19.7.06

Barnavagn

Á mánudaginn var farið og gerð enginn smá innkaup fyrir fjölskylduna. Við förum og keyptum eitt stykki barnavagn og engann smá vagn. Brio Kombi varð fyrir valinu enda var hann á tilboði og um að gera að stökkva á svoleiðis enda eru barnavagnar ekki gefins.
En eins og ég segi er þetta algjör torfærukerra með drif á öllum hjólum, 6 gíra , með velti grind og fjaðrar mjög vel, kannski smá ýkjur en hann virkar allavega fínn.
Eins og ég sagði áðan er barnavagnar ekki ókeypis og fengum við Brio-inn á 60 þús og var það með 15 þús afslætti. Þannig að maður er alltaf að "græða".

Annars er alltaf að styttast í bumbubúann og núna eru innan við 4 vikur (vonandi) að hann (bumbubúinn) komi í heiminn. Við skulum allavega vona að það verði ekki 6 vikur.

Svo eiga skóla málin að fara klárast í vikunni.

Allt að gerast...

Engin ummæli: