jebby nú er það tónlistin..langar aðeins að benda fólki á hvað það ætti að hlusta á þessa dagana.
Er búinn að hlusta mikið á nýju Weezer plötuna enda er Weezer ein af uppáhalds hljómsveitunum mínum. Platan heitir
Make Belive og er það besta síðan Pinkerton kom út 1996. Mjög gott stöff.
Þá er nýja System of a Down platan algjör snilld. Hún heitir
Mesmerize og nær mann alveg frá fyrstu hlustun. Fyrir þá sem "fíla" SOAD þá er þetta meðalið.
Þá smá af nýjum tónlistar mönnum. Búinn að vera hlusta á
British Sea Power,
Ryan Adams,
Brendan Beson,
Bright Eyes og
Jack Johnson. Allt algjörir snillar sem eru með svona rólegt "acoustic" stemmningu.
Svo er það nýja lagið með Grafarvogsbúanum Damon Albarn algjörn snilld. Það heitir Feel Good Inc. og er með Gorillaz. Er samt ekki alveg dottinn inn í
plötuna.
Einnig eru Apabræður í Oasis að koma með
nýja plötu og þá finnst mér ný Grafarvogsbúinn vera að gera betri hluti heldur en þeir.
Þá er ég ekki alveg að fíla nýja
Beck diskinn nægilega...
Þá má alveg tékka á Out Hud, Athlete, The Postal Service, Garbage, Low, Feeder, TV on the Radio, Hot Hot Heat svo fátt eitt sé nefnt...
Tja hvað get ég sagt meir? Annars er hægt að tékka hvað maðurinn er að hlusta á
hérna og mæli ég eindregið með þessari síðu og að hlusta á það sem ég er að hlusta því ég er með ótrúlega góðan tónlistarsmekk.
Ef þið vitið eitthvað sem ég veit ekki látið ljós ykkar skína...