Æii ætlar maður aldrei að læra! Ég settist niður á þriðjudaginn til að horfa á A Guy Thing! Þetta er svona rómantísk gaman mynd, sem eru nú sjaldan gamanmyndir! Jason Lee hefur verið góður leikari hingar til, ég sá hann fyst í Mallrats sem er snilldarmynd en guð minn almáttugur!
Þetta er sem sagt slæm útgáfa af Just Married og álíka myndum! Endalaust af atriðum sem fara í taugarnar á manni í staðin fyrir að vera fyndin! Það endaði með því að Anna hætti að horfa og ég tók seinustu 30 mín svona í hraðspóli! En Julia Stiles er sæt!
A Guy Thing fær 1/2 örlish!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli