Ég og sjónvarpið áttum gott stefnumót í gær! Fór í ræktina eftir vinnu og svo voru það 2 1/2 fótboltaleikur og CM4. Sem sagt mjög gott kvöld. Ég skal sleppa því að segja frá árangri mínum í CM4:) Meistardeildin er snilld!
Annars er ég nokkuð sammála Johnny Nas með IDOL, hlakkar ekkert smá þangað til að þetta byrji! Árni Magg sagðist nú ætla að taka þátt en hann stóð nú ekki við stóru orðin. En það verður örugglega nóg af vitleysingum sem taka þátt!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli