19.7.05

Mercury tilnefningar

Hérna er listinn með Mercury tilnefningunum, ég raðaði hljómsveitinum upp eftir mínu mati á besta diskinum, ekkert heilagt samt.
Bloc Party – Silent Alarm
Coldplay – X&Y
Antony And The Johnsons – I Am A Bird Now
Kaiser Chiefs – Employment
The Go! Team – Thunder, Lightning Strike
KT Tunstall – Eye To The Telescope
Maximo Park – A Certain Trigger
Hard-Fi –Stars Of CCTV
MIA – Arular
The Magic Numbers – The Magic Numbers
Seth Lakeman – Kitty Jay
Polar Bear – Held On The Tips Of Fingers
Þær hljómsveitir sem ég hef heyrt eru allar mjög góður. Hef ekki heyrt í The Magic Numbers, Seth Lakeman og Polar Bear.
Besti diskurinn að mínu mati er Bloc Party. Frábær diskur og er Bloc Party í efsta sæti á autioscrobbler listanum mínum. Coldplay diskurinn mjög góður eins og einnig Antony sem var nú á Nasa í seinustu viku. Þá mæli ég með samt að fólk tékki á Kaiser Chiefs, annars skýrir listinn sig sjálfur. Búinn að heyra nokkur lög með Hard-Fi og eru þau mjög góð. Annars bara nokkuð ánægður með þessar tilnefningar.

Þá var Liverpool að kaupa Peter Crouch frá Southampton á 7 milljónir punda. 7 MILLJÓNIR??? Er ekki allt í lagi, var Owen ekki seldur á 8? Kom mér reyndar á óvart að Portsmouth keypti hann á 5 millur. Ekki ánægður með þessi kaup og djöfull vona ég samt að hann eigi eftir að verða okkar Koller.
Þetta hlýtur að þýða endalok Baros hjá Liverpool.

Frábært að vera vinna inni í dag...er alltaf að átta mig betur og betur á því að maður eigi bara vera í byggingarvinnu á sumrin.

Engin ummæli: