11.7.05

Antony and the Johnsons

Þá er maður kominn aftur eftir smá frí í kringum landið. Mjög gaman að ferðast um Ísland og hvet ég alla til að gera það. Ekki alltaf horfa til útlanda.
En búinn að vera vinna í myndunum sem ég tók í ferðinni og loksins búinn að því. Set það inná síðuna einhver tíman bráðlega. Annas ætla ég einnig að koma með smá ferðasögu, bara svona fyrir mig til að eiga í minningunum.

Annars er það Antony and the Johnson tónleikarnir í kvöld og Hudson Wayne sem hita upp. Búinn að hlakka mikið til að fara á þessa tónleika enda mjög góðir diskar hjá honum. En veit því miður bara mjög lítið um Hudson Wayne. Á bara eitt lag með þeim.

Þá ætlaði ég að reyna að byrja á svona mp3 bloggi en síðan sem ég ætlaði að vista lagið á er eitthvað að klikka, enda svona ókeypis dót, þannig að það verður að bíða betri tíma. Ef einhver á gott pláss sem ég get vistað lög á má hann/hún endilega láta mig vita.

Örlish and the Johsnons biður að heilsa...þó að ég sé nú ekki klæðskiptingur.

og Ívar haltu þú bara kjafti.

29.6.05

Kópavogur

Í DV í dag kemur fram að Ómar Stefánsson ætlar að verða bæjarstjóri Kópavogs fyrir 2010.

Þá segi ég nú bara að ég ætla að hætta sem Kópavogsbúi fyrir 2010.

Kveðja
Ekki vinur Ómars

Tjald og fríið

Heimilið fjárfesti í einu stykki tjaldi í gær. Keypt var McKinley 4 manna braggi. Tvö "herbergi" ásamt góðu plássi í miðju tjaldsins. Einnig var fjárfest í tveimur stólum til að fara með tjaldinu.

Þannig að núna er maður kominn með ágætan útilegu búnað en ennþá vantar fullt uppá. Þetta er ágætt í bili þannig að nú fær maður rest lánaða fyrir fríið.

Farið verðum um helgina og gert ráð fyrir að vera ca. viku.

Hvert er ferðinni heitið? Tja ekki alveg á hreinu en reynt verður að fara eftir veðri en Norður-, austur- og suð/austurland eru svona þeir staðir sem stefnt er á.

Aldrei að vita nema að Ívar á Nesó fái heimsókn í næstu viku...

27.6.05

Örlish goes Turists

Kambó bauð í heimsókn í VR bústað upp í Miðhúsaskógi um helgina. Ég of frú skeltum okkur upp eftir og komum um 22 á föstudagskvöldið. Ekkert merkilegt það kvöldið nema að drekka smá bjór og fara í pottinn.

Á laugardaginn var svo vægast sagt vont veður. Það hætti ekki að rigna fyrr en um kl. 22 um kvöldið. Horft á The Rock, lesið smá í Kleifarvatni, smá göngutúr og mini golf mót sem allir komu rennandi blautir úr. Grillað voru snilldar Nautalundir og allt heppnaðist mjög vel. Spilað og farið í pottinn. Mjög gaman.

Það var svo komið sólskyn þegar maður vaknaði á sunnudeginum og ákveðið var að fara í golf í Úthlíð. Á fremur lélegum velli var spilamenskan frekar léleg líka og það verður ekkert rætt frekar hér.

Svo var ákveðið að skella sér í túrista ferð á Gullfoss/Geysi. Snilld að koma á þessa staði í svona góðu veðri og minnir mann enn og aftur hvað er skemmtilegt að ferðast um Ísland.
Mikið tekið af myndum sem ég ætla að reyna henda inn sem fyrst.

Þá útskrifaðist Kristinn Sverrisson úr Viðskiptafræði á laugardaginn og óska ég honum til hamingju með það. Til hamingju frændi.

25.5.05

Liverpool...

Of spenntur til að hugsa...

Liverpool-AC Milan í úrslitum meistaradeildarinnar...

Spái nokkrum mörkum í kvöld en þori ekki að segja meira...þetta er lang stærsti leikur í minni Liverpool sögu...

Áfram Liverpool

10.5.05

Tón-list...

jebby nú er það tónlistin..langar aðeins að benda fólki á hvað það ætti að hlusta á þessa dagana.

Er búinn að hlusta mikið á nýju Weezer plötuna enda er Weezer ein af uppáhalds hljómsveitunum mínum. Platan heitir Make Belive og er það besta síðan Pinkerton kom út 1996. Mjög gott stöff.
Þá er nýja System of a Down platan algjör snilld. Hún heitir Mesmerize og nær mann alveg frá fyrstu hlustun. Fyrir þá sem "fíla" SOAD þá er þetta meðalið.

Þá smá af nýjum tónlistar mönnum. Búinn að vera hlusta á British Sea Power, Ryan Adams, Brendan Beson, Bright Eyes og Jack Johnson. Allt algjörir snillar sem eru með svona rólegt "acoustic" stemmningu.

Svo er það nýja lagið með Grafarvogsbúanum Damon Albarn algjörn snilld. Það heitir Feel Good Inc. og er með Gorillaz. Er samt ekki alveg dottinn inn í plötuna.
Einnig eru Apabræður í Oasis að koma með nýja plötu og þá finnst mér ný Grafarvogsbúinn vera að gera betri hluti heldur en þeir.
Þá er ég ekki alveg að fíla nýja Beck diskinn nægilega...

Þá má alveg tékka á Out Hud, Athlete, The Postal Service, Garbage, Low, Feeder, TV on the Radio, Hot Hot Heat svo fátt eitt sé nefnt...

Tja hvað get ég sagt meir? Annars er hægt að tékka hvað maðurinn er að hlusta á hérna og mæli ég eindregið með þessari síðu og að hlusta á það sem ég er að hlusta því ég er með ótrúlega góðan tónlistarsmekk.

Ef þið vitið eitthvað sem ég veit ekki látið ljós ykkar skína...

25.4.05

Stoltur?

Ég var spurður um skilríki á laugardaginn á Hressó...er það gott eða vont?

Annars var nýja Weezer platan að koma í hús...og þá varð ég líka að tékka á The Game eftir að myndband með þeim var spilað ca. 100x á föstudagskvöldið.

13.4.05

Áfram Liverpool

Þá er komið af stærsta leik Liverpool í Evrópu í nokkur ár eða síðan þeir unnu UEFA Cup 2001. Ég segi að Alonso og Cisse skori mörk Liverpool og þeir vinna 2-1.
Er það ekki líklegt...

Hérna eru svo nokkrar staðreyndir...

1978:
Páfinn dó
Wales vann stóru slemmuna í Rugby
Liverpool tapaði úrslitaleiknum í deildarbikarnum fyrir liðinum sem síðan varð Englandsmeistari um vorið (N. Forrest) Liverpool F.C. varð Evrópumeistari í fótbolta

2005:
Páfinn dó
Wales vann stóru slemmuna í Rugby
Liverpool tapaði úrslitaleiknum í deildarbikarnum fyrir liðinum sem síðan verður Englandsmeistari í vor (Chelsea) Liverpool F.C. verður Evrópumeistari í fótbolta....

Og að auki....
1981:
Charles prins kvæntist
Liverpool varð Evrópumeistari

11.4.05

Ekki menning

Ætlaði að vera voða mennilegur og fara á Kvikmyndahátið á laugardaginn. Var eitthvað að reyna að velja úr myndunum, langaði að sjá Motorcycle Diaries en hún var sýnd á slæmum tíma þannig var búið að ákveða að fara á The Woodsman sem fjallar um barnanýðing sem er laus úr fangelsi. Þá bjallaði ég í Jim Bob en hann benti mér á In Good Company sem hann hafði heyrt góða hluti um. Þannig var ákveðið að sleppa öllum óþægindum við að horfa á mynd um barnanýðing og taka "the easy way out" sem sagt rómantíska gamanmynd. Ég var bara helvíti ánægður með hana, vel leikin, góð tónlist, góð saga sem gekk upp og svo er Scarlett Johansson sæt.
Held ég hendi 8 Örlish-um á In Good Company.

Ef einhver veit um einhverja góða mynd til að fara á endilega láta vita.

Annars var þetta ekki nægilega sniðug fótbolta helgi.
Liverpool tapaði...sem er slæmt
Barcelona tapaði...sem er slæmt
Everton vann...sem er slæmt
Bolton vann...sem er slæmt
Inter vann...sem er gott
TLC vann...sem er gott
Man utd tapaði...sem er gott

Til að bæta gráu ofan á svart þá er Gerrard meiddur og verður ekki með á móti Juventus. Múhúhúúú
Það er erfitt að vera Liverpool stuðningsmaður.

7.4.05

Nýjar myndir

Var að setja myndir frá Landmannalaugum inn. Þær eru á myndasíðunni minni en það er linkur inná hana hérna til hliðar.

Hérna er myndirnar frá Landmannalaugum.

Hérna er hægt að sækja myndband af Jón Hauki skíða niður Bláhnjúk. Þetta verður virkt í 7 daga.

6.4.05

Landmannalaugar og Liverpool

Eins og kom í færslunni hérna á undan fór ég með JH í jeppaferð upp í Landamannalaugar. Ekkert smá gott veður á leiðinni og útsýnið mjög enda sól og snjór hafði fallið í fjöllin. Grillað og spjallað fram eftir kvöldi en um miðnætti þurfti að fara að tékka á félögum JH sem vöru eitthvað seinir. Mættum þeim svo eftir smá keyrslu í stjörnubjörtu kvöldveðri og voru þeir búnir að vera fastir í krapapytti í 1,5 klst.

Það snjóði svo verulega mikið um nóttina og fram eftir degi á laugardeginum. Ég og JH þrömmuðum upp Bláhnjúk í leit að góðri skíðabrekku sem og við fundum og var skíðað í púðri upp af hnjám alla leið niður. Mjög gaman og þegar við vorum komnir upp byrjaði að rofa til.

Eftir þetta var farið í "pottinn" og slakað á og þá var orðið heiðskýrt og klassa veður. En fyrir þá sem ekki vita þá er þetta náttúrulegur heitapottur. Svo var brunað heim í snilldar veðri og ennþá fallegra úti heldur en deginum áður.

Hendi svo myndum inn í kvöld ef ég nenni.

Annars var það Liverpool í gær. Fjölmennt var heima og ekkert smá gaman að sjá Liverpool vinna Juventus. Snilld og ekki var markið frá Garcia slæmt...ónei.

Playlistinn í dag er aðalega búinn að vera The Streets og diskurinn "A Grand Don't Come for Free" snilldar diskur og fer Mike Skinner á kostum. Tékkið á honum.

1.4.05

Audioscrobbler

Audioscrobbler er magnað forrit sem fylgist með því hvað þú hlustar og kemur svo með einskonar vinsældarlista bæði með mest spilað í vikunni á undan og einnig í heild. Þú download-ar bara smá pluggin forriti eftir því hvaða spilara þú ert með í tölvunni þinni. Ég mæli með Winamp. Besti spilarinn að mínu mati.

Hérna er minn listi ef fólk vill forvitnast um hvað ég er að hlusta á þessa dagana. Það verður gaman að skoða í lok árs hvað maður hefur hlustað mest á.

Eins og sést var Ploc Party vinsælast í seinustu viku og eftir þeim komu Queens of the Stone Age en báðar hljómsveitirnar eru búnar að gefa út diska nýlega. Svo er einnig hægt að sjá mest spilaða lagið í seinustu viku og það var Little Sister með Queens of the Stone Age og svo snilldar lagið Banquet með fyrr nefndum Ploc Party en diskurinn þeirra Silent Alarm er gargandi snilld...

Annars eru ég og JH að fara í Landmannalaugar á eftir í smá jebbaferð, það verður ábyggilega gaman sérstakleg þar sem það eru ár og öld síðan ég fór seinast í smá jebbaferð.

30.3.05

DVD Örlish?

Við eigum þessum kauða mikið að þakka. Hann heitir DVD Jon og er Norðmaður sem náði fyrst að komast fram hjá afritunarvörn á DVD diskum. Núna beinir hann athyglinni að iTunes.
Þetta finnst mér mjög flott hjá honum. Ef það er eitthvað sem ég þoli ekki þá eru það allar þessar afritunarvarnir. Ég vil geta keypt mér geisladisk og geymt hann inná tölvunni minni með öllum hinum mp3 lögunum mínum (sem eru nú nokkur)...maður á ekki að þurfa að setja diskinn í tölvuna og hlusta á hann í gegnum eitthvað sérvalið forrit.
Það litla sem ég hef kynnst af iTunes er ég ekki alveg að fíla og er það helsti galli iPod. Maður kemst bara inná iPod í gegnum þetta forrit. Þú getur ekki sett "drag and drop" eins og iPod væri bara drif á tölvunni þinni. Einnig þá vantar einhverja síju á hvað tónlistarmenn heita í iPod. Ef einvhver hljómsveit heitir The Pire... og svo Pire... í annari mp3 skrá þá flokkar iPod þetta sem tvo mismundandi tónlistar menn.
Nú er bara bíða eftir því að hann opni iTunes lögin og svo væri nú flott ef hann gæti nú hjálpað manni eitthvað með iPod því það fer nú alltaf að styttast í það að maður fáir sér þannig tæki.

4.2.05

Loksins loksins

Í gær var merkilegur dagur. Þannig er mál með vexti að “officially” í gær eignaðist ég minn fyrsta bíl, þó svo að ég sé búinn að eiga hann bráðum í tvö ár. En ég drattaðist niður á umferðastofu og skráði bílinn á mitt nafn eftir að hafa verið með skráninga eyðublaðið í hanskahólfinu í eitt ár. En svona er það með ríkisstofnanir sem eru opnar frá 9-16.?
Þannig að nú er ég stoltur eigandi Toyota Corolla. Ekki nóg með þetta heldur var farið í dag og fengin trygging á bílinn. Össs hvað ég er duglegur. Kannski maður fari með hann í skoðun bráðlega þar sem það er ennþá 2004 miði á bílnum og er búinn að vera það síðan í júlí.

Annars geri ég ráð fyrir rólegu Idol kvöldi í kvöld, vona að þetta verði skárra en seinast, og aldrei að vita nema að það verði horft á 24 eftir það, ekki er það slæmt.

3.2.05

The Arcade Fire

Er búinn að vera hlusta á snilldar hljómsveit í dag. Hún heitir The Arcade Fire og gaf út sinn fyrsta disk ‘Funeral’ núna í september 2004.
Ég las um þennan disk á snilldar vefnum allmusic.com reddaði mér honum en gleymdi svo að tékka á honum. Það var svo ekki fyrr en ég las dóminn hans Bigga í Fréttablaðinu að ég mundi eftir að ég ætti þennan disk.
Búinn að renna einu sinni yfir hann og er alveg heillaður. Þetta er svona Indie Rock sem ég kemst bara ekki yfir þessa dagana en The Arcade Fire hljómar svona eins og Belle & Sebastian mætir Interpol.
Snilldar diskur og mæli eindregið með að þið tékkið á honum. Verst að hann var gefinn út 2004 annars væri hann líklegur á topp 2005 listann.

Annars eru nokkrar sveitir sem eru að gera það gott og ég á eftir að tékka betur á og eru það: Bloc Party, The Zutons og Kasabian.

Búinn að sjá tvær myndir síðan ég skrifaði seinast. Þær eru The Incredibles sem er algjör snilldar mynd og fær 8,5 Örlish! og svo Raising Helen þar sem maður ‘overdose-ar’ á hamingju þrátt fyrir það að myndin gengur út á það að þrjú börn missa foreldra sína. Raising Helen fær því 5 Örlish!