20.5.13

Hvítasunnuhlaup Hauka

 Var mættur ca. 30 mín fyrir hlaup niður á Ávelli heimavöll Hauka. Ekki tók veðrið vel á móti manni því það kom alveg úrhellisrigning rétt áður en við mættum á svæðið. Biðum veðrið af okkur en eftir það kom þetta fína veður.
Sæmilega ferskur en nokkur óregla á svefninum um helgina. Fyrirfram var ég að velta því fyrir mér hvort maður gæti elt fremstu menn sem mér datt í hug að yrðu Björn Margeirs, Biggi Sævars og Friðleifur. Björn datt út stuttu fyrir hlaup og svo bættist Þórólfur í hópinn. Fór því af stað á eftir Bigga og Friðleif ásamt Þórólfi, Guðna og einum FH-ingi. Friðleifur var fremstur og fór hratt af stað. Þessi hópur hélst alveg fyrstu 5km og var ekki meira en ca. 50m á milli fremsta og síðasta. Svo við Hvaleyrarvatn fór aðeins að teygjast á hópnum. Biggi og Friðleifur fóru aðeins á undan, ég og Þórólfur héldum hóp og svo komu Guðni og FH-ingurinn.

 
Í kringum Stórhöfða gaf Friðleifur aðeins eftir og Biggi tók forustuna. Ég fór svo framúr Friðleifi upp Stórhöfða og þá voru þeir Friðleifur, Þórólfur og Guðni mjög stutt fyrir aftan mig. Gaf vel í á leiðinni niður en þar var enginn stígur til að fara eftir og mikið af grjóti, náði að reka tánna svakalega í einn stein á þessum kafla og var það nokkuð vont en truflaði mig ekki mikið. Hélt svo góðu rúlli áfram í átt að Hvaleyrarvatni, Þórólfur rúllaði framhjá mér á vegkaflanum eftir ca. 12km. Guðni var svo alveg að ná mér í skóginum við Hvaleyrarvatn. Svo var hlaupið meðfram Hvaleyrarvatni og upp aflíðandi brekku þar sem maður skiptist á að hlaupa og labba og var ágætis hvíld í því til að undirbúa sig fyrir loka kaflann á leiðinni.


Náði Þórólfi fljótlega og gaf svo vel í niður síðustu brekkuna fyrir ofan Ástjörn og fór framúr honum, hann var samt fljótt kominn fyrir aftan mig. Við vorum hægt og rólega að vinna á forskot Bigga en án þess að fara ná honum. Þegar við komum út á malbikaða stíginn við Ásbraut þá gaf Þórólfur í og fór framúr mér, hafði ekki í hann á loka sprettinum. Endaði í 3 sæti á tímanum 1:15:05. Þórólfur var í öðru sæti á 1:14:55 og svo Biggi í fyrsta á 1:14:44.
Við fengum allar gerðir af veðri, sól, rigning, næstum því haglél, rok og líka logn. Hlaupaleiðin var mjög skemmtileg og fjölbreytt, malarstígar, grófir kindastígar, malarvegir, brattar brekkur og skógarstígar. Leiðin var skv. mínu gps 17:42km.
Þetta hlaup er komið til að vera og mun ég mæta að ári. Sigurjón Pétursson tók þessar skemmtulegu myndir úr hlaupinu.

Engin ummæli: