30.11.06

Vonn dávn end tú tú gó

Gekk alveg ágætlega í steypu prófinu í dag. Hefði alveg viljað ganga betur en svona er þetta bara stundum þegar búið er að vera mikið að gera hjá manni allan veturinn, þá verður eitthvað að sitja á hakanum. Var því frumlesa nokkuð fyrir prófið og það er nú aldrei gott. Annars áhugavert fag en erfitt að ná mjög djúpum skilningi með því að lesa allt á norsku. Þetta kemur smán saman samt.

Það var bara nokkuð gaman að taka próf í öðru landi. Þetta er greinilega eitthvað alþjóðlegt að láta gamalmenni sitja yfir í prófum því þarna var alveg heill hellingur af þeim. Mun meira eftirlit með öllu hérna í Þrándheimi og fékk maður fylgdarlið á klósettið ásamt því að vera með prófið í þríriti.
Prófið var í Trondheimspektrum sem er niðri í bæ. Þetta er svona samansafn íþróttahúsum þar og var ég í prófi með svona 500 manns gróflega áætlað.

Jæja nóg um það í bili. Strax byrjaður að læra undir Elementmetoden, enginn tími til að slaka á því næsta próf er á mánudaginn.

29.11.06

Fæðingarblettir

Hvaða snillingur fann upp nafnið á fæðingarblettum? Kári er allavega ekki með neinn fæðingarblett og hann er nú nýfæddur...og ég er ekki nýfæddur og alltaf eru að fæðast fæðingarblettir á mér!

Bara svona pæling.

Algjör steypa

Þetta orðatiltæki er oft notað um eitthvað sem maður skilur ekki í eða á erfitt með að átta sig á. En í dag á þetta vel við því á morgun fer ég í steypupróf (Betongteknoloki) og er því á fullu að læra um steypu. Þó ég skilju nú alveg eitthvað í þessu er þetta nú oft algjör steypa, hehehe.

Þegar tengdó var í heimsókn spurði hún mig hvaða próf ég væri að læra undir. Ég sagðist vera að læra undir steypu og var svipurinn á þeim mæðgum eins og ég hefði sagst vera læra undir 5 bekkjar stærðfræði. “Er ekki öll steypa eins?” var spurt. En nei, það er ekki alveg eins einfalt og það hljómar. Þetta er nú ekki bara sement, sandur og vatn eins og margir halda. Heil mappa af lesefni á norsku og eitthvað um 420 síður af hreinu fjöri.

Þó svo mér finnist steypan áhugaverð þá er bara svo drep leiðinlegt að sitja heima hjá sér og læra allan daginn, og hvað þá að lesa, alltaf skemmtilegra að reikna.

25.11.06

Afmælisbarn dagsins

Afmælisbarn dagsins er mjög sérstakt (á góðan hátt) í dag, því það er engin önnur en húsmóðir heimilisins, Anna Harðardóttir, sem er 24 ára í dag.

Til hamingju með afmælið ástin mín.

Það var nú þannig að hún var búin að fá bæði afmælisgjöfina frá húsbóndanum og mömmu sinni og pabba og ég var að segja henni að hún fengi nú alveg örugglega engan pakka á afmælisdeginum, sem gerði hana auðvitað mjög sorgmædda.
Nema hvað að ég vissi ásamt flestum öðrum að mamma hennar væri að koma óvænt í heimsókn sem lifandi afmælisbakki með fullt af gjöfum frá Íslandi. Þannig að stúlku kindin tók nú hamingjuna á ný í gærkvöldi þegar mamma hennar hringdi í hana frá Osló og spurði hvort að ég (lesist Örvar) gæti komið að sækja hana á flugvöllinn.

Þannig að nú á eftir er nóg af pökkum og kökuboð fyrir þá sem vilja mæta :)

22.11.06

Æði

Alltaf gaman að taka afrit að dags vinnunni og copy-a yfir nýja skjalið með gömlu útgáfunni...heill dagur í verkefna vinnu farinn.

Anna labbaði meðfram veggjum í gærkvöldi til að forðast mig.

Maður er svona að ná sér og er nýhættur að skalla veggi enda er ég kominn með sár á ennið.

19.11.06

Veðrið

Djöfull....tónleikunum var frestað...

Allt á kafi í snjó heima og hérna er bara þetta fínasta veður, logn og 3 stiga hiti. Og svo voru allir að tala um kuldan í noregi?
Þessi mynd er reyndar frá gærdeginum en veðrið í dag er nú nokkuð svipað.

Jæja áfram að læra.

17.11.06

Sufjan

Maður á ekki að horfa á Prison Break rétt áður en maður fer að sofa, það er áskrifa á andvöku.

Fyrst að ég kemst ekki á tónleikana með Sufjan Stevens í kvöld þá læt ég mér það duga að hlusta á hann yfir verkefna vinnu, ekki alveg það sama en maður verður samt að vera þakklátur fyrir það sem manni býðst.
Hef ekki frá miklu að segja og læt því eitt lag með Sufjan fylgja hér. Ég hvet alla sem ekki þekkja hver þetta er að kynna sér hann, tekur smá tíma að detta inní þetta en það er þess virði, mjög góður tónlist maður þar á ferð.
Sufjan Stevens - To Be Alone With You.mp3

16.11.06

Stress

Þessi mynd tengist póstinum ekki neitt, bara að sýna hvað við feðgar erum fallegir...

Það er komið smá stress í mann þegar hugsað er til þess sem þarf að gerast áður en maður kemur heim um jólin. Þetta er sv
ona stressblandaður spenningur eða spenningsblandað stress, eftir því hvernig fólk vill hafa það.

Á eftir að skila tveimur verkefnum í einu fagi sem er próflaus áfangi og í öðru þeirra er maður varla byrja vegna tafa á gögnum frá Íslandinu. Eitthvað skriffinnsku leyfis vesen með að fá gögnin, en svona er þetta, fæ vonandi eitthvað fyrir helgi. Þannig að helgin framundan verður spennandi verkefna vinna.

Þannig að það er innan við mánuður í að maður komi heim í jólafrí og það bíða manns tvö verkefni, þrjú próf ásamt öllu öðru sem þarf að gera... stuð að vera í skóla.

Annars kemur tónlist alltaf vel af notum þegar maður er í skóla. Það hefur bjargað mér í gegnum margan próflærdóminn að vera með eitthvað gott í eyrunum og það á eflaust eftir að reynast vel núna. Fólk getur séð hvað maður er mest að hlusta á í ipodinum hér til hliðar. Er alltaf að taka iTunes meira og meira í sátt þó þetta sé ennþá svona love/hate samband.

Hlakka samt frekar mikið í að komast heim og hitta alla.

Jæja farinn að fá mér einn øl og horfa á Prison Break.

14.11.06

Farsdag og bjórkvöld

Það hlaut að koma að því að maður færi út á lífið og fengi sér einn eða tvo øl. Það var bjórkvöld hjá Íslendingafélaginu Kjartani á laugardaginn og hittist hópurinn á Den Gode Nabo í Bakklandet. Alltaf gaman að hitta aðra íslendinga í "útlöndum" og spjalla og drekka øl. Á myndinni eru ég og Stefán Geir sem er í jarðverkfræði hérna úti.
Það endaði svo mað því að maður tók strætó heim, hvenær myndi maður bæði fara á djammið og koma heim í strætó á Íslandi?

Þá var Farsdag á sunnudaginn sem ég hafði ekki hugmynd um og það fyrsta sem beið manns þegar maður vaknaði hálf myglaður eftir kvöldið áður var Farsdagspakki frá Kára. Hann var mjög duglegur að fara svona einn niður í bæ ok kaupa gjöf handa pabba sínum. En ég fékk sem sagt ljós á hjólið þannig að maður sé nú ekki að hjóla í næsta runna í skammdeginu. Á myndinni eru við feðgarnir saman á Farsdag.

En langt síðan maður fékk sér í glas og maður er greinilega kominn úr formi því það var eins og maður hafði orðið fyrir vörubíl daginn áður svo ég vitni aðeins í Jóhann. En samt gott að komast út áður en maður læsir sig inni fyrir próflesturinn.

Nóg í bili, ha det bra...
Örvar

7.11.06

Stór strákur og íslensk haust

Kári varð 3 mánaða í gær og Anna fór niður á heilsugæslu til að vikta drenginn. Hann var orðinn hvorki meira né minna en 7.360 gr og 63 cm. Geri aðrir 3 mánaða guttar betur, hann er því þyngri en bæði Brynjar Örn og Kristófer á sama aldri, svona til að vinahópurinn hafi eitthvað viðmið.

Nú er búið að vera sannkallað íslenskt haustveður í Þrándheimi. Það er búið að rigna núna undanfarna daga og allur snjórinn er farinn, ofan á það þá er einnig búið að vera rok sem maður er nú ekki vanur hérna í Þrándheimi.
Þetta á að vera svona út vikuna og þá vonandi fer að koma gott veður aftur.

Karen og Víðir Freyr voru í heimsókn í seinustu viku og fóru þau á mánudaginn. Gaman að fá þau í heimsókn en Anna sá aðalega um að sinna þeim og sína þeim bæinn á meðan ég var að læra.
En við náðum samt að fara öll saman út að borða á Peppes Pizza og var það í fyrsta sinn sem við förum út að borða síðan Kári kom í heiminn. Gaman að komast út úr húsinu á kvöldin sem maður hefur nú ekki gert mikið af seinustu mánuði.

Nóg í bili, bið að heilsa í bili.

3.11.06

Afmælisbarn gærdagsins

Það gleymdist víst að óska afmælisbarni dagsins í gær til hamingju með daginn. Til hamingju með 2 ára afmælið Hrefna Rán. Við feðgarnir sitjum hérna og sláum saman inn þennan texta þannig að þetta verður ekki langt í þetta skiptið.


Hérna eru frændsystkynin saman þegar Kári var 6 daga. Hún var svo góð að kyssa hann bless.

Kveðja frá Þrándheimi.

1.11.06

gsm & heimsókn

Þá er ég loksins kominn með gsm númer hérna í Noregi.
Síminn hjá mér+47-97471935.

Þannig að núna geta allir hringt í kallinn og ég þarf ekki lengur að borga :). Þannig að þegar þér leiðist í vinnunni, þá er um að gera að taka upp tólið og hringja (svo maður hljómi nú eins og auglýsing).

Anna mun svo bráðum fá sér gsm númer, það var nefnilega þannig að við þurfum að skrá okkur á netinu og þurfum að hafa kennitölu til þess. Hún kom í seinustu viku þannig að þá var hægt að ganga frá málinu.

Annars lítið að frétta héðan. Karen og Víðir Freyr eru í heimsókn núna og það er ennþá allt fullt af snjó.

31.10.06

Rosenborg meistari 2006

Fórum á Rosenborg-Viking á sunnudaginn og sáum Rosenborg vinna 4-1. Þeir tóku svo á móti meistaratitlinum við mikinn fögnuð heimamanna og okkar :)

Við fórum fyrst í pizzuboð til Jóhanns og Kittýar og svo héltum við öll á leikinn. Lerkandal Stadium er mjög flottur völlur og var alveg troð fullur á sunnudaginn í snjókomunni. Kári var mjög góður allan tíman, svaf í fyrri hálfleik og svo horfði hann áhugasamur á seinni hálfleik.

Hérna er Stefan Iverssen að skora fyrsta mark leiksins.
Viking voru aðeins betri í fyrri hálfleik en Rosenborg voru svo betri í seinni hálfleik og kláruðu leikinn með þremur mörkum í seinni hálfleik. Sungið og trallað og þetta var mjög gaman.
Mun flottari völlur en Craven Cottage sem við fórum á í fyrra.

Hérna er svo ein mynd af Rosenborg taka á móti meistaratitlinum.

29.10.06

Sunnudagur

Jæja það var tekið gott átak í að setja myndir á netið um helgina. Nú eru nýjustu myndirnar frá gærdeginum, uss hvað maður er duglegur.

Það er nefnilega þannig að þegar maður er duglegur að blogga og setja myndir á netið þá er ég jafn lélgur að læra.

Þá er von á Kareni (vinkona Önnu) og Víði Frey (syni hennar) á morgun (mánudag). Það verður mjög gaman að fá þau í heimsókn og sjá Víði Frey sem hefur örugglega stækkað heil mikið síðan við sáum hann seinast.

Erum að græja okkur upp til að fara á Rosenborg-Viking. Aðeins meira prógram þegar maður er með lítinn pjakk.

28.10.06

Tripptrapp

Aðeins fallegra vetrar/haust veður í dag eins og sést á þessari mynd.

Fórum svo í dag á flakk og fundum mjög stórt svæði af verslunarmiðstöðum þar sem gott verður að fara fyrir jólin.
Þá var keyptur Tripptrapp stóll handa Kára í fyrirfram skírnargjöf frá ömmu og afa í Hlíðarhjallanum. Eins og sést á þessari mynd var drengurinn mjög ánægður með að fá nýja stólinn. Hann náði meira að segja að sitja rólegur allan kvöldmatinn í stólnum.

Loksins komnar fleiri myndir á netið. Hérna er t.d. heimsóknin hjá m&p.
Fleiri nýjar myndir hér. Fer vonandi að komast nálægt deginum í dag með þessar myndir.