Rólegt í kringum vatnið og Norðlingholt. Var orðinn eitthvað þreyttur
eftir smíðadag á pallinum og varla að nenna út eftir mat... en var svo
nokkuð laus við þreytu þegar maður var kominn af stað og endaði í
þægilegu kvöld skokki í mildu veðri.
Fyrsta stuttbuxna hlaup
sumarsins og var það gott að komast úr síðbuxunum þó svo það hefði verið
ennþá betra ef maður hefði komist út fyrr um daginn í sólinni.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli