12.7.05

Breiðablik

Tónleikarnir í gær með Antony and the Johsnons voru mjög góðir þó svo að ég sé svekktur yfir útgáfunni af "For Today I Am A Boy", útgáfan á plötunni er mun betri. Annars voru mörg góð lög og gott "spuna" lag um að hann hafi verið Cavewomen í fyrra lífi. Mjög fyndið þó svo að sumir hverjir hafa nú hlegið full mikið, samanber nördið við hliðina á mér, en ekki Anna sko.
Þá var fína og fræga fólkið að sýna sig og sjá aðra þarna og voru Mugison, Hildur Vala og Páll Óskar þar á meðal. En góðir tónleikar og mæli ég með nýju plötunni hans "I Am a Bird Now" og einnig eldri plötunni.

Þá gerðu Breiðablik og hk 1-1 jafntefli og eru hk menn eitthvað óánægðir með það. Þá sýnir gulli markmaður hk mikinn þroska og segir að hk hafi tapað stigum á móti miðlings fótboltaliði. Ef Breiðablik er miðlungsfótboltalið með 23 stig efst í fyrstu deildinni ósigraðir, hvað er hk þá þegar þeir eru með 10 stig?

Kveðja Örlish and the Johnsons...

Engin ummæli: