Það er þá orðið ljóst að ég (ásamt konu og barni) er að fara flytja til Þrándheims í Noregi. Fékk loksins svar frá skólanum og ég er kominn inn í NTNU í Þrándheimi (sjá mynd að ofan).Fyrir þá sem ekki vita þá er stefnan tekin á Meistaranám í Byggingarverkfræði og er ég að fara í Burðarþol eða Konstruksjon á móðurmálinu.
Í sambandi við íbúðarmál þá eru þau komin á hreint því ég fékk svar í seinustu viku um að við værum komin með íbúð, þannig að það er allt að gerast.
Stefnan er að ég fari út á undan og svo kemur Anna og krílið út þegar þau eru til. Þetta verður "magni"ficent svo maður vitni nú bara í Tommy Lee.
Það er því ljóst að ágúst verður mjög spennandi mánuður þar sem nóg verður að gerast. Eitt stykki barn á leiðinni, flytja út og fara í skóla.
Med vennlig hilsen
Örvar Norski
Engin ummæli:
Skrifa ummæli