Á mánudaginn var farið og gerð enginn smá innkaup fyrir fjölskylduna. Við förum og keyptum eitt stykki barnavagn og engann smá vagn. Brio Kombi varð fyrir valinu enda var hann á tilboði og um að gera að stökkva á svoleiðis enda eru barnavagnar ekki gefins.En eins og ég segi er þetta algjör torfærukerra með drif á öllum hjólum, 6 gíra , með velti grind og fjaðrar mjög vel, kannski smá ýkjur en hann virkar allavega fínn.
Eins og ég sagði áðan er barnavagnar ekki ókeypis og fengum við Brio-inn á 60 þús og var það með 15 þús afslætti. Þannig að maður er alltaf að "græða".
Annars er alltaf að styttast í bumbubúann og núna eru innan við 4 vikur (vonandi) að hann (bumbubúinn) komi í heiminn. Við skulum allavega vona að það verði ekki 6 vikur.
Svo eiga skóla málin að fara klárast í vikunni.
Allt að gerast...

Það var mikið um að vera í gær. Í fyrsta lagi útskrifaðist Anna úr Háskóla Íslands sem Hjúkrunarfræðingur og fékk alveg mjög flotta meðal einkunn og er ég að sjálfsögðu voðalega stoltur af henni, enda búinn að bíða eftir þessu í 4 ár :)