Sýnir færslur með efnisorðinu Maraþon. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Maraþon. Sýna allar færslur

23.4.16

Vormaraþonið FM - 1. sæti á 2:45:40

Vaknaði kl. 5:45 og fékk mér minn hefðbundna morgunmat. Harfragrautur, með chia, döðlum, bláberjum og banana. Vatn og smá GU drykkur.


Var mættur niður við Stokkinn um 30 mín fyrir hlaup. Rok og rigning lýsa aðstæðum þennan morguninn best eins og veðurspáin var búin að gera ráð fyrir, en það er alltaf erfiðara að mæta og staðinn og upplifa veðrið. Ætlaði upphaflega að vera í stuttbuxum og háum sokkum en eftir upphitun (í auka fötum) þá skipti ég úr stuttbuxum í CWX hlaupa buxurnar mínar, þar sem ég var með áhyggjur af kuldanum og þá sérstaklega í mótvindi út á nes.  Var svo í þunnum CWX langermabol og einum bol yfir það og með buff. Tók stutta upphitun en náði aðeins að koma púlsinum af stað og smá liðleika í lappirnar. Eins og oft áður þá fannst manni lítið að þessu veðri þegar maður var komin út og búinn að hita upp.

Brautin er sett upp þannig að hún byrjar við Rafveituhúsið í Elliðaárdal og svo fer maður eins og leið liggur í gegnum Fossvoginn alveg útá Ægissíðu með lúppu frá HR að Loftleiðum og svo veginn tilbaka niður að Nauthól. Úti á Ægissíðu er svo snúningspunktur og þaðan er svo hlaupin sama leið tilbaka. Þessi "hringur" er svo farinn tvisvar í heilu maraþoni og einu sinni í hálfu maraþoni.

Maraþon hlauparar leggja af stað við Rafveituhúsið
Um 20 hlauparar voru mættir á start línuna þennan morguninn. Spáin var búin að gera ráð fyrir um 7-10 m/s úr vestri og rigningu á köflum. Það var því mótvindur Fossvoginn og út á Ægissíðu og svo meðvindur tilbaka. Það er mjög erfitt að hlaupa á jöfnum hraða við þessar aðstæður og því ákvað ég að ekki vera spá of mikið í hraðann heldur að reyna að einbeita mér að því að vera með púslinn í lagi og reyna að láta mér líða vel í brautinni. Búinn að reyna að taka æfingar á einhverjum jöfnum ákveðnum hraða í miklum vindi og er það mjög erfitt.

0 km  - 5 km (Stokkur-HR)
Talið niður og hópurinn lagði svo af stað á slaginu 8. Gekk fínt að rúlla í byrjun út að Víkingsheimilinu en þá fór púlsinn eitthvað af stað, brautin aðeins  upp á við og svo mótvindur og hægði því á mér reyndi svo að rúlla þetta sæmilega áfram. Leið vel og var að passa að halda púlsinum niðri. Tók 1 vatnsglas hjá HR og reyndi að drekka aðeins. 
 1 km split og púls voru:
3:50 - 155
4:04 - 160
3:57 - 158
3:55 - 157
4:00 - 158
Kláraði fyrstu 5 km á 19:46

 5 km - 10 km (HR - Ægissíða)
Hélt áfram að rúlla sæmilega og púlsinn hélst niðri, ef ég fór yfir160 í púsl þá fannst mér ég vera að erfiða of mikið og var því kannski meira að hlaupa eftir tilfinningu. Var sæmilegur mótvindur í skóginum fyrir ofan HR en svo fékk maður meðvind niður í áttina að Nauthólsvík, fínt að breyta aðeins um takt og hlaupa hraðar og fá smá hvíld frá mótvindi. Eftir það voru svo erfiðir rúmir 3 km að snúningspunkti úti á Ægissíðu. Líðan góð þrátt fyrir mótvind og rigningu.
3:57    157
3:49    155
3:51    156
4:01    158
3:59    158
Kláraði næstu 5 km á 19:37 og 10 km á 39:23

10 km - 15 km (Ægissíða - Loftleiðir)
Snúningspunkturinn var svo í tæplega 11 km, tók eitt gel rétt áður en ég kom að snúningspunktinum og greip tvö glas og reyndi að koma niður smá vökva. Eftir þetta kom meðvindur og maður rúllaði vel af stað, þá fór hraðinn úr tæplega 4 mín pace niður í 3:50, fann mig mjög vel á þessum kafla en vildi samt ekki fara of hratt því það var svo mikið eftir af hlaupinu. Þarna byrjaði maður að mæta öðrum maraþon hlaupurum sem var gaman og ekki eins einmannalegt. Ég var með forustu um að giska 500m - 700m á næsta mann. Kom svo mótvindur frá Nauthólsvík að Loftleiðum.
3:58    157
3:48    156
3:50    153
3:53    152
3:57    156
5 km á 19:26 og 15 km á 58:49

15 km - 20 km (Loftleiðir - Víkinsheimilið)
Auðvelt að rúlla þennan kafla allan í meðvindi og púlsinn mjög lár á þessum tíma. Var samt farinn að stífna í kálfum. Var að rúlla á 3:53-3:55 og púls aðeins 151-155 slög. Eftir á hefði maður hugsanlega geta nýtt sér meðvindinn eitthvað betur á þessum kafla en þarna fann ég aðeins fyrir kálfum og sömuleiðis nóg eftir. Reyndi að drekka á vatnsstöðinni við HR.
3:55    155
3:53    151
3:55    154
3:53    154
3:53    153
5 km á 19:29 og 20 km á 1:18:18

20 km - 25 km (Víkinsheimilið - Stokkur - Kirkjugarður)
Fór í gegnum hálft maraþon á tímanum 1:23:00 og leið bara mjög vel. Fékk mér 1 gel áður en ég kom að snúningspunktinum og greip svo tvö glös að drekka og reyndi að koma einhverjum vökva niður. Guðni fylgdi mér svo ca. 1 km að Víkinsheimilinu í sinni upphitun. Hann var allan tímann fyrir aftan mig og ég passaði mig á að láta hann alls ekki taka vind eða hjálpa til á neinn hátt. Var ennþá með góða orku og rúllaði þennan kafla bara mjög vel, gaman að mæta aftur maraþonhlaupurunum í Fossvoginum.
3:48    153
3:56    155
3:56    157
3:54    157
3:55    154
5 km á 19:29 og 25 km á 1:37:47

25 km - 30 km (Kirkjugaður - Skerjafjörður)
Mótvindur áfram og leið vel. Fékk mér vökva við HR. Rúllaði vel frá Loftleiðum og út fyrir endabraut en þá tók mótvindurinn aftur í. Orkan fín og lappirnar góðar þrátt fyrir stífa kálfa.
4:06    156
4:01    154
3:55    152
3:52    153
4:07    155
5 km á 20:01 og 30 km á 1:57:48

30 km - 35 km (Ægissíða - Nauthólsvík)
Fann fyrir þreytu í mótvindinum úti á nesi og tók fljótt gel til að reyna að ná orkunni upp, fannst það nauðsynlegt þrátt fyrir að fá ekki að drekka strax eins og er best. Var samt áfram rólegur og ekkert að streða of mikið í mótvindinum. Gott að snúa svo við og vera á leiðinni tilbaka. Bæði andlega og svo einnig í meðvindi. Fékk mér sömuleiðs að drekka á vatnsstöðinni. Sá að ég var kominn með góða forustu á 2 sætið og þyrfti líklega ekki að hafa áhyggjur að hann myndi ná mér, nema ef eitthvað kæmi uppá. Gaman að mæta aftur öllum maraþon hlaupurunum.
4:06    154
4:04    154
3:50    153
3:51    154
3:52    153
5 km á 19:43 og 35 km  á 2:17:31

35 km - 40 km (Nauthólsvík - Fossvogur)
Búinn með 39 km að koma inn í Fossvoginn
Stutt eftir, um 3 km eftir
 Fékk svo aftur mótvind frá Nauthólsvík að Loftleiðum en þarna var minna eftir og maður þorði meira að reyna að sig, var farið að styttast í þetta og gekk bara mjög vel á þessum kafla. Mætti svo fyrstu hálfmaraþon hlaupurunum fljótlega og restinni sem var mjög gaman. Datt svo aðeins niður hraðinn og orkustigið frá Kirkjugarðinum inn í Fossvoginn  en náði svo aftur að koma mér af stað því það var stutt eftir.
3:55    158
3:53    157
3:55    154
3:59    153
3:52    156
5 km á 19:34 og 40 km á 2:37:05

40 km - 42,2 km (Fossvogur - Stokkur)
Mjög stutt eftir, meðvindur og aðeins niður á við og því gekk þessi kafli mjög vel en auðvitað var maðurinn farinn að erfiða aðeins. Lappirnar voru ótrúlega góðar og fannst ég ráða vel við hraðann. Skipti þarna í fyrsta skipti yfir á heildar tímann og sá að ég gæti fræðilega bætt PB mitt frá því í Berlín í haust. Áttaði mig ekki alveg á hvað langt væri eftir en að það yrði líklega erfitt. Gaf samt vel í en áttaði mig svo á því þegar ég kom inn í Elliðaárdal að þetta væri líklega ekki að nást (þeas að bæta PB tímann minn). Var samt ótrúlega ánægður á hvaða tíma ég væri að klára á miðað við að væntingar fyrir hlaup voru ekki miklar. Gaman sömuleiðis að vita að Anna væri í markinu með strákana. Óttar og Kári komu svo hlaupandi með mér í lokin og var það mjög gaman. Kom svo í mark á tímanum 2:45:40 og í fyrsta sæti.
3:53    157
3:35    159
1:07    163
2,2 km á 8:36 og 42,2 km á 2:45:40

Nýkominn í mark
 Var ótrúlega góður eftir að ég kom í mark. Tók því rólega og reyndi að koma einhverri næringu í mig. Svo var maður lengi að spjalla við aðra hlaupara og bíða eftir verðlaunaafhendingu.  Ólafur Austmann Þorbjörnsson lenti í öðru sæti og náði undir 3 klst og svo var Daníel Reynisson í 3 sæti og náði sínu besta maraþoni.

Ólafur Austmann Þorbjörnsson í 2 sætði, Örvar Steingrímsson í 1 sæti og Daníel Reynisson í 3 sæti.
Búnaður:
Skór: Adidas Adios Boost 2
Sokkar: CW-X compression sokkar
Buxur: CW-X compression buxur
Peysa: CW-X léttur hlaupa langerma bolur
Bolur: Nike hlaupa bolur

Næring:
5 GU energy gel. 1 fyrir hlaup og svo 4 í hlaupinu.
Drakk á hverri vatnsstöð vatn og orku þar sem það var í boði.

Þakkir:
Félag maraþonhlaupara fær frábærar þakkir fyrir vel útfært hlaup og sömuleiðis allir sjálfboðaliðarnir sem hjálpuðu til. Ekkert smá gott að geta boðið uppá Vor- og haustmaraþon til að þurfa ekki að fara alltaf til útlanda til að hlaupa á þessum árstíma.
Anna og fjölskyldan fær sömuleiðis þakki fyrir að leyfa mér að stunda þetta sport eins mikið og ég get. Óendanlega þakklátur fyrir það.
 T-mark fyrir stuðninginn við næringu og búnað. Var að drekka salt og steinefna blöndu dagana fyrir hlaup til að halda næringu og vökva málum í lagi. Hef verið að nota GU energy gel sem eru bæði bragðgóð og fara mjög vel í magann. CW-X fatnaðurinn sem styðja mjög vel við alla vöðvahópa og veita góðan stuðning í svona þrekraun.

Strava:

22.4.12

Boston marathon 2012

Flugum út til Boston á laugardeginum og tókum því nokkuð rólega um kvöldið. Á sunnudeginum var farið á Expo-ið, númerið og annað nauðsynlegt var sótt og svo var rölt um svæðið og hlaupadót skoðað. Gleymdi mér aðeins í að smakka orkudrykki og annað matarkyns en hætti því fljótt því ekki vildi ég koma maganum í uppnám daginn fyrir hlaup. Eftir Expo-ið fórum við í skoðunarferð um bæinn og maður reyndi eftir bestu getu að taka því rólega. Fór svo uppá hótel og tók því rólega fram að kvöldmat.
Fórum þá út að borða í North end og enduðum á Mothers Anna‘s og fékk mér þar eins einfaldan pasta rétt og ég gat valið. Snemma í háttinn til að vera tilbúin fyrir morgundaginn.

Vaknaði um kl. 5 og beið hálfpartinn eftir því að leggja að stað niður að Tremont Street þar sem við Íslendingarnar ætluðum að hittast áður en við myndum leggja af stað til Hopkinton. Boston er ekki eins og venjulegt maraþon þar sem er hlaupinn 42,2 km hringur heldur er það frá pkt. A til pkt B eða rétta sagt frá smábænum Hopkinton og svo er hlaupið til Boston.

Ég, Siggi, Ásgeir og Stefán vorum svo mættir kl. 6 fyrir utan bíóið og förum svo fljótlega upp í bus-ana sem keyrðu okkur til Hopkinton. Voru komnir þar um kl. 7 og tókum því rólega í skugganum og undirbjuggum okkur svo fyrir átökin. Fékk mér tvær hnetusmjörs samlokur í rútunni og drakk smá af vatni og orkudrykk. Sólin skein og hitinn var kominn upp fyrir 20°C þarna um morguninn og átti bara eftir að aukast. Fékk mér svo banana og nartaði í eina tóma beyglu á íþróttasvæðinu.
Ég og Siggi fórum svo að skila dótinu okkar og tókum létta upphitun. Þá loksins áttaði maður sig á því hversu mikill hitinn var og hvernig það væri að hlaupa í þessum hita. Fórum svo og röltum í átt að start-svæðinu og komum okkur í okkar bás. Svo var beðið með eftirvæntingu þangað til að flautan gall og mann hafið fór af stað.

Alveg sama þó að allir skipuleggjendur í hlaupinu og aðrir fjölmiðlar voru að hamra á því að enginn ætti að reyna að hlaupa á sínum besta tíma (PR) útaf miklum hita sem var spáð á mánudeginum, þá var nú erfitt að gefa markmiðið alveg upp á bátinn. Var búinn að æfa mikið á 4:00 maraþon hraða og í lokin fór ég í 3:55 hraða. Þetta myndi skila manni í mark á ca. 2:45-2:49 klst. Markmiðið var því að komast  undir 2:50 og lágmark fannst manni að ná sínum besta tíma eða undir 2:55:13 sem ég átti úr Vormaraþoninu í fyrra (þó svo að sú braut hafi líklegast verið aðeins of stutt). Það var því ákveðið að reyna að keyra út á ca. 4:00 pace-i og sjá hvað maður myndi endast í hitanum. Maður var ekki beint vanur að hlaupa í hátt í 30°C hita.

1km – 15km
Startið var þröngt og vorum við Siggi nokkuð framarlega því í fyrstu bylgju vorum við í bás 2 af 9 og svo elítan fremst. Vorum því innan við mínútu að komast yfir byrjunarlínuna og þá hófst fjörið. Brautin byrjar á frekar brattri brekku niðurámóti og smá erfitt að komast í takt í svona mannþröng. Fyrstu 15 km eru að mestu niðurhallandi og var maður því að passa sig að fara ekki of hratt á þessum kafla. Þessir 15 km gengu fínt og ég og Siggi vorum að hlaupa þetta saman á ca. Sub. 4:00 pace-i og gekk fínt að halda hraða þrátt fyrir hitann. Þarna var mjög þétta á milli manna og mikið um sikk sakk til að komast fram hjá mönnum, sérstaklega þegar komu litlar brekkur. Það hægði yfirleitt á manni hjá vatnsstöðunum sem voru á 1 mílu fresti. Þá þurfti maður að passa sig að komast sér í sæmilega stöðu til að ná í sér Gatorade og svo vatn seinna á vatnsstöðinni.
Maður kom sér fljótlega upp í rútínu að ná sér fyrst í Gatorade, reyndi að drekka slatta af því og svo eitt vatnsglas yfir sig til að kæla og svo annað til að fá sér smá að drekka. Gekk stundum ekki og þá gat maður náð stöðinni sem var á hinni hlið vegarins.
Tímarnir:
5km á 19:44 (3:57)
10km á 29:38 (5km á 19:54 / 3:59)
15 km á 59:51 (5km á 20:13 / 4:03).

Þarna hélt ég að við værum vel undir 4 pace-i en skv. official klukkunni þá var þetta hraðinn á okkur og þarf maður að passa sig á gps vs. raunlengd. Held að maður þurfti að vera ca. 3 sekúndum hraðari en gps-ið segir til að vera á réttum hraða.

15km – 25km
Næstu 10km voru svo nokkuð sléttur kafli. Þegar það fór svo að sléttast úr brautinni þá misstum við aðeins hraðann og maður þurfti að hafa aðeins meira fyrir því að halda hraða. Eftir ca. 17km þá fannst mér við farnir að vera full hægir og gaf aðeins í til að vera nær 4:00 pace-inu þó svo ég hafi verið aðeins yfir því, fannst það samt í lagi útaf hitanum og vildi ekki ofgera hraðann í fyrri hlutanum. Gekk samt ágætlega upp í 20km á 1:20:03 (5km á 20:12 / 4:02). Fór svo í gegnum hálft á 1:24:26 og ennþá allt í góð en lærin farin að þyngjast aðeins.
Náði að halda hraðanum sæmilega upp í 25 km og fór í gegnum þá á 1:40:20 (5km 20:17 / 4:03). Þarna var maður búinn að rúlla ca. 10 km á nokkuð sléttri braut en fyrstu 15 km tóku greinilega nokkuð vel úr lærunum og þarna var maður kominn á ca. lægst pkt. í brautinni. Tímarnir:
20km á 1:20:03 (5km á 20:12 / 4:02)
21,1km á 1:24:26.
25km á 1:40:20 (5km 20:17 / 4:03)


25km-33km
Var mikið búinn að hugsa um að komast upp í 25km með lærin í lagi því þarna taka við 8-9 km af rúllandi hæðum sem endar með sjálfri Heartbreak Hill. Var svona sæmilega sáttur við lærin þó svo þau hafi verið farin að þyngjast. Gekk fínt að hlaupa og var að fara mikið framúr mikið frá ca. 20km til 30km. Fannst brekkurnar ganga sæmilega en lærin farin að þyngjast og hitinn farinn að hafa mikil áhrif. Fékk á þessum kafla fyrstu klakana sem voru algjör guðsgjöf. Fór 30 km á 2:01:26 eða 5km á 21:06 / 4:13. Mikið af brekkum á þessum kafla og fannst ég fljóta með straumnum en var greinilega að missa hraðann.
Það var samt á þessum legg þar sem hitinn orðinn gjörsamlega steikjandi og maður var hættur að spá mikið í á hvaða hraða maður væri að fara heldur var maður þarna kominn í hálfgert survival mode og ætlaði bara að reyna að klára þetta sæmilega.
Áfram hélt maður, lærin orðin nokkuð vel steikt og farið að hægjast á manni. Var alveg viss þegar ég var kominn upp í 32 km að Heartbreak Hill væri lokið en svo kom önnur brekka og það slóg nokkuð á mann. Þessar rúllandi brekkur fóru nokkuð illa með mann og fannst mér niður kaflinn á þeim yfirleitt verri heldur en sjálf brekkan. Þrátt fyrir að lesa mikið um brautina þá held ég að maður hafi samt farið of hratt af stað og ég hefði þurft að eiga meira inni til að tækla þessar brekkur.
Efst uppi á Heartbreak í 33km kom svo Siggi framúr mér og  leit mjög vel út, hann kastaði á mig kveðju og ég sagði honum að lærin voru í steik og reyndi að gera mitt besta. Svo hljóp ég niður Heartbreak Hill brekkuna og það var virkilega vont. Nokkuð löng brekka sem för illa með lærin sem voru fyrir orðin vel þreytt. Hitinn var ekkert að minnka og var maður kominn í nokkuð skrýtið ástand alveg að sálast úr hita og lærin að drepa mig. Fór í gegnum 35km á 2:22:42 eða 5km á 21:16 / 4:15.
35km á 2:22:42 eða 5km á 21:16 / 4:15

33km - 42,2km
Eftir Heartbreak Hill er restin af brautinni nokkuð niðurhallandi og slétt en alltaf einstaka hækkun. Hitinn orðinn ógeðslegur og lærin í steik og áfram skrölti maður þó, það var svo í ca. 38km sem maður var gjörsamlega að sálast og þá var tekin mjög erfið andleg ákvörðun og það var að labba. Þurfti að labba smá til að ná áttum og reyna að þola sársaukann í löppunum. Allt troðið af fólki að styðja og alveg ömurlegt að þurfa að labba, reyndi að fara af stað eins fljótt og ég gat. Þarna voru margir í sömu sporum og ég en samt margir að fara framúr. Kláraði svo 40km á 2:45:39 eða 5km á 22:57 / 4:35. Held að þetta hafi verið versti kaflinn fyrir mig í hlaupinu, að eiga 8-9km eftir og vera að sálast í löppunum er ekki góð skemmtun, eftir því sem styttist því betra er það og reyndi maður ýmiskonar hugaræfingar til að koma sér í gegnum þennan kafla.
Bara 2,2 km eftir en það var alveg nóg. Þarna var maður hættur að fylgjast með umhverfinu sínu og tók ég ekkert eftir því þegar ég fór framhjá Fenway Park. Gekk seinustu vatnsstöðina og líka aðeins ein undirgöng þar sem ég fékk hvatningu frá einu hlaupara og þá drattaðist ég af stað og tók ca. seinustu míluna á hlaupum. Seinustu 5km voru í algjörum áhorfenda göngum og alveg brjálaður stuðningur allan þennan tíma.
Þegar maður beygði svo loks inná Boylston Street þá komst maður loksins á sæmilega siglingu. Heyrði því miður ekki í Önnu sem stóð og öskraði hvatningu til mín, maður var líka smá „out of it“ enda með augun föst á endalínunni og maður gat ekki beðið eftir því að klára. Reyndi samt aðeins að svipast um eftir Önnu en nokkuð erfitt í öllum þessu mannhafi. En hávaðinn var mikill þarna og var þetta eins og draumi að hlaupa í mark með allan þennan mannfjölda að hvetja sig áfram. Rúllaði svo yfir endalínuna á 2:55:42 eða 4:34 pace-i seinustu 2,2km. Gekk ekki lýst því hvað ég var ánægður að þetta sufferfest var lokið.
40km á 2:45:39 eða 5km á 22:57 / 4:35.
42,2km á 2:55:42 eða 4:34


Ég var í sæmilegu ástandi miðað við marga aðra sem voru í kringum mig. Það voru frekar lærin sem voru að drepa mig en ekki vökva skortur. Fékk mína medalíu, vatn og orkudrykki og fór fljótt á „family meeting area“ og beið þar eftir Önnu.
Var að svipast um eftir Sigga en sá hann hvergi. Frétti svo seinna um kvöldið að hann hafi fengið hitasting á 41km og finn alveg mikið til með honum að hafa lent í því svona stutt frá markinu. En hann er heill heilsu og komst vel frá þessu sem betur fer.

Anna fylgdi mér svo upp á hótel enda treysti hún mér ekki einum í þessu ástandi. Svo var farið að fá sér bjór og „rölta“ um Boston. Við Íslendingarnir hittumst svo um kvöldið og áttum gott kvöld saman og deildum okkar sögum um þessa mögnuðu upplifun. Frábær dagur í alla staði þó svo að þetta hafi verð alveg ógeðslega erfitt.

Var með tvær megin áhyggjur fyrir hlaupið. Sú fyrri var hvort að lærin gætu þolað þetta niður hlaup fyrstu 15km og svo rúllandi hæðir á 8-9km kafla akkúrat á þeim tíma sem lærin hafa verið að stífna upp hjá mér. Seinni ástæðan var hvort að maginn myndi halda allri þessari vökva inntöku sem var nauðsynleg í þessum hita. Ég drekk vel og mikið og kannski bjargaði það mér að byrja að labba seinustu drykkjarstöðvarnar og náði þannig vel inn að vökva á seinustu km. En það voru enn og aftur lærin sem voru að klikka í maraþoninu hjá mér enda ekki beint braut sem er þekkt fyrir að fara vel með þau. Held ég þufti að nálgast næsta maraþon sem öðrum hætti og breyta eitthvað æfingaáætluninni til að fá meiri styrk í lærin.
Endaði 30 sek frá mínum besta tíma en náði þó ekki mínu markmiði. En ef maður tekur inn hitann þá er ekki hægt annað en að vera ánægður með þennan tíma.

Fékk mér eitt gel 15 mín fyrir hlaup og svo þrjú önnur á leiðinni, seinasta um km 30 held ég. Var með tvö önnur en tók þau ekki, ætli öll þessi Gatorade drykkja hafi ekki verið nóg til að halda uppi orkustiginu.
Áhorfendur voru alveg magnaðir alla brautina og gerðu allt til að hjálpa manni, dreifa appelsínum, klökum og vatni og einnig að spraut vatni yfir keppendur til að hjálpa við að kæla. Veðrið lék við áhorfendur en ekki keppendur, stundum er það þannig og það er ekkert sem maður getur gert í því. Ánægður að hafa valið þetta hlaup og í lokin ánægður að hafa náð að klára þetta hlaup á sæmilegum tíma þó svo að maður hafi ætlað sér betri tíma. En frábært hlaup með frábæra áhorfendur, frábær borg með frábæru fólki. Maður var að fá hamingju óskir alveg fram á miðvikudag því maður gekk um eins og asni og fólk áttaði sig fljótt á því hvað orsakaði það...

2.5.11

Vormaraþon Félags maraþonhlaupara 2011

Vormaraþon 2011: 2. Örvar Steingrímsson, 1. Sigurjón Sigurbjörnsson og 3. Jóhann Gylfason (hlaup.com 2011)
Vildi taka saman og eiga hvernig þetta hlaup gekk fyrir sig, bæði fyrir mig seinna meir og einnig fyrir aðra sem eru í maraþon undirbúningi. Fyrir þetta hlaup hafði ég lesið bæði það sem ég skrifaði eftir Laugaveginn og sömuleiðis eftir mitt fyrsta maraþon í Reykjavíkur maraþoninu í fyrra. Einnig hafði ég lesið góða maraþon sögu frá Gunnari Ármanns og fannst því sniðugt að eiga þetta vel skjalfest.

Ég hafði sofið frekar illa í tvær nætur vegna veikinda hjá strákunum mínum í vikunni. Kvöldið fyrir hlaup var því eyrnatöppum troðið í eyrun og farið snemma í háttinn, enda var vekjaraklukkan stillt snemma. Vaknaði kl. 5 eða 3 klst fyrir hlaup eins og tíðkast í undirbúningi fyrir maraþon. Fékk mér eina beyglu með osti og sultu og eina brauðsneið. Var svo rólegur heima og kláraði að gera mig til. Var búinn að reyna að drekka vel dagana á undan en hafði verið eitthvað tæpur í hálsinum í vikunni. Báðir strákarnir með mikinn hósta og sá eldri búinn að vera með hita heima. Maður var því nokkuð smeykur alla vikuna hvort að nú væri komið að manni að vera veikur á svona heppilegum tíma. Sem betur fer var ég mun betri í hálsinum heldur en daginn áður og var því vongóður um góðan dag og þessi "veikindi" myndi ekki hafa mikil áhrif á mig í hlaupinu.
Var mikið búinn að liggja yfir veðurspánni seinustu daga, sérstaklega eftir vindasama fyrri mánuði, og eina sem ég óskaði mér var að það yrði <5m/s. Var búinn að sjá það á maraþon pace æfingum að það yrði mjög erfitt að fara undir 3 klst ef það væru >10m/s. Spáin var fín fyrir hlaupið, 2m/s og 1-2°C. Þegar ég leit svo út um gluggann um morguninn og sá að það var byrjað að snjó, fannst mér það eiginlega vera hálf fyndið miðað við hvernig veturinn er búinn að vera. En ósk mín var uppfyllt og ég fékk mína <5m/s og meira segja gott betur.

Fékk mér einn banana og í bílnum á leiðinni niðureftir og drakk ca. 250 ml af Powerade. Var mættur ca. 45 fyrir hlaup niður í Elliðaárdal. Nánast logn en hitinn um 0-1°C og slydda. Stígarnir voru auðir og snjórinn virtist ekki haldast á stígunum. Ég þekkti nú ekki marga þannig að ég reyndi að taka því rólega og tók létta upphitun, um 2 km, og var sáttur við ástandið á mér. Fann fyrir einhverjum smá stífleika í hægri kálfa en hélt að það væri bara eitthvað smávægilegt og hafði ekki miklar áhyggjur af því. Var búinn að sjá fyrir hlaup að ég og Sigurjón Sigurbjörnsson ættum, ef allt gengi að óskum, að vera í efstu sætunum af þeim hlaupurum sem voru skráðir. Margir sterkir hlauparar sem höfðu farið heilt maraþon fyrr í mánuðinum og notuðu þetta hlaup sem æfingu fyrir 100 km hlaup í júní.

Hlaupafataúrvalið á mínum bæ er ekkert gríðarlegt þannig að ég var ekki með mikinn valkvíða yfir því í hverju ég ætti að hlaupa. Fór í hlaupa buxurnar mínar, þunnan síðerma bol og bol undir, svo með buff og hanska. Keypti mér fyrir ca. mánuð Asics Sky Speed skó og var búinn að hlaupa þá til án þess að þeir höfðu farið í kálfana á mér, hafði því ekki miklar áhyggjur að þeir myndu plaga mig í hlaupinu. Þorði ekki að hlaupa í race-erum og því voru þessir trainer-ar valdir. Fata- og skóvalið gekk vel upp þrátt fyrir slyddu en hefði átt að sleppa hönskunum. Eini staðurinn þar sem slyddan hafði áhrif var göngubrúin yfir Kringlumýrarbraut sem var nokkuð hál.

Mín áætlun fyrir hlaupið (ef veður leyfði) var að fara út á 4:08 mín/km pace og sjá svo til eftir hálf maraþon hvort ég gæti haldið því áfram. Þetta myndi gefa mér séns á 2:55 lokatíma sem var góða markmiðið mitt. Aðalmarkmiðið var að fara undir 3 klst og svo 3:05 var eitthvað sem maður geymdi ef allt myndi ganga á afturfótunum. Hafði verið að æfa mikið á 4:05 pace og var á tímabili að spá í því en eftir að margir maraþonhlauparar höfðu ekki náð markmiðum sínum í hlaupum erlendis nokkrum vikum á undan þá ákvað ég að þetta væri skynsamleg lausn.

Ég og Sigurjón fórum því fyrir hópnum og hlupum saman fyrstu tvo km saman, hann minnkaði þá aðeins ferðina eftir það og hélt svo sig ca. 20m -200m fyrir aftan mig. Fyrstu km gengu mjög vel og fann ég ekkert fyrir því að halda hraða. Hafði stillt úrið á 5km lap og eina sem ég spáði í var að halda réttum hraða og ekki fara of hratt. "Hlaupið byrjar ekki fyrr en á seinni hringum í fyrsta lagi" sagði maður við sig oft í huganum og reyndi að vera rólegur. Það gekk vel eftir og fór ég fyrstu 5km á 20:36 mín eða 4 sek á undan áætlun. Engin þreyta og allt gott, Óskar Jakobsson var svo á vatnsstöðinni við HR og var líka sem brautarvörður við Nauthólsvík og var gaman að hitta á hann fá góðan stuðning, sérstaklega á seinni hlutanum.

Hélt áfram að rúlla út á nes og ennþá gekk allt eins í sögu, hafði ekkert fyrir því að halda hraða en fannst púlsinn aðeins sveiflast til í úrinu án þess að finna mikið fyrir því. Úrið sýndi 170 bpm meðal púls fyrstu 5km en ég held að það sé ekki marktækt enda hefur púls mælirinn iðulega sýnt rugl fyrstu km, ekki nema að stressið fyrir hlaup hafi keyrt púlsinn svona upp. Næstu 25km var ég samt að hlaupa á 158-164bpm meðal púls skv úrinu. Veit ekki alveg hvort ég treysti púlsinum í úrinu, það var búið að vera batterís laust lengi og hafði ég ekki notað það í nokkuð langan tíma. Þarf samt að fara í frekari púls stúdíu og komast að því hvar minn mjólkursýru þröskuldur liggur.
10km á 41:13 mín og 5km lap á 20:37 mín, 7 sek á undan áætlun. Hitti Geir rétt fyrir snúningspunkt og tók létt spjall við hann. Hann var að fara í hálft og vildi vita hvernig fatavalið var að virka og hvernig ástandið væri. Gaman að hitta einhverja á annars einmannalegri braut. Var líka gaman eftir að maður snéri við að mæta hinum sem voru í maraþoninu.


Fór svo næstu 5km á 20:45 eða 15 km á 1:01:58 og var þá 2sek á undan áætlun. Fann ekki fyrir neinu og hélt áfram eftir áætlun. 20km á 1:22:30 og 5km lap á 20:32 mín, kominn 10 sek á undan, fór þennan legg líklegast aðeins og hratt en þetta er líklegast auðveldasti kaflinn á leiðinni. Mætti svo mömmu og pabba í Fossvoginum og var það mjög gaman, vissi svo þau að þau myndi ganga hlaupa leiðina og mæta mér aftur.
Þegar ég kom að snúnings punktinum þá ætlaði ég að kíkja á úrið og sjá heildar tímann og splittið en náði á einhvern hátt að læsa úrinu á "menu" skjánum. Var því eitthvað að spá í allt annað þegar ég kom á snúningspunktinn í hálfu og veit því alveg ekki hvert nákvæmt splittið er. En minnir að það hafi verið 1:27 eitthvað, líklegast 1:27:05 og því ennþá nokkrum sem á undan áætlun. Náði sem betur fer að laga úrið og sjá á hvaða tíma ég var að hlaupa.

Í Fossvoginum á leiðinni seinni hlutann fann ég svo að lærin voru aðeins byrjuð að stífna. Var því smá smeykur vitandi af fyrri reynslu hvað það er vont að hlaupa seinni hlutann á grjót stífum lærum. Var samt lítið mál að halda hraða og fannst ég rúlla vel, en vonbrigði að lærin voru strax farin að gefa eftir. Gaman að hitta svo mömmu og pabba aftur rétt eftir göngubrúnna. Kláraði 25km á 1:43:08 og 5km lap á 20:38 mín. Á þessum tíma voru svo lærin farinn í steik og ég farinn að finna fyrir hverju skrefi. Hljóp samt 25km til 30km hraðast lapið eða 5km á 20:30 mín og fannst ég halda hraðanum ágætlega. Veit ekki hvort það hafi verið einhver örvænting eða hvað sem fékk mig til að hlaupa þennan kafla hraðast, þegar ég hefði kannski átt að slá aðeins af. Þarna var sálfræðin byrjuð og maður í stöðugri baráttu við hausinn um að smá kvöl og pína seinustu 12-17km myndu nú alveg vera þessu virði. En djöfulli var þetta samt erfitt. Eftir snúningspunktinn rétt eftir 31km var svo aðeins skárra andlega þar sem maður fór aftur að mæta öðrum hlaupurum, ekki vera alveg einn í heiminum. Náði að rúlla ágætlega niður í Nauthólsvík og kláraði 35 km á 2:24:30, 5km á 20:52 mín eða 4:10 pace.

Þá var komið af vegginum fræga. Leiðin frá Nauthólsvík upp að Loftleiðum og svo niður meðfram Öskjuhlíðinni og að gróðrarstöðin í Fossvoginum var erfiðasti kaflinn. Þó svo að ég hafi verið að mæta nærri því öllu liðinu í hálfu maraþoni á þessum tíma þá var þetta andlega lægsti punkturinn í hlaupinu, byrjaði þá loksins að missa hraðann. Hjálpaði samt mikið að hitta marga á þessum legg en einhvern veginn dugði það ekki til, sársaukinn í lærunum var gríðarlegur og maður gerði sitt besta að rúlla áfram. Sigurjón tók svo framúr mér rétt fyrir göngubrúnna við 38 km. Átti ekkert inni til að fara á eftir honum og óskaði honum góðs gengis. Hjálpaði mér mikið að hafa einhvern sem var nálægt mér allan tímann. Bæði til að ýta mér áfram og svo til að elta í lokin. Hlaupið fór svo að verða auðveldara andlega þegar maður kom inn í Fossvoginn og viss að það var farið að styttast í annan endann á hlaupinu. Rétt við Fossvogsskóla tikkaði 40km inn á tímanum 2:46:23 eða 5km á 21:53 mín eða 4:22 pace. Stuttu seinna kíkti ég í fyrsta skipti á heildar tímann á klukkunni en fannst ég ekki eiga séns í undir 2:55 klst. Kláraði svo seinustu 2,2 km á 8:52 sem gerir 4:01 pace sem ég trúi varla því á þessum tíma fann ég varla fyrir því að hreyfast úr stað. Rúllaði svo gegnum undirgöngin inn í Elliðaárdal og svo yfir á stokkinn. Þá fór maður að heyra í móttöku nefndinni og gat gefið aðeins aukalega í, sá því miður of seint að með smá meiri píningu hefði maður komist undir 2:55. Kláraði á maraþonið á 2:55:13 og lenti í öðru sæti á eftir Sigurjóni.

Ekkert smá ánægður að komast loksins í mark næstum því á draum tímanum mínum og að þessu væri formlega lokið. Ekkert smá góð móttökunefnd og fékk maður fullt af hamingjuóskum strax við markið. Gaf mér mikið að vita af öllum fólkinu mínu á marklínu og það hélt mér gangi lengi vel að vita af því að eldri strákurinn minn gerði kröfu um 1. sætið og ekkert minna eins og heyrist í honum á myndbandi þegar hann sér að ég kom ekki fyrstur í mark. Fannst það eiginlega leiðinlegast fyrir hann að vinna ekki þó svo að það skipti mig minna máli. Var bara fullkomlega sáttur við minn tíma og það dugir alveg.
Fékk mér vel að drekka og beið alveg rennandi blautur þangað til að verðlauna afhendingin var, sem var fljótlega eftir að 3. maður kom í mark sem var Jói Gylfa á 3:04, 2 mín lakari en í Rotterdam fyrir 3 vikum. Skemmti mér mikið að spjalla við aðra hlaupara, bæði í heilu og hálfu en þurfi svo fljótlega að drífa mig heim þar sem ég skalf úr kulda. Gat því farið sáttur heim og ánægður með afrek dagsins. Bæting upp ca. 17 mínútur frá því í Reykjarvíkur maraþoninu 2010.

Drakk fyrst aðalega Powerade en svo bæði vatn og powerade. Tók tvö glös og ætli ca. helmingur af þeim hafi endað ofan í mér og afgangurinn sullaðist eitthvað. Á seinustu tveimur vatnsstöðvunum drakk ég svo vatn og powerade en fann aldrei fyrir neinum sérstökum þorsta, aðalega gert til að fyrirbyggja vökvaskort. Fékk mér gel á 5k, 15k, 20k, 25k og 30k og maginn réð léttilega við það, gæti trúað að þetta væri óþarflega mikið en vildi ekki taka áhættuna að verða eitthvað orkulaus. Fannst ég hafa næga orku allan tímann en það voru bara lærin sem stoppuðu mann og hægðu á manni.


Byrjaði fljótlega að stirna upp í lærum og kálfum og geng þessa stundina um eins og múmía sem má ekki hreyfa hnén, verst er samt að fara niður stiga. Held að öðru leyti sé ég heill í skrokknum og vonandi fara verstu harðsperrurnar að hverfa smá saman.

Ánægður með að vera orðinn múrari (undir 3 klst múrinn) eins og Sigurjón orðaði það fyrir hlaup.