Í undirbúningi fyrir maraþon eru góðir hlaupaskór mjög mikilvægir. Hlaupnir eru margir km í hverri viku og því mikið álag á fæturnar. Síðan ég byrjaði að hlaupa markvisst, í október 2009, þá hef ég keypt mér þrjú pör af skóm. Ég hef átt tvö pör af
Asics Nimbus 11 o
g eitt par af New Balance RC769. Fyrstu mánuðina, þar á meðan 10km undir 40mín í áramótahlaupi ÍR, hljóp ég á eld gömlum Asics Kayano sem voru löngu útúr slitnir.
 |
| Asics Nimbus 11 |
Í byrjun árs 2010 keypti ég mér mína fyrstu Nimbus 11 skó og líkaði vel við þá, svo aftur í ágúst keypti ég aðra, báðir voru þeir á 25% afslætti í Intersport á ca. 24.000 kr. Keypti svo NB RC769 skó af vini mínum á slikk, en það eru racer-skór, aðalega notaðir í stuttum keppnum. En eins og kom að í byrjun þá er margir km hlaupnir í undirbúningi fyrir maraþon og því fer maður í gegnum mörg pör af skóm í þannig undirbúningi. Ég er nýbúinn að leggja fyrri Nimbus 11 skónum mínum (1500km) og allt í einu, áður en ég vissi af, þá eru hinir Nimbus 11 allt í einu komnir í 1250km. Það er talað um að ending á hlaupaskóm sé frá ca. 800km-1500km, góðir skór fara í 1200km-1500km.
Nú eru ca. 5 vikur í vormaraþonið og skórnir mínir á tæpasta vaði og ég í miklu hlaupa magni þessa stundina, ca 400km á mánuði. Í svona álagi eru góðir skór mjög mikilvægir og er ég byrjaður að finna fyrir því að skórnir eru að renna sitt skeið á enda. Þannig að það var fátt annað í stöðunni en að drífa sig að fjárfesta í nýjum skóm.
Búinn að vera skoða mína möguleika innanlands og finnst mér Hlaupaskor.is einn besti kosturinn. Þetta eru bara svo mikil útgjöld fyrir einhverja vöru sem dugar kannski í 3-4 mánuði. Almennt verð á Nimbus 12 er 28.000kr. Ég fór því að skoða aðeins á netinu og sá að ég gat keypt tvenn pör af skóm á sama verði og eitt par hérna heima. Hvernig stendur á þessu að ekki sé hægt að bjóða ódýrari skó hérna heima? Eru tollarnir svona ótrúlega háir, er sendingagjaldið eða álagning hjá söluaðila sem drífur verðið svona hátt upp. Þetta verðlag gerir ekkert annað en að fólk leitar allra annara leiða en að kaupa af innlendum aðilum. Fái vini og ættingja til að kippa með einu bari næst þegar það fer til útlanda.
 |
| Asics Nimbus 12 |
 |
| Nike Pegasus+27 |
Endaði með að kaupa tvö ný pör af skóm af verslun á netinu sem heitir sportsdirect.com. Annars vegar Asics Nimbus 12 og hins vegar Nike Pegasus+27. Vona að þessir skór eigi eftir að reynast mér jafnvel og Nimbus 11 hafa gert.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli