Eitt fagið er eitt stórt verkefni þar sem ég reikna einn hluta af Realfagbygget, svona þetta helsta. Alveg magnað að maður sé búinn að læra í 5 ár og yfirleitt bara verið að skoða einn bita eða súlu en aldrei heila byggingu, hvernig eigi að gera þetta "in the real world". En þetta virðist vera skemmtilegt.
Annað fag heitir Brukonstruksjoner, en flestir ættu að geta áttað sig á um hvað það er. Þar er líka allt komið á fullt og er ég búinn að skila fyrsta verkefninu sem var að reikna krafta á "Smestua" brú.
En án efa er merkilegasta fagið Formgiving. Ég ætla að vitna í Jóa sem lýsti því nokkuð vel á blogginu hjá sér:
Í því eigum við að klippa og líma ásamt því að teikna og lita, og það besta er að þetta er próflaus áfangi. Ég var að fá fyrsta verkefnið og það felst í því að lita gráskala frá 100% svart yfir í 12,5% svart. Fyrirlestrarnir eru líka ágætir og lærir maður þar mikið nýtt og nýtilegt. T.d. að pappír gengur ekki á fjórum fótum og segir beeee og hvernig trefjarnar snúa í klósettpappír til að forðast vandræði. Já prófið að rífa skeinipappír í ræmur bæði langsum og þversum og sjáið hvað ég á við.Já skólalífið er ekkert grín!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli