25.10.07

Jenny

Þetta er án efa eitt það fyndnasta lag sem ég hef heyrt. Get ekki endurtekið það nógu oft hvað fólk verði að tékka á Flight of the Conchords.

Flight of the Conchords - Jenny [mp3]

18.10.07

Hress

Hann er hress þessi ungi maður. Svona stuð er reglulega á mínum manni áður en farið er að sofa.

Utanlandsferð?

Gerist fólk eitthvað mikið svalara ný vaknað, ég bara spyr!

Það eru komnar nýjar myndir inná Picasa ljósmyndasíðuna, ég er aldrei þessu vant á undan Önnu að setja myndir á netið. Hægt að finna myndirnar hér:
http://picasaweb.google.com/orvars/OktBer2007/

Það verður svo skellt sér til útlanda um helgina, reyndar enga rosalega vegalengd því ferðinni er heitið til Åre í Sverge. Við tökum 0kkur saman nokkrar fjölskyldur og leigðum hyttur (aka sumarbústaði eða íbúðir).

Hef þetta ekki lengra í bili, þannig að ég óska bara fólki góðrar helgar.

17.10.07

Editors

Mæli með Smokers Outside The Hospital Doors með hljómsveitinni Editors. Þetta lag er tekið af plötunni An End Has a Start sem kom út á þessu ári.


Hérna er svo mp3 skrá með laginu:
Editors - Smokers Outside The Hospital Doors

Maður verður aðeins að rokka þetta upp eftir James Blunt.

Pósturinn Páll

eða svona næstum því, þetta er bara hjemmesykepleier hún Anna. Eigum við eitthvað að ræða þessi föt?

Anna er byrjuð að vinna og þá breytist heimilslífið aðeins.
Í gærkvöldi var Anna á kvöldvakt og ég og Kári einir heima allan eftirmiðdaginn og því einnig einir heima í kvöldmat. Það er ekki það auðveldasta í heimi að elda með Kára viðstaddan því hann vill taka mikinn þátt í þessu öllu saman og það helst ofan í pottunum. Nema hvað að Anna tók sig til og eldaði fyrir okkur feðgana í hádeginu. Þannig að þegar ég og Kári komum þreyttir heim eftir erfiðan skóladag þá beið okkur kvöldmatur inní ísskáp, já það er gott að eiga góða konu/mömmu :)

15.10.07

Öbbi Fel og harðsperrur

Afslöppunar helgi af baki, alltaf fínt að slappa aðeins af eftir svona góðar heimsóknir.

Ég fór ásamt þeim Stebba og Jóa í Skvass á föstudaginn, alveg frábært að komast í einhverja aðra hreyfingu en að hlaupa úti. Jói er semi pro í þessu sporti og rúllaði okkur Stebba upp en við tveir erum á þessi venjulega amature level-i, þetta mun samt allt koma hjá okkur, Jói is going down. Helvíti gaman allt saman og stefnt á að gera þetta vikulega.
En djöfulsins harðsperrur var maður með um helgina og allt á einhverjum stöðum þar sem maður vissi ekki að maður var með vöðva (segi svona). Alveg að drepast aftan í lærinu, rasskinnunum og neðra bakinu, þetta var það slæmt að það var vont að setja niður á sandkassann þegar fjölskyldan var í sínum vikulegu sandkassaleikjum.

Annars tók ég mig til á sunnudaginn og sýndi hæfileika mína í eldhúsinu. Ég hef nú alltaf staðið mig nokkuð vel í eldamennskunni en aftur á móti ekki í bakstrinum. Það var svo á sunnudaginn sem ég bjó til þessar ljúfengu muffins og ekki nóg með það heldur var svo boðið uppá Royal búðing í eftirrétt (með kvöldmatinum).
Usss, svona er maður klár. Það tekur mikla hæfileika að hella smá vökva í skál og svo dufti útí og hræra, volla = bakari

14.10.07

Fleiri myndir

Þá er ég búinn að setja myndir frá september á netið.
Hægt að finna þær hér:
http://picasaweb.google.com/orvars/September2007/

Það eru einnig komnar nokkrar myndir frá Október mánuði en það er enn sem komið er bara myndir frá leik Rosenborg og Schalke í meistaradeildinni.
http://picasaweb.google.com/orvars/OktBer2007/

Þá bjó ég til linka hægra megin á síðunni á þessi myndaalbúm. Bæði Picasa og flickr.

Góðar stundir.

13.10.07

Myndir á netið

Búinn að setja myndir frá heimsókn mömmu og pabba hennar Önnu á Picasa. Svo koma fleiri myndir frá sept. bráðum á netið.

Myndirnar er hægt að finna hér:
http://picasaweb.google.com/orvars/KambHeimsKn/
Mæli með að fólk skoði þetta í "slideshow".

Fer svo að setja link á Picasa síðuna hérna hægra megin.

12.10.07

Jesú

Er þetta ekki aðal brandarinn í dag?

Músíka


Er maður alveg glataður ef manni finnst þetta lag skemmtilegt? Og það sem verra er að diskurinn er bara nokkuð góður.

Djöfull er maður að verða mjúkur.

11.10.07

Haust eða vetur?

Þetta haust er nú búið að vera frekar lélegt hérna í Þrándheimi, í fyrra var sól og sumar langt frameftir hausti en í ár var það rigning og kuldi. Haustið toppað sig svo alveg í morgun þegar það bauð uppá snjókomu.

Þannig að fyrsti "snjórinn" í ár kom 11. okt, þó svo að þessi snjór hafi nú bráðlega breyst í rigningu. En það var hressandi að hjóla í skólanum á móti snjó/slyddunni, maður er allavega vakandi þegar maður mætir í tíma.

Það er bara að vona að úrkomu magnið verði álíka mikið þegar er komið inní veturinn.

8.10.07

Helgin

Löng helgi að baki og mættur í skólann aftur. Haustið tók ansi hressilega á móti manni í morgun, rok, rigning og ekkert alltof hátt hitastig mætti manni á leiðinni í skólann.

Annars var helgin mjög góð. Tók mér frí frá lærdóminum á föstudaginn og þá var skundað upp í Estenstadhyttu með tengdó. Þetta er mjög fallegur skógur með tveimur vötnum (uppistöðulónum) og veðrið var alveg frábært. Set einhverjar myndir við þessar færslu þegar ég kem heim.

Seinna um daginn var svo farið upp að skíðastökkpallinum í Granåsen og þrammað þar upp, fólkinu var nú ekkert alltof sama um að ég var með Kára á bakinu en hann skemmti samt vel.

Á laugardaginn var brunað upp Røros en Røros er mjög fallegur námubær sem er á heimsminjaskrá. Aksturinn tók ca. 2,5 klst en var samt mjög skemmtilegur því haustið skartaði sínum fallegustu litum. Þá náðum við að fara niður í Olavsgruva sem er gömul koparnáma, en það var lokað í vetur þegar við ætuðum þangað með mömmu og pabba.

Í gær var það svo sundferð út í Pirbadet. Kára fannst ekkert smá gaman að komast í sund og var farið í rennibrautina, öldulaugina og einnig í straumlaugina/hringinn. Maður myndi kannski fara oftar ef það kostaði ekki fjölskylduna ca. 3500 kr að fara.

Þannig að nú er það bara skólinn hjá mér á meðan Anna fer með gengið í búðir.

Lofa svo myndum bráðlega.

5.10.07

Meistaradeildin

Það var stemmning á meistaradeildar leiknum þó svo að úrslitin hafi ekki verið sérlega góð, en Rosenborg tapaði 0-2 fyrir Schalke. Rosenborg komst mjög nálægt því að skora snemma leiks, þegar einn leikmaður Schalke skallaði boltann til baka til markmannsins sem missti hann yfir sig en náði að moka boltanum í stöng og út. Leikurinn hefði nú verið skemmtilegra ef þessi bolti hefði endað í netinu. Annars er ég á því að Schalke hafði skorað ólöglegt markt, það sem sóknarmaður Schalke hafi verið rangstæður þegar hann fékk boltann í fyrsta markinu.

En fúlt að horfa á tapleik og sjá ekki einu sinni mark hjá Rosenborg en gaman engu að síður, og við vorum rosalega góðir í seeeen-inu í Roooooo...seeeeeen...boooooorg.

Ekki hjálpaði til að vita til þess að Liverpool tapaði fyrir Marseille 0-1, um leið og þeir geta eitthvað smá í deildinni þá hverfur öll geta í meistaradeildinni.

En nóg um fótbolta

4.10.07

Afmælisbarn dagsins

Afmælisbarn dagsins heitir Guðrún Jónsdóttir (yngri) og er 2 ára í dag. Fjölskyldan í Þrándheimi vildi óska þeirri stuttu til hamingju með afmælið og þykir það mjög leitt að geta ekki komist í afmælisveisluna. Aldrei að vita nema að maður láti bara í sér heyra í staðinn.

Þá er fyrsta heimsóknin staðreynd þessa önnina. Tengdó komu í gærkvöldi/nótt og munu vera hérna í viku. Nóg að skoða og gera með þeim og alltaf gaman að fá heimsókn.
Ekki skemmir allur fíni maturinn sem þau komu með, ég er samt ánægðastur með íslensku hamborgarana því þeir norsku eru mjög svo vondir.

Svo var ég að græða 15 ár :)
Sjá hér

3.10.07

Champions League

Er að fara á Champions League í kvöld. Rosenborg spilar við Schalke í kvöld á Lerkendal Stadion og ég verð þar. Kannski ekki mest áhugaverðasti leikur í heimi en stemmningin mun samt verða góð á Lerkendal.
Áfram Rosenborg, Roooo Seeeen Borg.......