28.5.13

Esja #5

Fór Esjuferð nr. 5 í gær. Veðurspáin var fín og því kjörið að drífa sig af stað eftir kvöldmat. Lagði af stað frá Esjumelum og hljóp í átt að Esjurótum. Fór hægra megin upp í fyrstu ferð, gekk sæmilega og náði að hlaupa svipað og vanalega, mjög mikið af fólki bæði á leiðinni upp og niður. Var 29:14 á leiðinni upp sem er nálægt PR. Gaf svo vel í á leiðinni niður (vinstramegin) og var ekki nema 12:49 niður sem er nýtt PR. Var samt orðinn frekar sárfættur undir hæl eftir niðurferðina. Tók svo Esjuhlaups lúppuna og létt spjall við Bigga, Friðgeir og Helga sem voru einnig að hlaupa Esjuna. Fór svo í ferð nr. 2 og ekki hlaupið mikið, hljóp bara sléttustu kaflana en fór núna vinstra megin upp. Var 32:22 upp og gekk það nokkuð vel en mýrin var mjög blaut og náði ég að stíga í drullu sem náði mér upp undir kálfa. Fór svo mjög rólega niður, sérstaklega útaf hversu sárfættur ég var orðinn undir öðrum hælnum, var hræddur um að fara fá blöðru. Endaði á ca 20 mín niður og fór í þetta skiptið hægra megin niður.
Allt í allt var þetta 15,67km og var ég 2 klst að þessu. Fínn kvöldtúr.

Engin ummæli: