Það voru gerð stórinnkaup fyrir heimilið í gær. Húsbóndinn skrapp í Elko og keypti eitt stykki ísskáp eða réttara sagt kæli- og frystiskáp. Þar sem maður var farinn að þurfa að vera með heyrnarhlífar vegna láta í ísskápnum þá var alveg kominn tími á að kveðja gamla góða Candy ískápinn sem ég fékk ókeypis frá vinkonu mömmu fyrir ca. 8 árum. Erfitt fyrir mig sem Liverpool maður að kveðja Candy ísskápinn en allt tekur einhvertíman enda og í staðinn verður bara Calsberg bjór í ísskápnum.Fyrir valinu far útlitsgallaður Electrolux ískápur af gerðinni ERB34321X svo allir séu með þetta alveg á hreinu. Þar sem við erum yfirleitt með fullt af myndum á ísskápnum þá er það í góðu lagi að hafa rispu á framhliðinni þar sem henni verður hvort sem er kaffært í myndum.
Smá tækniupplýsingar:
175 cm stálskápur með anti-fingrafarahúð. Kæliskápurinn er 223 lítra, innréttaður með 4 rimlahillum og 2 stórum og djúpum grænmetiskúffum. Frystirinn er 92 lítra með 3 skúffum.
Þar hafi þið það.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli