22.7.06

Golf á Vatnsleysuströnd

Þá er golf sumarið byrjað hjá mér. Ég, Reynir og Kiddi fórum seint á fimmtudaginn í bongó blíðu vestur til Vatnsleysustrandar í golf. Reynir á heiður skilið fyrir að bjóða okkur Kidda, takk fyrir það.
Annars vann Reynir og ég held að ég hafi verið í öðru sæti og Kiddi í seinasta en ég á eftir að fá nákvæmar tölur frá Reyni.
Hérna eru svo Kiddi og Reynir á 5 holu.
Þá er annað brúðkaup sumarsins í kvöld. Geir (frændi hennar Önnu) og Hrefna eru að fara gifta sig í Kópavogskirkju (hvar annar staðar?). Það verður örugglega fjör, spurning hvort að Anna dansi upp á borði eins og vanalega...
Kveðja
Örvar golfari

Engin ummæli: