Þá er það staðfest, Fernando Torres er að koma til Liverpool. Hef ekki verið svona spenntur yfir kaupum Liverpool í langan tíma, jússímía.Hann virðist samt ekkert vera raða mörkunum inn á Spáni en held samt að hann eigi eftir að vera góður fyrir Liverpool. Maður er samt alltaf smeikur þegar menn eru að koma í nýtt land og nýja deild en vonandi verður hann fljótur í gang og við fáum að sjá eitthvað af svona mörkum...
Nú er bara að vona að það fari að detta einhver kantari inn og þá erum við að tala saman.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli