Þegar maður er orðinn pabbi þá áttar maður sig loksins á því hvaðan þetta orðatiltæki er komið. Meistarinn var nývaknaður og náði þessari svaka bombu upp á bak, gott hjá honum.
Þá var tekið stórt skref í gærkvöldi í að velja nafn á drenginn. Upphaflega voru 11 nöfn og nú höfum við náð að skera þetta niður í 3. Þannig að ákvörðun um nafn á drenginn verður vonandi tekin um helgina. usssss, spennó.
Annars er maður nokkuð stressaður með fótboltann heima. Breiðablik mætir Keflavík í dag í loka umferð Landsbanka deildarinnar og verður að vinna eða ná stigi til að halda sér uppi. Grindavík fá FH í heimsókn og erfitt að gera sér grein fyrir áhuga FH á að mæta af fullum krafti í þann leik. Þá er Víkingur - ÍA einnig og vonandi vinnur ÍA þann leik, þó svo ég voni að Grindavík falli.
Eina góða við þetta er að Keflavík eru að fara spila úrslitaleik í bikarnum næstu helgi þannig að þeir eru vonandi að hugsa um þennan leik.
Það var svo horft á Fun with Dick and Jane í gær. Fín mynd en ekki mikið meira en það. Fær 7 Ö.
Það eru nú um 3 mánuðir síðan ég fór að djamma og hef nú ekkert saknað þess voðarlega en ég verð nú að viðurkenna að ég væri alveg til í að vera á klakanum í dag og mæta í matarklúbbinn sem Ívar heldur í þetta skiptið. Uss það verður örugglega gaman hjá þeim í kvöld.
Þá verður maður að halda áfram að læra.
23.9.06
22.9.06
Fréttir frá Norge
Allt gott að frétta héðan frá okkur.
Þessi vika var nú mun rólegri en sú seinasta. Búinn að vera smá tími til að vera í pabba leik og hjálpa til heima fyrir. Veðrið er búið að vera ágætt þó svo að það hafi rignt nokkuð í vikunni en það er eins og mesta rigningin sé á kvöldin og á nótunni. Þá er einnig komið gott veður núna, sól og 20°C.
Maður er að komast í betri rútínu í skólanum, veit hvenær á að skila hverju og ca. hvað þetta tekur allt langan tíma. En norskan er samt ekkert að skána hjá mér, held að Anna sé miklu betri en ég þó svo að ég hafi verið að hlusta á þetta í 4 vikur.
Af litla manninum er allt gott að frétta. Hann er að berjast við að reyna að halda haus og gengur það ágætlega. Hann er nokkuð góður að hreyfa hann til þegar hann liggur á maganum.
Hann er nú þegar kominn með nokkur áhugamál. Það fyrsta er að gubba á foreldra sína þegar þau eru í nýkomin í hrein föt. Þá er einnig mikið sport að pissa útfyrir bleyjuna sína og það skiptir engu hvort hann sé í fanginu á foreldrum sínum eða sofandi upp í rúmi, einhvernvegin tekst honum þetta foreldrum sínum til mikillar gleði.
Þá erum við (lesist Anna) að reyna að koma smá vanagangi á hann, hvenær hann á að drekka og sofa á daginn og þess háttar, gengur hægt en við erum allavega byrjuð.
Nóg í bili.
Med venlig hilsen
Örvar

21.9.06
Víííí
Það er kominn helgi hjá mér þar sem ég er ekki í skólanum á föstudögum.
Það væri nú gott að geta sofið út um helgina en einhvern veginn læðist að mér sá grunur að það verði ekki hægt.
Það væri nú gott að geta sofið út um helgina en einhvern veginn læðist að mér sá grunur að það verði ekki hægt.
18.9.06
Miðbær og Korsvika
Nú er veðrir búið að vera alveg frábært í viku eða síðan tendó fóru héðan, skildi þetta tengjast eitthvað? Það er búið að vera sól, 15-20°C hiti og logn alla vikuna. Ekki alltaf sem maður fær svona veður í september.Eftir mjög annasama viku var helgin tekin í afslöppun og að kynnast aðeins Þrándheimi. Á laugardeginum fórum við að rölta niður í miðbæ en litli maðurinn var ekki mjög sáttur við það þannig að við gátum ekki verið þar nema ca. klst. Þá var ákveðið kíkja í Korsvika sem er eiginlega Nauthólsvík þeirra Þrándheimbúa. Skoðuðum okkur aðeins um þar en ákváðum að kíkja aftur daginn eftir í göngutúr um það svæði.
Eins og ég sagði áðan kíktum við svo á sunnudaginn í Korsvika sem er mjög fallegt svæði. Fórum þar í göngutúr en lentum svo eiginlega niður á iðnarhöfn og snérum því við og fórum í hina áttina. Þar var betra útsýni og fallegra og mjög gott að geta framlegt sumarið svona því það er ekkert að því að labba um í sól og 17°C hita.Þá er ég einnig búinn að setja myndir helgarinnar inná netið.
http://www.flickr.com/photos/orvars/
Ha det bra
Örvar
Ljósmyndir frá Noregi
Var að setja inn fullt fullt af myndum inná ljósmyndasíðuna mína. Þetta eru myndir frá 2. sept til 16. sept.
Hérna er linkur á fyrstu myndina.
http://www.flickr.com/photos/orvars/245467056/
Til að fletta svo í gegnum nýjustu myndirnar smelli þið á myndirnar hægra megin á síðunni undir orvars' photostream. Þar er smellt á hægri myndina (IKEA) þá farið þið í réttri tímaröð áfram....
Vonandi fatti þið þetta.
Annars er hérna linkur á allar myndirnar.
http://www.flickr.com/photos/orvars/
Fleiri myndir frá helginni koma svo seinna í dag.
Vi snakkes
Hilsen Ørvar

16.9.06
Skole
Það er tímabært að láta í sér heyra. Hef haft lítinn tíma í að vera gera eitthvað annað en að læra og sjá um drenginn, þó svo að Anna beri nú mesta hitan af drengnum þessa dagana.Var að skila stóru verkefni í Anleggsteknikk eða Construction Engineering. Þetta er próflaus áfangi og þess vegna er mikil vinna í verkefnum. Þetta var eitt af fjórum verkefnum í þessu fagi og var ég mjög feginn í gærkvöldi þegar ég ýtti á send takkann á tölvunni.
Ég er sem sagt í fjórum fögum sem er fullt nám hérna úti. Þessi fög eru:
Finite Element Methods 1
Construction Engineering
Concrete Technology
Steel and Aluminium Structures
Það er búið að vera mikið af verkefnum í Steel og FEM fögunum og þennig hafa hin fögin setið aðeins á hakanum þangað til að stóra verkefnið kom í Anleggsteknikk. Þessi fög eru öll kennd á norsku og er allt efni á norku nema í FEM þar er bókin á ensku og einnig glærurnar sem er ágætis tilbreyting.
Þetta eru allt áhugaverð fög en mis vel gengur að skilja kennarana, get nú ekki sagt að ég skilji mikið í sumum þeirra eða norsku yfir höfuð. Gengur reyndar ágætlega að lesa efnið.
Skólinn er líka mjög flottur og öll aðstaða til fyrirmyndar. Ég setti nokkrar myndir af skólanum á netið og er hægt að finna þær hér.
Þetta er ágætt í bili og nú skal ég reyna að vera duglegri að koma með fréttir frá Þrándheimi.
Ha det bra fra Trondheim
Ørvar
10.9.06
Herman Kragsvei 30
Þá er kominn tími til að kynna heimilið okkar næstu tvö árin. Við erum sem sagt flutt til Þrándheims í Noregi. Við búum í íbúð 41 á Herman Kragsvei 30 í Moholti, sem er stúdentaíbúðir og er þetta mjög vinalegt hverfi. Það eru nokkrar búðir mjög nálægt og svo er leikskóli við hliðiná á húsinu.Íbúðin er 51 fermetrar og saman stendur af: Stofu, eldhúsi, gangi, klósetti, baðherbergi, svefnherbergi með litlu barnaherbergi og svo lítil geymsla.
Síminn hjá okkur er: (0047) 73888412. Það er sem er inní sviga er ef þú ert að hringja frá Íslandi.Hérna eru myndir af íbúðinni í slideshow-i: Hermankragsvei30.
Þá eru komnar fleiri myndir inná síðuna mína.
3.9.06
Ferðamyndir
Þá eru myndirnar af ferðalaginu frá Kópavogi (Íslandi) til Þrándheims í Noregi komnar á netið. Myndir varð batteríslaus í DK en náði samt nokkrum myndum eftir það. Hérna eru þær:http://www.flickr.com/photos/orvars/
Þá eru einnig komnar nýjar myndir inná barnalandssíðuna.
1.9.06
Flugvöllur og IKEA
Þá sameinast fjöldskyldan bráðum á ný.
Er að stytta mér stundir á meðan ég bíð eftir því að Anna og kúturinn minn komi frá Íslandi til Þrándheims. Þau lenda eftir ca. 1,5 klst og ég hlakka alveg ótrúlega til.
Litli kúturinn dafnar mjög vel og er orðinn 4300 gr og 54 cm hvorki meira né minna. Hefur því þyngst um ca. 600 gr. frá því að ég sá hann seinast sem er ekkert smá mikið.
Þá var farið í fyrstu ferðina í IKEA í dag og keypt barnarúm sem drengur fær í sængurgjöf frá Ömmu og Afa í Kambaseli. Þá var líka keypt hitt og þetta á heimilið og einnig auka sæng og koddi fyrir þá sem vilja kíkja til Þrándheims :)
Svo koma glænýjar myndir frá Þrándheimi á morgun.
Er að stytta mér stundir á meðan ég bíð eftir því að Anna og kúturinn minn komi frá Íslandi til Þrándheims. Þau lenda eftir ca. 1,5 klst og ég hlakka alveg ótrúlega til.Litli kúturinn dafnar mjög vel og er orðinn 4300 gr og 54 cm hvorki meira né minna. Hefur því þyngst um ca. 600 gr. frá því að ég sá hann seinast sem er ekkert smá mikið.
Þá var farið í fyrstu ferðina í IKEA í dag og keypt barnarúm sem drengur fær í sængurgjöf frá Ömmu og Afa í Kambaseli. Þá var líka keypt hitt og þetta á heimilið og einnig auka sæng og koddi fyrir þá sem vilja kíkja til Þrándheims :)Svo koma glænýjar myndir frá Þrándheimi á morgun.
30.8.06
Nýjar myndir.
Jæja var að setja fullt af nýjum myndum inná heimasíðuna mína. Er reyndar ekki það nýjasta en fullt fullt af myndum af litla manninum ásamt fyrsta göngutúrinum og kveðjumatarboðum.Þetta er allt hérna:
http://www.flickr.com/photos/orvars/
Er svo að vinna í því smá saman að skrifa við myndirnar. Endilega skráði ykkur inn og kommentið.
Þrándheimur
Þá er maður búinn að koma sér nokkuð vel fyrir og er íbúðin öll að koma til. Munar strax um það að ganga frá öllu og koma sínu dóti fyrir, verður strax heimilislegra. Svo fer maður eina, tvær ferðir í IKEA og þá verður þetta algjör höll. Gangurinn er ekki eins slæmur og ég gaf til kynna fyrst því hann var greinilega þrifinn daginn eftir að ég kom.
Ég get því miður ekki birt neinar myndir fyrr en á laugardaginn því myndavélin er batteríslaus og hleðslutækið kemur ekki fyrr en á föstudaginn þegar Anna kemur.
Það er búið að vera ótrúlega erfitt að vera frá Önnu og litla snáðanum svona marga daga en sem betur fer er biðin brátt á enda en Anna, Snáði og tengdó Rut koma á föstudagskvöldið.
Þegar ég mætti á mánudaginn í skólann var allt komið á fullt og fór mánudagurinn aðalega í eitthvað skriffinnsku dót ásamt því að fara í einn tíma. Þetta er allt að koma en ég ætla að blogga meira um skólann á morgun eða bráðlega.
Ørvar i Trondheim

29.8.06
Ferðasaga
Miðvikudagur:
Lagði af stað frá Kópavoginum fagra um kl. 20:30. Veðrið var fínt til að byrja með en þegar ég var kominn til Víkur þá var farið að dimma og einnig byrjaði að rigna en sem betur fer var það ekki langur kafli. Leiðinlegasti kaflinn var svo á milli Hafnar í Hornafirði og Djúpavíkur. Þá var þoka, rigning og niðamyrkur, ekki bætti úr skák þessar helvítis rollur sem voru alltaf á veginum, var næstum því búinn að strauja á þær tvisvar sinnum. Tók svo Öxi yfir til Egilsstaða þar sem ég var kominn um kl. 4:30 og þar gisti ég nóttina.
Fimmtudagur:
Eftir 3 tíma svefn vaknaði ég og lagði af stað til Seyðisfjarðar. Það var gott veður á Egilsstöðum en mikil þoka á Seyðisfirði. Ég var kominn í röðina til að fara um borð í Norrænu um kl. 9:30. Skipið lagði svo af stað um kl. 12:30 var mjög flott veður þegar skipið sigldi á brott. Var uppi á dekki þegar skipið sigldi frá Íslandi en svo fór maður að skoða skipið. Svo var lagt sig, fengið sér að borða og horft á bíómynd og farið snemma í háttinn.
Föstudagur:
Um kl. 3 var maður vakinn og sagt að maður kæmi til Færeyja eftir klst og það reyndist svo rétt. Fór því snemma framúr og var kominn á stjá í Færeyjum um kl. 5:00 á íslenskum tíma (6:00 í Færeyjum). Skoðaði mig svo um gamla bæinn og var kominn um borð í skipið áður en það lagði af stað um 8:30 á Færeyskum. Þá var ég búinn að missa klefann minn og ég átti ekki að fá svefnpokaplássið fyrr en um 22:00 um kvöldið. Dagur fór því mestur í að hanga og las ég og horfði á þrjár bíómyndir áður en við komum til Hjaltlandseyja um kl. 21:00. Mikið stuð en það sem bjargaði deginum var hlaðborðið sem ég fékk með farmiðanum, algjör klassi.
Fékk svo svefnplássið mitt sem var vægast sagt fyndið. 9 mann klefi og ég var svona án gríns innan við 50 cm frá loftinu. ipodinn kom að góðum notum við að sofna.
Laugadagur:
Nú eru örugglega allir hættir að lesa en ég ætla nú að klára þetta svona fyrir mig til að geyma þettta.
Náði að sofa í um 11 klst í sardínudósinni og var það bara nokkuð gott. Svo var farið í sturtu, lesið, borðað og horft á enn aðra bíómynd áður en við komum til Hanstholm í Danmörku um kl. 17:00 af Dönskum tíma. Þurfti að bíða frekar lengi í bílnum áður en maður komst svo loksins út og þá var ekið beint til Hirtshals um 140 km. Þar var maður svo kominn um kl. 20:30 eftir u.þ.b. 2 tíma akstur. Þá var stoppað og fengið sér einn bjór og frekar daprann hamborgara. Var svo kominn í skipið um kl. 22:30 og skipið lagið af stað um 23:00 til Noregs.
Sunnudagur:
Var kominn til Larvik í Noregi um kl. 8:30 og þá var stefnan tekin beint á Oslo. Stoppaði þar og reyndi að finna hleðslutæki fyrir myndavélina en allt var lokað þar. Því hélt ég áfram og næsta stopp var svo í Lillehammer og þar ætlaði ég að fá mér að borða. Fann samt engan stað og hélt því áfram förinni, endaði svo að fá mér norska pulsu á einhverri bensín stöð í Gudbrandsdalen. Var svo loksins kominn til Þrándheims um kl. 19:00 með mikið rassæri eftir keyrslu dagsins. Frábært veður var í Þrándheimi þegar maður mætti á svæðið, sól og ca 25°C. Þá fór maður beint í að fá lykla af íbúðinni, flytja allt draslið upp og fara út í búð. Bjórinn var svo góður þegar maður loksins slappaði af og komst að því að maður kæmist á netið.
Eftir næstum því akkúrat 1500 km þá fór maður svo að sofa í íbúð 41 á Herman Krags vei 30.
Þetta var ferðasagan mikla "Örvar fer til Noregs".
Lagði af stað frá Kópavoginum fagra um kl. 20:30. Veðrið var fínt til að byrja með en þegar ég var kominn til Víkur þá var farið að dimma og einnig byrjaði að rigna en sem betur fer var það ekki langur kafli. Leiðinlegasti kaflinn var svo á milli Hafnar í Hornafirði og Djúpavíkur. Þá var þoka, rigning og niðamyrkur, ekki bætti úr skák þessar helvítis rollur sem voru alltaf á veginum, var næstum því búinn að strauja á þær tvisvar sinnum. Tók svo Öxi yfir til Egilsstaða þar sem ég var kominn um kl. 4:30 og þar gisti ég nóttina.
Fimmtudagur:Eftir 3 tíma svefn vaknaði ég og lagði af stað til Seyðisfjarðar. Það var gott veður á Egilsstöðum en mikil þoka á Seyðisfirði. Ég var kominn í röðina til að fara um borð í Norrænu um kl. 9:30. Skipið lagði svo af stað um kl. 12:30 var mjög flott veður þegar skipið sigldi á brott. Var uppi á dekki þegar skipið sigldi frá Íslandi en svo fór maður að skoða skipið. Svo var lagt sig, fengið sér að borða og horft á bíómynd og farið snemma í háttinn.
Föstudagur:
Um kl. 3 var maður vakinn og sagt að maður kæmi til Færeyja eftir klst og það reyndist svo rétt. Fór því snemma framúr og var kominn á stjá í Færeyjum um kl. 5:00 á íslenskum tíma (6:00 í Færeyjum). Skoðaði mig svo um gamla bæinn og var kominn um borð í skipið áður en það lagði af stað um 8:30 á Færeyskum. Þá var ég búinn að missa klefann minn og ég átti ekki að fá svefnpokaplássið fyrr en um 22:00 um kvöldið. Dagur fór því mestur í að hanga og las ég og horfði á þrjár bíómyndir áður en við komum til Hjaltlandseyja um kl. 21:00. Mikið stuð en það sem bjargaði deginum var hlaðborðið sem ég fékk með farmiðanum, algjör klassi.
Fékk svo svefnplássið mitt sem var vægast sagt fyndið. 9 mann klefi og ég var svona án gríns innan við 50 cm frá loftinu. ipodinn kom að góðum notum við að sofna.
Laugadagur:
Nú eru örugglega allir hættir að lesa en ég ætla nú að klára þetta svona fyrir mig til að geyma þettta.
Náði að sofa í um 11 klst í sardínudósinni og var það bara nokkuð gott. Svo var farið í sturtu, lesið, borðað og horft á enn aðra bíómynd áður en við komum til Hanstholm í Danmörku um kl. 17:00 af Dönskum tíma. Þurfti að bíða frekar lengi í bílnum áður en maður komst svo loksins út og þá var ekið beint til Hirtshals um 140 km. Þar var maður svo kominn um kl. 20:30 eftir u.þ.b. 2 tíma akstur. Þá var stoppað og fengið sér einn bjór og frekar daprann hamborgara. Var svo kominn í skipið um kl. 22:30 og skipið lagið af stað um 23:00 til Noregs.
Sunnudagur:
Var kominn til Larvik í Noregi um kl. 8:30 og þá var stefnan tekin beint á Oslo. Stoppaði þar og reyndi að finna hleðslutæki fyrir myndavélina en allt var lokað þar. Því hélt ég áfram og næsta stopp var svo í Lillehammer og þar ætlaði ég að fá mér að borða. Fann samt engan stað og hélt því áfram förinni, endaði svo að fá mér norska pulsu á einhverri bensín stöð í Gudbrandsdalen. Var svo loksins kominn til Þrándheims um kl. 19:00 með mikið rassæri eftir keyrslu dagsins. Frábært veður var í Þrándheimi þegar maður mætti á svæðið, sól og ca 25°C. Þá fór maður beint í að fá lykla af íbúðinni, flytja allt draslið upp og fara út í búð. Bjórinn var svo góður þegar maður loksins slappaði af og komst að því að maður kæmist á netið.
Eftir næstum því akkúrat 1500 km þá fór maður svo að sofa í íbúð 41 á Herman Krags vei 30.
Þetta var ferðasagan mikla "Örvar fer til Noregs".
27.8.06
Norge
Örvar bloggar frá Þrándheimi.
Ég er sem sagt kominn til Þrándheims og ferðin gekk vel. Íbúðin er alveg ágæt en stigagangurinn er smá Harlem.
Jæja búinn að vera á fullu síðan ég kom að koma mér fyrir og nú er kominn tími á að hvíla sig því það er skóli á morgun.
Nánari fréttir koma vonandi á morgun.
Venlig hilsen
Ørvar
Ég er sem sagt kominn til Þrándheims og ferðin gekk vel. Íbúðin er alveg ágæt en stigagangurinn er smá Harlem.Jæja búinn að vera á fullu síðan ég kom að koma mér fyrir og nú er kominn tími á að hvíla sig því það er skóli á morgun.
Nánari fréttir koma vonandi á morgun.
Venlig hilsen
Ørvar
23.8.06
Bless í bili
Legg af stað í ferðina miklu í dag. Næsta blogg verður því frá Noregi.Ég mun verða á msn (orvarstein@hotmail.com) og einnig á skype (orvarstein) þegar ég kem til Noregs. Þannig að þið ættuð að geta spjallað við mig ef þið sækið ykkur þessi forrit.
Bless í bili.
20.8.06
Flutningur
Þessa daga er allt á fullu.Við erum um þessar mundir að ganga frá öllu dótinu okkar og koma því í geymslu til tengdó. Við takmörkum dótið sem við tökum með okkur til Noregs við það sem kemst í bílinn. Annað fer í geymslu og er því mikið verið að spá hvað eigi að koma með og hvað eigi að vera á klakanum.
Þegar dótið fer að tínast úr Hlíðarhjallanum áttar maður sig betur á því að maður er eiginlega að flytja að heiman í fyrsta skipti. Veit ekki alveg hvort að það telst að hafa flutt að heiman að fara í kjallarann hjá foreldrunum. En þetta er bæði mjög spennandi og pínu leiðinlegt en spurning hvort þetta eigi nú ekki bara að vera þannig.
Þess á milli erum við svo að taka á móti gestum í öllu draslinu og eru kvöldin vel plönuð með matarboðum í báðum ættum.Svona er lífið í Hlíðarhjallanum í augnablikinu.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)