Fór á "æfingu" í gær með Breiðablik en þetta var eiginlega ekki æfing því æfingar eru ekki byrjaðar þannig að við vorum bara með lausan tíma í Fífunni og vorum að bara að spila og svona! Þetta var mjög gaman og allt annað tempó heldur en maður er vanur á æfingum hjá stórveldinu TLC :) Þannig að maður var nokkuð þreyttur eftir þetta allt saman.
Er annars búinn að vera helvíti duglegur í ræktinni/fótbolta! Er búinn að hreyfa mig í 9 daga í röð og ætla í ræktina í kvöld þannig nokkuð gott bara!
Er svo að fara kíkja á tölvukassa á eftir, er að spá í þennan kassa!
|
Engin ummæli:
Skrifa ummæli