21.7.05

Sumar

Þá er loksins komið sumar. Búið að vera frábært veður í vikunni og þá er maður nú skyldugur til að rífa sig upp af rassgatinu og gera eitthvað.

Ég og Kiddi fórum í golf í staðinn fyrir að horfa á Liverpool spila við TNS. Það var ekki slæm ákvörðun því veðrið var vægast sagt frábært. Tókum einn hring á Ljúflinginum og spilaði ég mitt besta golf í sumar. Ég fór völlinn á 44 höggum og Kiddi á 47, þannig að ég vann, hehehe. Annars er þetta lítill bar þrjú völlur þannig að ekki misskilja höggfjöldann.

Svo í gær var það línuskautar í Kópavogsdal, hvar annarsstaðar? og bolti um kvöldið. Svona á sumarið að vera.

Annars eru stórliðið TLC að spila í kvöld í Árbænum og vænti ég að sjá alla þar...

Þá er ég líka að fara á tónleika með Emiliönu Torrini í kvöld á Nasa og í tilefni þess er hér eitt tónleika lag með henni.
Emiliana Torrini - Heartstopper (Live At Hamburg)

Engin ummæli: