
Íslendinga félagið
Kjartan hélt Þorrablót fyrir Íslendingana hérna í Þrándheimi á laugardaginn. Okkur Önnu (og Kára) var boðið í kokteilboð á undan til Stebba og Hildar (sjá hægra megin á mynd). Fínt að fá sér nokkrar bjóra og snittur áður en maður mætti í þorramatinn. Anna fór svo heim en ég á Þorrablótið. Mjög gaman að komast út og hitta aðra íslendinga hérna í Noregi, þó svo maður hafi nú mest haldið sig við "gamla" kjarnann. Afrekaði það að smakka hákarl í fyrsta skipti, veit ekki afhverju ég hef verið að draga lappirnar í þeim málum því hann var eiginlega bragðlaus en menn voru reyndar að tala um að hann væri eitthvað bragðdaufur. Annars mjög skemmtilegt og vel heppnað kvöld.
Góða við þetta er að ég slapp mjög vel með sunnudaginn (ekki hægt að segja það um alla, hóst
Jói, hóst...).
Nú er ég svo kominn í Tiltaksuka í skólanum sem er tveggja vikna "frí". Er reyndar eitthvað af fyrirlestrum og námskeiðum en samt mjög þægilegt að fá svona "frí". Jón Haukur, Margrét og Guðrún koma svo á miðvikudaginn og þá verður fjör...meira um það seinna.
Góða nótt
Engin ummæli:
Skrifa ummæli