Í dag er Kings of Leon dagur á Xinu! Ég keypti mér diskinn Youth and Young Manhood fyrir svona mánuði. Þetta er fyrsti diskurinn þeirra en þessi hljómsveit samanstendur af 3 bræðrum og frænda þeirra. Þeir eru samt frá Tennessee en pabbi þeirra var farandsprestur þannig að þeir ólust upp svona á milli Oklahoma og Memphis. Pabbinn heitir Leon Followill þannig að þaðan er nafnið komið.
Þetta er snilldar diskur en ég er búinn að vinna mér inn annað eintak af honum á Xinu og einnig bol! Þetta er snilld! Þá er bara að fara að ná í góssið!
17.9.03
Til hamingju med daginn Stebbi
SOCCER
Ég og sjónvarpið áttum gott stefnumót í gær! Fór í ræktina eftir vinnu og svo voru það 2 1/2 fótboltaleikur og CM4. Sem sagt mjög gott kvöld. Ég skal sleppa því að segja frá árangri mínum í CM4:) Meistardeildin er snilld!
Annars er ég nokkuð sammála Johnny Nas með IDOL, hlakkar ekkert smá þangað til að þetta byrji! Árni Magg sagðist nú ætla að taka þátt en hann stóð nú ekki við stóru orðin. En það verður örugglega nóg af vitleysingum sem taka þátt!
16.9.03
Sporthusid
Þá er maður búinn að fjárfesta sér í enn einu árskortinu! Nú var valið Sporthúsið eftir að hafa verið í Nautulus (undir Sundlaug Kópavogs) í nokkur ár. Það var kominn tími á breytingar enda var ég kominn með leið á að lyfta með ellilífeyrisþegum. Ég og Stebbi fórum í gær og keyptum okkur kort og fórum svo að taka á því. Þetta virðist vera nokkuð gott en tekur örugglega smá tíma að koma læra á ný tæki og svona. Svo er Anna líka þar þannig að nóg af fólki til að lyfta með!
Þá vil ég benda á góða grein hjá Jóni Hannesi um stafsetningu! Þannig að þó svo að öll orðin séu vitlaus skrifuð þá skiptir það engu máli!
15.9.03
Hvammsmótið
V15 fjölskyldan hélt golfmót í gær á Þórisstöðum í Svínadal sem er í Hvalfirðinum. Það var mikið rok þannig að það var nú alveg kjör veður í golfspilamennsku! Mér gekk nú ekki vel en markmiðið hjá mér var að vinna pabba en það tókst ekki og það sem verra er að ég tapaði líka fyrir Önnu! En Anna var stolt H23 fjölskyldunar og vann kvennaflokkinn! En Guðmundur Sverrisson vann kallaflokkinn! En svona er þetta bara!
TLC er með mót næstu helgi og ég tek það bara! En Kiddi skáti vann það mót í fyrra þannig að partýbræður eru nú ekki amalegir í golfinu! Nú þarf frændinn bara að taka sig á!
12.9.03
Ennþa a lifi og helgin ad koma
Já ég er ennþá á lífi og var engin hryðjuverk né tölvuvírusar á ferð, púff hvað ég er nú fegin;)
Annars er ég og Anna búin að vera saman í 1 ár á laugardaginn! Takk takk!
Þá er Stebbi einnig að halda upp á afmælið sitt og ætli maður verði nú ekki að kíkja á Selinn og gefa honum smá pakka! Annars á hann ekki afmæli fyrr en 17. sept þannig að þá ælta ég nú bara óska honum til hamingju!
Góða helgi!
Johnny Cash
Johnny Cash bara dáinn! Loksins þegar maður er að fatta hvað þetta er mikill snillingur þá er hann bara dauður! Hérna er frétt um þetta á mbl
Ég spurði Halla (Verk) um Cash en hann er mikill aðdáandi þannig að hér kemur það:
Þú varst að spyrja um lög með Cash. Hér eru nokkrar góðar hugmyndir:
American III: Solitary Man – Platan eins og hún leggur sig
American IV: The man comes around – Platan eins og hún leggur sig
Síðan eru alltaf lög eins og:
I walk the line
A boy named Sue
If I were a carpenter – Sungið með June Carter Cash, konunni hans.
Folsom prison blues
Sixteen tons
Like a soldier
Thirteen
Ghost riders in the sky
Wayfaring stranger
Ætti að vera nóg í bili.
Þannig að allir að fara á Kaaza og tékk á þessu!
11.9.03
Matarklubber hja Jim Bomb!
Jim Bob er náttúrulega ekkert smá svalur!
Hér eru myndirnar!
911
Það eru nú komin 2 ár síðan "Attack on America" var gert af Bin Laden og félögum!
Binni er að fara til Spánar og er verður því í loftinu í dag en Ingvar fór í gær en veit ekki alveg hvort að hann hafi verið í loftinu í nótt! Þetta er eitthvað sem ekki allir myndu þora að gera 11.sept!
Annars óska ég þeim góðrar ferðar!
10.9.03
Changing Lanes
Ég kláraði að horfa á Chaning Lanes á mánudaginn! Myndin er hæg til að byrja með og lítið áhugavert gerist ég var mikið að spá í að hætta að horfa en maður hélt út og hún skánar aðeins, samt ekkert voðalega!
Þessi mynd var ekkert að virka á mig!
Chaning Lanes fær *1/2 örlish!
Það verður gaman að sjá Ben og J´Lo fara á kostum í næstu mynd sinni sem heitir Gigli en hún er með 2 störnur af 10 mögulegum á IMDB.com og var algjört flopp í USA!
9.9.03
Helgin sem leið!
Jebb það var sko gaman á laugardaginn! Eftir að hafa verið að telja bíla í bílastæðum á Laugarveginum frá 10-16 var mætt til Árna Magg kl. ca. 16:30 og undirbúningur fyrir landsleik Íslands og Þjóðverja hafinn. Við rölltum svo á leikinn sem var bara svona helvíti góður! Eftir það var farið í Pizzu heim til Árna og svo var farið snemma niður í bæ eð a kl. 10 í afmæli til Katrínar á 11. Snilld að komast aftur í fúsbol (ekki hugmynd um hvernig það er skrifað) en Stebbi og ég unnum Ívar og Árna, múhaha!
Svo var farið á Hverfis og verið þar sem eftir var kvölds/nætur!
En skemmtilegasti hluti kvöldsins var leigubílaröðin þar sem við hittum lessu með bláann hanakamb og Loga Ólafsson landsliðsþjálfara! Hann spurði einmitt lessuna hvort það væri verið að mála heima hjá henni. Mjög fyndið!
En svo var það smá vinna, fótbolti og Lord of the Rings TT á sunnudaginn!
Þá vitið þið það!

5.9.03
Iceland vs. German o.s.frv
Þá er föstudagur og svona! Lítur ekki út fyrir að ég fái mikið frí um helgina.
Er að fara vinna við að telja bíla í bílastæðum frá 10 - 16 í miðbænum. Ég verð á Barónsstíg og svo á Laugarveginum fyrir framan Landsbankann. Endilega komið og kíkið á mig ef þið eigið ekkert líf! Annars vona ég að hann haldist þurr því ég fer svo á Ísland - Þýskaland kl. 17:30 niður í Laugardal! Eftir það verður farið í smá eftirlandsleikpartý og svo í afmæli til Katrínar (hans Gísla). Þarf svo einnig að vinna eitthvað á sunnudeginum en ekki við að telja bíla!
Þannig að þá viti þið það!
ÁFRAM ÍSLAND!
Óskar og Sverrir
Jæja þá eru tvíburarnir þeirra Hákonar og Rósu komnir með nafn þeir heita Óskar og Sverrir í höfuðið á öfum (er þetta ekki rétt skrifað?) þeirra. Gummi og Kiddi voru skírnarvottar eða eins og við kölluð þá The Godfathers! Nú eiga þeir sko sannalega verk fyrir höndum í að standa sig Godfathers!
4.9.03
Djamm + bio + skirn
Fór í matarklúbb til Gumma Árna á laugardaginn og var það mjög gaman! Nú fékk kvennþjóðin loksins að koma með og heppnaðist þetta bara mjög vel! Gummi bauð upp á grilluð læri og svona og svo köku í eftirrétt, mjög flott! Eftir þetta var farið á djammið og var endað á Þjóðleikhúskjallaranum! Ég var nú á móti þessari tillögu en þetta var mjög gaman og ég og Anna vorum komin heim um 5!
Árni og Gísli voru með eitthvað á samviskunni hjá sér og sáu báðir ástæðu til að hringja í mig og biðjast afsökunar á hegðun og gjörðum sínum :) Nei nei segi svona!
Fór svo í bíó á sunnudaginn eftir að hafa verið í góðri þynnku allan daginn! Fór á 28 days later... og var hún bara nokkuð góð. Nenni ekki að segja frá henni! 28 days fær ** örlsih hjá mér!
Annars er ég að fara í kvöld í skírn + 30 afmæli! Jebb Hákon frændi er að fara skíra bollurnar 2 og á 30 afmæli, til hamingju með það! Ég ætla að giska á að þeir heiti Guðmundur og Kristinn eða Davíð og Sverrir

1.9.03
Helgin
Engin mánudags þynnka þó svo maður hafi farið á skrallið á laugardaginn.
Föstudagur
Ég, Stebbi og Gísli fórum og fengum okkur pizzur og bjór með stuðningsklúbbi Breiðabliks. Fórum svo á völlinn og þá komu Atli og Kiddi líka. Leikurinn var nú ekki upp á marga fiska! Ótrúlegt hvað Blikarnir klúðruðu mörgum færum. Greinilegt að ég þarf að fara koma Blikum til bjargar og byrja að æfa aftur;).
Eftir það var farið heim og horft á Chicago með Önnu. Nenni ekki að fara mörgum orðum um þessa mynd. Allt of mikill söngur og ekki alveg að virka á mig, fær *1/2 örlish. Ótrúlegt að svona mynd fái óskar frænda en ekki mynd eins og LOTR 2 :(
Laugardagur
Fór í V15 og horfði á Liverpool vinna Everton :) Ekkert smá ánægður að sjá Liverpool spila fótbolta! Svo var farið í bæinn og stússast eitthvað og svo horft á Chelsea vs. Blackburn.
Fór svo í fótbolta og þá var komið að því! Matarklúbburinn hjá Gumma Árna!!!!! Skrifa um hann seinna í dag!
Síja

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)