Það er alltaf gaman þegar maður hittir á góðar bíómyndir sem maður býst ekkert alltaf mikið af. Sá Inside Man nýverið og kom hún manni nokkuð á óvart hveru góð hún var.Það eru mjög stór nöfn í þessari mynd, Denzel Washington, Clive Owen, Jodie Foster, Christopher Plummer og Willem Dafoe og svo er Spike Lee leikstjóri.
Mjög góð mynd með góðum leikurum og góðu handriti. Árni þú veður að líta fram hjá því að Denzel Washington er í þessari mynd og sjá hana.
Inside Man fær 8 Ö
Þegar þessi vinnudagur er búinn á ég bara viku eftir í vinnunni.
Víííí, þó svo það verðir skrýtin tilhugsun að fara aftur í skóla, þá hlakka ég mjög mikið til.
Fór í brúðkaup í gær til Geirs og Hrefnu og var það mjög vel heppnað í alla staði. Þessi mynd er tekin þegar brúðhjónin eru að koma út úr Kópavogskirkju.
Þá er golf sumarið byrjað hjá mér. Ég, Reynir og Kiddi fórum seint á fimmtudaginn í bongó blíðu vestur til Vatnsleysustrandar í golf. Reynir á heiður skilið fyrir að bjóða okkur Kidda, takk fyrir það.
Hérna eru svo Kiddi og Reynir á 5 holu.
Já svona á veðrið að vera. Verst að ég er ekki kominn í sumarfrí hvað með það, maður á að njóta þess á meðan maður getur.
Á mánudaginn var farið og gerð enginn smá innkaup fyrir fjölskylduna. Við förum og keyptum eitt stykki barnavagn og engann smá vagn. Brio Kombi varð fyrir valinu enda var hann á tilboði og um að gera að stökkva á svoleiðis enda eru barnavagnar ekki gefins.
Það var mikið um að vera í gær. Í fyrsta lagi útskrifaðist Anna úr Háskóla Íslands sem Hjúkrunarfræðingur og fékk alveg mjög flotta meðal einkunn og er ég að sjálfsögðu voðalega stoltur af henni, enda búinn að bíða eftir þessu í 4 ár :)