Þá er alveg snilldar helgi lokið og vinnuvikan byrjuð með “bangó” blíðu. Ég og Anna fórum upp í bústað á föstudaginn og vorum endalaust lengi að komast út úr Mosfellsbæ. En loksins þegar það hringtorg var búið þá komast maður á skrið og flaug í gegnum Hvalfjörðinn í engri umferð og glampandi sól.
Á laugardeginum mætti svo góður hópur og var stefnan tekin á Þórisstaði í golf. Stefán Karlsson vann golfmótið á 42 höggi og í öðru sæti var svo ég sjálfur á 51 höggi. Gísli (55), Kiddi (58) og Gummi Sverris (59) voru svo seinastir. Þá vann Anna kvenkyns mótið og Silla kom stutt á eftir. Ekki má gleyma Kristófer sem “vann” ungliða mótið og Emblu sem “vann” hundamótið. Enda vorum við í ekkert smá flottu holli. Ég og Anna með hund og Stebbi og Silla með Kristó í barnavagni. Ekki oft sem þú sérð það á golfvellinum.
Eftir golf var svo farið í sund á Hlöðum og svo beint upp í bústað aftur að grilla.
Það var svo gott veður að allir borðuðu úti á palli og vorum menn berir á ofan mestan tíman. Eftir matinn var svo þrautskipulagt Bottcia mót þar sem Guðmundur Sverrisson fór með sigur af hólmi. Um klukkan 10 var svo farið inn í bústað og spilað actionary þar sem bræðurnir ógurlegu Gummi og Kiddi fóru með sigur af hólmi eftir að hafa spilað mjög alvarlega. Gummi að banna Kidda að fá sér meiri bjór og svona. En svo fór fólk eitt af öðru í hátt þegar umræður kvöldsins voru komnar út í mjög gáfulegar umræður.
Á sunnudaginn var ekki alveg jafn gott veður en var á laugardeginum en alveg nokkuð gott samt. En dagskráin var svipuð þar sem allir fóru í golf með aðeins lakari árangri og einnig nú með einum hundi meira, því Katrín kom með sinn hund, og eftir það var svo farið í sund og brunað heim eftir frábæra helga og frábært veður.
Ég lofa að myndirnar koma inn í kvöld ef ég fæ þær frá Víðigrundarbræðrum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli