6.5.13

Vika 18 - 29.04-5.5

Sæmileg vika að baki. Var frekar mikið stífur í kálfum á mánudaginn, eitthvað betri á þriðjudaginn og tók þá fyrstu Esju ársins sem var gott að ná svona snemma í maí. Fór svo frekar þéttan 17km hring í Heiðmörkinni á miðvikudaginn sem tók greinilega kraftinn úr mér. Var virkilega þreyttur fimmtudag og föstudag og sæmilega sprækur á laugardaginn en líklegast hlaupið aðeins of lengi í bleytunni og sló svo niður á sunnudeginum með kvef. Hvíld því í allavega tvo daga til að ná þessu úr mér.
Vikan endaði í 84 km og 7:21 klst + tvö fjöll, Esjan og Helgafell sem er góð æfing fyrir Laugaveginn.

Engin ummæli: