Löng helgi að baki og mættur í skólann aftur. Haustið tók ansi hressilega á móti manni í morgun, rok, rigning og ekkert alltof hátt hitastig mætti manni á leiðinni í skólann.

Annars var helgin mjög góð. Tók mér frí frá lærdóminum á föstudaginn og þá var skundað upp í Estenstadhyttu með tengdó. Þetta er mjög fallegur skógur með tveimur vötnum (uppistöðulónum) og veðrið var alveg frábært. Set einhverjar myndir við þessar færslu þegar ég kem heim.

Seinna um daginn var svo farið upp að skíðastökkpallinum í Granåsen og þrammað þar upp, fólkinu var nú ekkert alltof sama um að ég var með Kára á bakinu en hann skemmti samt vel.

Á laugardaginn var brunað upp Røros en Røros er mjög fallegur námubær sem er á heimsminjaskrá. Aksturinn tók ca. 2,5 klst en var samt mjög skemmtilegur því haustið skartaði sínum fallegustu litum. Þá náðum við að fara niður í Olavsgruva sem er gömul koparnáma, en það var lokað í vetur þegar við ætuðum þangað með mömmu og pabba.
Í gær var það svo sundferð út í Pirbadet. Kára fannst ekkert smá gaman að komast í sund og var farið í rennibrautina, öldulaugina og einnig í straumlaugina/hringinn. Maður myndi kannski fara oftar ef það kostaði ekki fjölskylduna ca. 3500 kr að fara.
Þannig að nú er það bara skólinn hjá mér á meðan Anna fer með gengið í búðir.
Lofa svo myndum bráðlega.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli