Ég er alveg búinn að átta mig á hvaðan lífshamingja Íslendinga kemur frá.Eftir því sem kaldara og ógeðslegra veður úti því betra er að vera undir sæng að sofa. Eftir því sem betra er að sofa því glaðari og betur upp lagður er maður = hamingjusamur. Ef manni er of heitt á nóttinnu þá getur maður ekki sofið eða allavega á maður erfiðara með þá yðju. Þar af leiðindum er maður úrillur og ekki vel upp lagður = óhamingjusamur.
Datt þetta bara í hug á leiðinni á klósettið áðan.
Þess ber að geta að Kári svaf illa í nótt og því svaf fjölskyldan illa. Það er samt strax komið gat í kenninguna mína því ég er bara í fínu skapi í dag. Kannski er það útaf veðrinu, hvað veit ég.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli