruvísi heimildarmynd um 9/11, góð mynd.
Einkunn: United 93 fær 8
Deja Vu (2006)
Denzel Washington í einhverri vísindaskáldskaps vitleysu. Söguþráðurinn er frekar asnalegur en jú, ágætis spennumynd, ágætt í neyð.
Einkunn: Deja Vu fær 5
Perfect Stranger (2007)
Ágætis glæpómynd með Bruce Willis og Halle Berry.
Einkunn: Perfect Stranger fær 6
Disturbia (2007)
Þessi kom manni nokkuð á óvart, skemmtilega spennandi.
Einkunn: Disturbia fær 7
Flyboys (2006)
Ágæt flugmynd/stríðsmynd en ekki mikið meira en það.
Einkunn: Flyboys fær 6
The Lookout (2007)
Voðalega þunglynd mynd eitthvað, hélt ég væri að fara horfa á meiri spennu en allir voða óhamingju samir eitthvað, nær rétt í 5, mæli samt ekki með henni.
Einkunn: The Lookout fær 5
Knocked Up (2007)
Ein besta grínmynd ársins, eða á ég að segja rómantíska grínmynd? Allavega mjög skemmtileg mynd.
Einkunn: Knocked Up fær 8
Mr. Brooks (2007)
Kevin Costner góður í þessari skemmtilegu crime/drama/thriller.
Einkunn: Mr. Brooks fær 8
Apocalypto (2006)
Spennadi og skemmtileg mynd eftir Mel Gibson, frekar subbuleg en það gerir þetta bara skemmtilegra.
Einkunn: Apocalypto fær 8
The Number 23 (2007)
Leiðinleg hrollvekja, drama, mystery...
Einkunn: The Number 23 fær 4
Jæja þetta er orðið alltaf langt...næst ætla ég að láta líða styttra á milli svona pósta, ætla að reyna að halda áfram að gefa öllum myndum sem ég sé á árinu einkunn. Vonandi nennir einhver að lesa þetta og gefa sitt álit.

28.10.07
Delux
Það var sko delux kvöld í gærkvöldi, borðaður góður matur og horft á góða bíómynd.Kvöldmaturinn byrjaði á forrétt, á boðstólnum var Mozzarella ostur með tómötum og sallati (vantaði basilíku til að gera þetta 100% en mjög gott engu að síður). Myndin var reyndar tekin seinustu helgi en álíka flott í gær.
Í aðalrétt var norskt lamb með rauðvínssósu, kartöflum og sallati, og ekki má gleyma að rauðvín var drukkið með. Gat ekki verið eldað betur af meistarakokkinum henni Önnu.
Svo í eftirrétt var hjólað út í búð og keyptur karmellu/hnetu ís, einnig mjög góður þó svo að ekki hafi verið lagt mikil vinna í þennan rétt.
Eftir þetta og þegar Kári var kominn í háttinn var svo horft á Mýrina eftir Baltasar/Arnald. Mjög flott mynd og góð þó svo að spennan sé nú ekkert að drepa mann. Góð saga sem sögð er mjög sannfærandi í þessari mynd. Er alveg að fíla stílinn hjá Baltasari, myndirnar hans eru alltaf gerðar svo kaldar og einhvernveginn einmannalegar, þetta passar mjög vel við íslenska landslagið.Ágúst Eva var mjög góð sem dóttir Erlends en enn og aftur verð ég að lýsa yfir vonbrigðum með að Ingvar E. Sigurðsson sé settur í öll almennileg hlutverk sem bjóðast á þessu landi. Ekkert út á hann að setja varðandi þessa mynd, hann leikur þetta mjög vel og í sjálfu sér alveg sannfærandi sem Erlendur. En samt er hann ekki þessi Erlendur sem maður var búinn að ímynda sér. Við skulum ekki einu sinni fara útí það hvernig leikaravalið á Ingvari eyðilagði fyrir mér myndina Kaldaljós, sem var uppáhalds bókin sem ég las í menntaskóla. Svíarnir gera þetta vel með vali á Kurt Wallander og manni fannst Erlendur vera svona svipuð týpa og hann. Einnig fannst mér ekki passa að Erlendur keyrði um á glænýjum Range Rover, löggur eiga að vera á druslum.
En þrátt fyrir að mér fannst Ingvar ekki passa nógu vel í hlutverk Erlends er myndin engu að síður mjög góð. Það var ekki laust við að allar landslags senurnar í myndinni létu mann sakna gamla klakans.
Einkunn: Mýrin fær 8
Merki:
Daglegt,
Kvikmyndir
4.9.07
Nóg að gera í sjónvarpinu...
Lítið að gera í skólanum = nóg að gera í sjónvaprinu. Hérna er það sem maður er búinn að vera að horfa á undanfarna daga.
Zodiac (2007)
Mynd byggð á sannsögulegum atburðum um raðmorðingja í San Francisco. Góð mynd með góðum leikurum, heldur löng en heldur manni alveg við efnið.
Einkunn: Zodiac fær 8
Sometimes in April (2005)
Vinafólk okkar hérna í Þrándheimi sem kemur frá Rúanda lánaði okkur þessa mynd. Þau sögðu að hún lýsir betur þjóðarmorðunum í Rúanda heldur en Hotel Rwanda. Alveg ótrúleg mynd í alla staði, maður trúir þessu varla að svona geti átt sér stað án þess að nokkur maður geri neitt. Erfitt að horfa á svona myndir en eitthvað sem allir hafa gott af.
Árið 1994 var ég 15 ára unglingur og horfa á Pulp Fiction á meðan tæpum treföldum fjölda íslendinga var slátrað á 100 dögum og vesturlöndin gerðu ekki neitt. Þarf eiginlega skrifa þessa mynd til að leyfa öðrum að sjá hana.
Einkunn: Sometimes in April fær 8
Evan Almighty (2007)
Dýrasta grínmynd í heimi var bara allt í lagi, ekkert meira en það. Bjóst ekkert við miklu og því alveg hægt að hafa gaman af henni en þetta er nú samt ekkert meistaraverk.
Einkunn: Evan Almighty fær 7
The Prestige (2006)
Svipar aðeins til myndarinnar The Illusionist en samt ekki eins góð. Ég er náttúrulega svo mikill séní að ég fattaði plottið löngu áður en telst eðlilegt. En góð mynd engu að síður.
Einkunn: The Prestige fær 7
Stranger Than Fiction (2006)
Bara helvíti fín mynd, nokkuð skrítin en góð. Vissi að ég væri ekki að fara horfa á grínmynd þannig að hún olli mér ekki vonbrigðum. Will Ferrell er einn besti gamanleikarinn í dag, ekki spurning og hann stendur sig mjög vel í þessari mynd.
Einkunn: Stranger Than Fiction fær 7
Alpha Dog (2006)
Justin bara nokkuð góður en var ekki að fíla þessa mynd. "Allt í lagi mynd" en mæli ekkert sérstaklega með henni. Margar betri krimma myndir til í dag.
Einkunn: Alpha Dog fær 5
1408 (2007)
Mér hefur alltaf þótt John Cusack góður leikari en þessi mynd flokkast seint með hans bestu myndum. Ekki nógu góð hryllingsmynd, ég myndi ekki mæla með að horfa á hana.
Einkunn: 1408 fær 4
Held að þetta sé allt í bili :)

16.8.07
Áhorf sumarsins
Því miður hef ég ekki horft á margar góðar myndir í sumar. Hérna eru þær nýjustu sem ég hef séð.
The Last King of Scotland (2006)
Frábær mynd byggð á raunverulegum atburðum. Forest Whitaker er frábær sem Idi Amin. Mæli hiklaust með þessari.
Einkunn: The Last King of Scotland fær 8
Shooter (2007)
Horfði á þessa þegar Anna var á kvöldvakt. Flott AST (allt sprent í tætlur) mynd en ekki horfa á hana með frúnni.
Einkunn: Shooter fær 7
Hannibal Rising (2007)
Sæmileg mynd en kemst ekki nálægt fyrri myndunum um Hannibal.
Einkunn: Hannibal Rising fær 6
Spider-Man 3 (2007)
Kláruðum þessa í vikunni og varð fyrir nokkrum vonbrigðum þó svo að ég hafi verið varaður við. Þetta dans atriði út á götu er eitt það versta í kvikmyndsögunni (ásamt einu atriði í The Sweetest Thing). Þá var einnig sorglegt að sjá Spider stökkva og lenda fyrir framan 100 fm (fermetra) Bandarískan fána, úff hvað það var slæmt. Eigum við að fara eitthvað útí Tobey Maguire að reyna að vera cool eða vondur.
Hver var svo vondi kallinn í þessari mynd?
Ekki ánægður með hana þó svo að tæknibrellur og hasaratriðin hafi verið flott.
Einkunn: Spider-Man 3 fær 5
88 Minutes (2007)
Al Pacino ekki að gera góða hluti með að leika í þessari mynd. Allt gert til að þú "fattir" ekki plottið á kostnað myndarinnar. Var bara einhvernveginn ekki að virka.
Einkunn: 88 Minutes 5
Catch and Release (2006)
Ætlaði að vera góður við Önnu og horfa á eina rómantíska gamanmynd. Í stuttu máli var þessi hvorugt rómantísk né fyndin á neinn hátt, algjör leiðindi. Veit ekki hvað Kevin Smith er að spá stundum, og svei mér þá ef Jennifer Garner sé ekki farinn að fara jafn mikið í taugarnar á mér eins og Cameron Diaz.
Einkunn: Catch and Release 3
Þetta er allt í bili, lét svo vita hvað þið eigið að forðast þegar ég er búinn að horfa á eitthvað nýtt.

3.7.07
Svalasti karakter kvikmyndasögunnar?
Gerast þeir eitthvað svalari en John McClane? Held að svarið sé nei.
Ég og Árni fórum í nostalgíu ferð á Die Hard 4.0 í gærkvöldi og báðir með varan á gagnvart þeirri nýju, því hinar þrjár eru náttúrulega tær meistaraverk.
En þegar við gengum út úr Regnboganum vorum við sælir og glaðir eins og 16 ára unglingar 1995 þegar við löbbuðum heim úr Mjóddinni eftir að hafa séð Die Hard with a Vengeance. Ég var mjög ánægður með þessa mynd og var John McClane svalari en svalt og harðari en hart. Hafði áhyggjur að Mac gaurinn myndi ekki passa þarna inn en hann var nokkuð fyndinn og svo voru bæði Kevin Smith og vondi gaurinn góðir.
Eitt atriði sem gekk ekki alveg upp og svo hefði James Bond aðeins mátt missa sig í þotu atriðinu en það hafði samt ekki áhrif á gæði myndarinnar.
Fyrst þegar ég heyrði um Die Hard fjögur var ég mjög smeikur en eftir að hafa séð hana get ég alveg sagt að hún á alveg heima með hinum þremur meistaraverkunum og er alveg pottþétt ein skemmtilegasta hasarmynd sem maður hefur séð í langan tíma.
Einkunn: Die Hard 4.0 fær 9
Ég og Árni fórum í nostalgíu ferð á Die Hard 4.0 í gærkvöldi og báðir með varan á gagnvart þeirri nýju, því hinar þrjár eru náttúrulega tær meistaraverk.En þegar við gengum út úr Regnboganum vorum við sælir og glaðir eins og 16 ára unglingar 1995 þegar við löbbuðum heim úr Mjóddinni eftir að hafa séð Die Hard with a Vengeance. Ég var mjög ánægður með þessa mynd og var John McClane svalari en svalt og harðari en hart. Hafði áhyggjur að Mac gaurinn myndi ekki passa þarna inn en hann var nokkuð fyndinn og svo voru bæði Kevin Smith og vondi gaurinn góðir.
Eitt atriði sem gekk ekki alveg upp og svo hefði James Bond aðeins mátt missa sig í þotu atriðinu en það hafði samt ekki áhrif á gæði myndarinnar.
Fyrst þegar ég heyrði um Die Hard fjögur var ég mjög smeikur en eftir að hafa séð hana get ég alveg sagt að hún á alveg heima með hinum þremur meistaraverkunum og er alveg pottþétt ein skemmtilegasta hasarmynd sem maður hefur séð í langan tíma.
Einkunn: Die Hard 4.0 fær 9
Merki:
Kvikmyndir
2.7.07
Nýtt í horfi
Smokin' Aces (2006)
Töff mynd, langt síðan að maður hefur séð svona svala krimma mynd.
Einkunn: Smokin' Aces fær 8
Pan's Labyrinth (2006)
Mjög svo skrítin mynd en samt góð.
Einkunn: Pan's Labyrinth fær 7
Crank (2006)
Hrein AST (Allt sprent í tætlur) mynd en er samt ekki að gera sig. Mæli frekar með The Transporter.
Einkunn: Crank fær 5
Employee of the Month (2006)
Heimsk grínmynd sem hægt er að hafa gaman af.
Einkunn: Employee of the Month fær 5
Next (2007)
Sama gildir hér og um Ghost Rider, Nicolas Cage er bara ekki svalur.
Einkunn: Next fær 5
Ghost Rider (2007)
Hvenær ætlar Nicolas "Why couldn't you put the bunny back in the box?" Cage að átta sig á því að hann er ekki hasarmyndahetja, hann á að leika fyllibyttu og aumingja. Reyndar var þessi snillingur í myndinni, man einhver eftir Road House :)
Einkunn: Ghost Rider fær 4

22.6.07
Fyrir Star Wars nörda
Ekki mikið að frétta héðan. Hérna er smá fyrir Star Wars nördana, algjör snilld!
Merki:
Kvikmyndir
26.5.07
Rocky & co.
Ekki mikið að frétta héðan um þessar mundir. Er vanalega kominn niður í skóla rétt yfir kl. 8 og svo er lagt af stað heim um kl. 6. Þá hefst eldamennska og snæðingur en eldamennskan fellst aðalega í því að setja pizzu inní ofn eða kannski pulsur í pott. Svo fer það eftir orku hvað maður nennir að læra lengi á kvöldin. Þetta myndi ég segja að væri svona "typical day" hjá mér seinustu tvær vikur ca, interesting!
Horfði á Rocky Balboa í gær. Engin Adrian (lesis með Stallone hreim) núna og boxið alveg í lágmarki. Myndin hefur nú fengið ágæta dóma en aftur á móti hefur það verið í umræðunni að hún hafi fengið fína dóma því seinustu Rocky myndir hafa verið svo lélegar, segi nú ekkert um það. En alveg ágætis mynd. Veit samt ekki alveg hvort hún stendur undir 7, 6 á imdb.
Eikunn: Rocky Balboa fær 6.
Það er greinilegt að Stallone hefur ekki nennt að koma sér oft í form því nýja Rocky myndin og svo Rambo myndin koma nú með ansi stuttu milli bili, ágætt að gera þetta bara í einu!
En nokkuð fyndið með nöfnin á þessum tveimur myndum, Rocky Balboa og John Rambo, ekkert að vera hafa þetta alltof flókið.
Hérna er svo smá forsmekkur af Rambo.
Það er alveg á hreinu að maður þarf nú eitthvað að rifja upp gömlu perlurnar áður en maður horfir á þessa!

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)