8.5.13

Stór fræðsluhringurinn

Vor í lofti og ég ákvað að skella mér út eftir kvöldmat og fara stóra fræðsluhringinn í Heiðmörkinni. Frábært að vorið/sumarið sé loksins að detta í hús, langt síðan að maður hefur hlaupið meðfram vatninu í svona blíðu og svo að koma aftur af heiðinni og sjá yfir vatnið í kvöldsólinni og kyrrðinni var magnað.
Smá þreyta eftir Esju gærkvöldsins en maður rúllaði þetta nokkuð rólega.
16,5km á 1:19 klst.

Engin ummæli: